Heimsmynd - 01.10.1990, Blaðsíða 26

Heimsmynd - 01.10.1990, Blaðsíða 26
OKTÓBER EF Pálmi Gestssonjeikari, hefði ekki fæðst í Bolungarvík þann 2. október árið 1957 hvar hefði hann þá viljað fæðast? „Á Folafæti undir Hesti í Isafjarðardjúpi.“ Hvers vegna? „Paðan er ég ættaður og þar riðu menn eins og Þorgeir Haraldsson og Þormóður Kolbrúnarskáld um héruð til forna. Með þeim hefði ég vilj- að vera í klíku.“ Hvaða persóna myndir þú helst vilja vera? „Jóakim frændi, þessi ríki í Andrési Önd.“ Á hvaða tíma í sögunni hefðir þú helst viljað vera uppi? „Víkingaöldinni, að höggva mann og annan, það hlýtur að hafa verið skemmtilegt.“ Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti? „Honum afa mínum, Sigurgeiri Sigurðssyni. Hann er níræður og lítur út eins og unglingur.“ En innræti? „Móður minni, Sigurborgu Sigurðardóttur.“ Hvaða kvenmaður í sögunni heillar þig mest? „Ætli ég segi ekki Þuríður sundafyllir, landnámskona í Bolungarvík.“ Hvernig fatnaði viltu helst klæðast? „Þó margur klæðnaður í sögunni höfði til mín þá hentar mér best fal- legur slitþolinn fatnaður.“ Hvernig húsgögn viltu hafa í kringum þig? „Legubekki af öllum stærðum og gerðum." Hvernig slapparðu af? „Mér finnst best að slappa af í góðum reiðtúr í fallegu veðri eða í göngutúr með tíkinni minni henni Dimmu og síðast en ekki síst í fangi fjölskyldunnar, hjá Dóru Björk og Hannesi.“ Hver er besta bókin sem þú hefur lesið? „Heimsljós eftir Halldór Laxness er sú bók sem stendur upp úr en fast á hæla hennar kemur Gróður jarðar eftir Knud Hamsund. Hvert er besta leikritið sem þú hefur séð? „Um þessar mundir er það Örfá sæti laus með Spaugstofunni. Sú sýn- ing sem mest áhrif hefur haft á mig er þó ef- laust Sölumaður deyr.“ Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð? „Þær eru nú svo margar góðar en ætli mynd- in Midnight Express hafi ekki haft mest áhrif á mig.“ Hvaða matur flnnst þér bestur? „Mér þykir allur matur góður. Ég myndi ekki slá hendinni á móti saltkjöti og baun- um. Síðan er það vitanlega jólamaturinn, pekingönd.“ Hverju sérðu mest eftir? „Ég sé ekki eftir neinu.“ Hvaða hlut vildir þú helst eignast? „Ég vildi eiga Höfða og helst flytja þangað inn á morgun.“ Hverjir eru helstu veikleikar þínir? „Þeir eru nú eflaust þó nokkrir. Til dæmis mikil matarást og það hvað mér þykir leiðinlegt að fara að sofa á kvöldin og síðan að vakna þegar ég er loksins sofnaður." Er eitthvað í fari þínu sem þú ert sér- lega sáttur við? „Já, ég tel mig tiltölulega sanngjar- nan og víðsýnan og hafa sterka rétt- lætiskennd." En ósáttur? „Það hvað ég get verið tilætlunarsamur.“ Hver er ánægjulegasta stundin í lífi þínu? „Gleðilegasta stundin í lífi mínu var þegar ég eignaðist börnin mín tvö, Gest Kolbein og Birnu Hjaltalín. Þetta er eflaust ansi hefðbundið svar en engu að síður satt.“ Við hvað ertu hræddur? „Myrkrið, myrkraverk og Saddam Hussein.“D VOGIN Vogin er merki októbermánaðar (23. september til 22. októ- ber). Vogin er í eðli sínu opin og jákvæð. Hún er að öllu jöfnu róleg og þægileg í um- gengni en tekur samt sem áður frumkvæði, sérstaklega í málum er varða félagslega og hugmyndafræðilega þætti. Að sögn Gunn- laugs Guðmundssonar stjörnuspekings er skapferli vogarinnar best lýst með orðum eins og ljúf, þægileg, fáguð, kurteis og mild. Vogin er merki sam- vinnu. Hún á senni- lega erfiðara með að þola einveru en nokk- urt annað merki. Þörf hennar fyrir samstarf og yfirvegun gerir það að verkum að hún reynir að vera þægileg við alla. Vogin er rómantísk í ástum. Umhverfi ástarleikja þarf því að vera aðlaðandi. Kerta- ljós, tónlist, góður ilm- ur, fegurð og mýkt þurfa að vera til stað- ar. Þá skipta upp- byggilegar samræður einnig miklu. Vogin hefur sterka réttlætiskennd. Hún vill vera réttlát og taka mið af ólíkum sjónar- hornum áður en ákvörðun er tekin. Hún veltir því hverju máli vel og vandlega fyrir sér og er fyrir vik- ið oft lengi að taka ákvarðanir. Það þýðir lítið að ætla sér að reka á eftir voginni, hún þarf sinn tíma. Þekktir einstakling- ar fæddir í vogarmerk- inu: Friðrik Sóphus- son, Svava Jakobs- dóttir, Parísarbúarnir Albert Guðmundsson og Helga Björnsson, Jóhanna Sigurðardótt- ir, Kristín Halldórs- dóttir og John Lenn- on.D 26 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.