Skessuhorn - 16.12.2015, Page 83
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 83
reksturinn sjálfan var stofnað sér-
stakt rekstarfélag sem í situr stjórn
manna héðan og þaðan úr atvinnu-
lífinu. „Ég var ráðin inn af því fé-
lagi. Hótelið verður rekið eins og
hvert annað hótel og býður alla
velkomna óháð trú, en margir hafa
haldið því fram að þetta væri ein-
göngu fyrir kaþólska. Ég held að
margir viti ekki að það eru hundruð
eða jafnvel þúsundir hótela í heim-
inum rekin af kirkjum og trúfélög-
um, þó hvergi komi það fram. Kaþ-
ólska kirkjan mun einnig nota hús-
næði hótelsins undir sína starfsemi
en í hótelinu er afar falleg kap-
ella byggð í kringum 1933. Núna
eru þrjár systur starfandi í Stykkis-
hólmi ásamt einum presti. Systurn-
ar eru með öflugt barna- og ung-
lingastarf þar sem þær bjóða öllum
krökkum í Stykkishólmi og nær-
sveitum að taka þátt í þeirra starfi.
Systurnar messa á hverjum degi
en einnig eru messur alla sunnu-
daga og annað hvert föstudags-
kvöld. Töluverður fjöldi kaþólikka
af ýmsum þjóðernum eru búsettir á
Snæfellsnesinu.“
Unnur segir að nunnurnar í
Stykkishólmi séu yndislegar mann-
eskjur sem láti gott af sér leiða. „Þær
eru þrjár hér núna og standa fyr-
ir miklu barna- og unglingastarfi.
Í því er til að mynda fólgin ferm-
ingarfræðsla og almenn trúfræðsla.
Þær eru alla laugardaga frá klukk-
an 15 – 17 með um 25 krakka í alls
konar tómstundastarfi. Þau eru að
púsla, í leikjum, baka og gera allt
mögulegt. Núna á aðventunni hafa
krakkarnir verið að setja upp helgi-
leik. Það skiptir engu máli hvaða
trúfélagi þau annars tilheyra og
allir fá hlutverk. Svo eru þær með
unglingastarf á föstudagskvöldum.
Systurnar eru allar frekar ungar að
árum rétt um eða yfir þrítugt. Þær
koma frá Bandaríkjunum, Filipps-
eyjum og Úkraínu og tilheyra reglu
sem kallar sig Maríusystur. Hún
hefur starfað hér í Stykkishólmi
síðan 2008 eða frá því að St. Franc-
iskus-systurnar kvöddu Hólminn.
Systurnar búa í litlu fallegu timb-
urhúsi sem stendur næst hótel-
inu en presturinn býr hins vegar í
prestaíbúð sem er áföst húsi hótels-
ins. Ein systirin talar reiprennandi
íslensku og stundar nám í íslensku
við Háskóla Íslands. Hinar tvær eru
að byrja sitt íslenskunám og geng-
ur það bara vel. Systurnar fylgjast
mjög vel með því sem er að gerast
í samfélaginu og taka fullan þátt í
öllu sem hér fer fram. Hvort sem
það er að mæta á skólaskemmtan-
ir í grunnskólanum, syngja og spila
fyrir aldraða eða mæta á körfu-
boltaleiki Snæfells. Það er eitthvað
svo notalegt við þeirra nærveru,
hún er áreynslulaus, róandi en líka
skemmtileg. Ég er ekki kaþólikki
og virði alla trú en mér þykir ein-
staklega vænt um „systurnar mín-
ar“ í Stykkishólmi.“
Laus við streitu
borgarlífsins
Nú þegar Unnur er orðin „Hólm-
ari“ hljótum við að spyrja hvern-
ig henni falli sú ákvörðun í dag að
hafa flutt frá höfuðborgarsvæðinu
út á land. „Mér finnst samfélagið
gott hér í Stykkishólmi. Ég er alin
upp á Seltjarnarnesi og bjó þar til
ég var 35 ára. Svo flutti ég upp í
Árbæ og bjó þar þangað til ég flutti
hingað. Ég er alin upp við sjóinn
og lék mér í fjörunni sem barn.
