Skessuhorn - 16.12.2015, Page 92
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 201592
Í Aðventublaði Skessuhorns, sem kom út í lok nóvember, var kynnt sam-
keppni meðal nemenda í grunnskólum á Vesturlandi um skemmtilegar jóla-
myndir. Líkt og undanfarin ár var keppnin tvískipt, annars vegar yngstu
börnin í 1. - 4. bekk og hins vegar eldri börn í 5. - 7. bekk. Dómnefndar beið
erfitt val enda var þátttakan að venju góð og bárust mörg hundruð falleg-
ar jólamyndir. Fyrstu verðlaun í báðum aldursflokkum var stafræn mynda-
vél sem fæst í versluninni Model á Akranesi en þeir sem lentu í 2. og 3. sæti
fengu bók að launum. Við hjá Skessuhorni viljum þakka þátttakendum fyrir
áhugann og margar frábærar myndir. Jafnframt óskum við sigurvegurunum
innilega til hamingju.
Úrslit í jólamyndasamkeppni grunnskólabarna
Unndís Ida Ingvarsdóttir sigraði í
flokki eldri barna.
Alda Rúnarsdóttir sigraði í flokki yngri
barna.
Mynd Unndísar Idu Ingvarsdóttur í 7. bekk í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit hlaut fyrstu verðlaun í flokki eldri nemenda. Ein-
staklega vel gerð og falleg mynd.
Mynd Öldu Rúnarsdóttur nemanda í 4. bekk í Heiðarskóla hlaut fyrstu verðlaun í flokki yngri nemenda. Falleg og frumleg
mynd þar sem blái liturinn er áberandi. Hlýtur hún að launum stafræna myndavél.
Mynd Bryndísar
Hafliðadóttur í 7. bekk
í Grunnskólanum í
Borgarnesi lenti í 2. - 3.
sæti í eldri flokki. Fær hún
að launum Mína eigin
goðsögu, bók Ævars
Líndal Benediktssonar,
vísindamanns.
Mynd Birgis Natans
Hreinssonar úr 3.
bekk í Grunnskóla
Snæfellsbæjar lenti í 2.
- 3. sæti í yngri flokki.
Hlýtur hann að launum
bókina Trunt – Trunt
staðfærðar þjóðsögur
eftir Steinar Berg Ís-
leifsson.
Mynd Gabrielu Pawelczyk í 6. B í Brekkubæjarskóla lenti í 2. - 3. sæti í eldri flokki.
Fær hún að launum Mína eigin goðsögu, bók Ævars Líndal Benediktssonar,
vísindamanns.
Mynd Emmu Finnsdóttur úr 1. bekk í Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar
lenti í 2. - 3. sæti í yngri flokki. Hlýtur hún að launum bókina Trunt – Trunt stað-
færðar þjóðsögur eftir Steinar Berg Ísleifsson.