Síðan þá hefur tengingin við haf-
ið og nálægðin við það alltaf skipt
mig miklu máli. Ég er kannski ekki
mikil sjómanneskja, ekkert sér-
staklega hrifin af því að vera á eða
í sjónum en það að finna lyktina af
hafinu og horfa á lygnan eða fryss-
andi sjóinn er mikil hugarró. Hér
er síðan allt í göngufæri. Bíllinn er
nánast óþarfur, allavega hérna inn-
anbæjar. Ég þarf ekkert sérstaklega
að sannfæra sjálfan mig um hvað
er gott að flytjast úr höfuðborgar-
umhverfinu. Það er vissulega meiri
streita að búa í Reykjavík og mikl-
ar fjarlægðir og bílatregða sem því
fylgir. Við áttum heima í Árbænum
og dóttir okkar var í Ísaksskóla. Við
vorum alveg hálftíma á morgnana
dag hvern að fara á milli. Svo vann
ég í Kópavogi. Þetta var endalaus
akstur fram og til baka.“
Unnur bætir því svo við að fyr-
ir dóttur þeirra Ásgeirs sé það
hrein dásemd að búa í Stykkis-
hólmi. „Helga Sóley kann mjög
vel við sig hér. Hún er fædd 2007
og algert örverpi foreldra sinna.
Það er dálítið langt í næstu börn
hjá okkur,“ hlær Unnur. „Henni
fannst svo frábært að flytja hing-
að og byrja í skóla. Henni var tek-
ið svo vel og hún á fullt af vinkon-
um, er í körfubolta fjórum sinnum
í viku, í frjálsum íþróttum og spil-
ar á píanó. Þetta er bara himna-
sending fyrir hana að búa hér. Hér
hefur hún frjálsræði sem hún hafði
ekki í Reykjavík. Þegar hún hjólaði
í skólann í fyrsta sinn í haust fannst
henni að hún ætti heiminn.“
Halda jól í Hólminum
Þrátt fyrir allt var það þó stór
ákvörðun að taka sig upp og flytja
út á land. Þau Unnur og Ásgeir
eiga eldri börn og barnabörn sem
búa á höfuðborgarsvæðinu. Fjar-
lægðin við þau, aðra ástvini og
skyldmenni, jókst jú við flutning-
inn. Unnur segir þó að það sé alveg
hægt að aðlagast þessu þó vissu-
lega séu ókostir við einmitt þetta.
„Eldri börnin eru öll á höfuðborg-
arsvæðinu og eru orðin fullorðin
og flest komin með sínar fjölskyld-
ur. Þeim finnst við stundum dálít-
ið langt í burtu og sumir ekki alveg
sáttir við flutninginn, það verð-
ur nú að viðurkennast. Ég sakna
vissulega barnabarnanna minna
mikið en vonast þó til að með fleiri
lengri heimsóknum til ömmu í
sveitinni munu þau vilja koma oft-
ar og dvelja lengur. Tíminn verður
að leiða í ljós hvernig þessu fram-
vindur öllu saman. Þetta eru nú
bara tveir tímar í keyrslu í dásam-
legu umhverfi.“
Jólin hjá Unni og fjölskyldu
verða nú haldin í Stykkishólmi. „Já,
við ætlum að gera það. Þetta verð-
ur í fyrsta sinn sem við höldum jól-
in í húsinu okkar hér en við höfum
nokkrum sinnum verið hér um ára-
mót. Yngsti sonur minn sem er 23
ára ætlar að koma og vera með okk-
ur hér. Hin börnin eru komin með
fjölskyldur og ætla að vera heima
eða hjá tengdafjölskyldum. Við
ætlum síðan að sameinast hjá elstu
dóttur minni um áramótin. Við Ás-
geir eigum sjö börn til samans og
fyrstu helgina í janúar ætlum við að
fá þau öll með mökum og barna-
börnum hingað vestur og halda lít-
ið ættarmót hérna. Það verður ekki
pláss fyrir öll hér í húsinu en þá
kemur sér vel að hafa heilt hótel í
bakhöndinni,“ segir Unnur að lok-
um og hlær dátt. mþh
Húsið Snæfell við Skólastíg í Stykkishólmi sem þau Unnur og Ásgeir maður hennar
hafa gert upp af mikilli smekkvísi. Þar er heimili þeirra, Helgu Sóleyjar og Loka.
Nunnurnar þrjár í Stykkishólmi sem Unni þykir afar vænt um.
Unnur með tveimur af þremur barnabörnum hennar, þeim Erlu 4 ára og Pétri Birni
1 1/2 árs.
Óskum viðskiptavinum
og Vestlendingum öllum
gleðilegra jóla, árs og
friðar með þökk fyrir
árið sem er að líða
Jarðmenn ehf. vélaleiga
Borg ar byggð
S. 435 1238, 894 3566
Raf nes sf.
Heiða gerði 7
Akra nesi
Jörfi ehf.
Hvann eyri
Tannlæknastofa Hilmis
Berugötu 12
Borgarnesi
Smur stöð Akra ness
Smiðju völl um 2
Akra nesi