Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Blaðsíða 4
4 www.virk.is
S
TA
R
FS
E
N
D
U
R
H
Æ
FI
N
G
A
R
S
JÓ
Ð
U
R
samstarfi sínu við VIRK hafa um 70%
snúið aftur á vinnumarkað eða eru að
leita sér að starfi. Starfsemi VIRK er
fyrst og fremst fjárfesting í fólki sem felst
í því að gera því kleift að vera áfram á
vinnumarkaði þrátt fyrir áföll.
Mikil samstaða er um þróun starfsem-
innar meðal aðstandenda VIRK.
Þjónusta VIRK hefur bætt úr brýnni þörf
og einstaklingar fengið þjónustu sem þeir
áttu ekki kost á áður. Sá stuðningur hefur
hjálpað bæði þeim og samfélaginu öllu.
Mikið hefur verið rætt um fjölgun öryrkja
á undanförnum árum en samfélagið
hefur mátt þola stóraukinn kostnað vegna
hennar. Sú staðreynd að þjónusta eins og
VIRK veitir var ekki til staðar hefur án efa
haft sitt að segja um þessa miklu fjölgun
á undanförnum árum.
Næstu skref í uppbyggingu VIRK eru að
þróa markvisst þjónustu við einstaklinga
sem eru í langtímaveikindum en þó á
launaskrá hjá sínum vinnuveitanda og
uppbygging þjónustu við einstaklinga
sem eru að koma inn á örorkulífeyri hjá
lífeyrissjóðum. Ákveðið hefur verið að
setja af stað sérstakt þróunarverkefni
með völdum fyrirtækjum og stofnunum
Uppbygging VIRK, Starfsendurhæfingar-
sjóðs, hélt markvisst áfram á árinu 2010.
Ráðgjöfum fjölgaði og þjónustan jókst.
Mánaðarleg útgjöld þrefölduðust frá
upphafi til loka árs 2010 og áætlanir gera
ráð fyrir mikilli aukningu í starfseminni á
árinu 2011.
Starfsemi VIRK hefur þróast áfram í góðu
samræmi við væntingar aðstandenda
sjóðsins sem eru aðilar vinnumarkaðarins,
bæði í einkageiranum og hinum opinbera
geira. Fyrsti markhópurinn fyrir þjónustu
VIRK samanstóð af þeim einstakling-
um sem fengu veikindagreiðslur frá
sjúkrasjóðum stéttarfélaganna. Síðan
hefur VIRK í auknum mæli beint sjónum
að öðrum hópum, s.s. þeim sem eru á
veikindalaunum í langtímaveikindum
hjá fyrirtækjum og stofnunum. Þá hófst
samstarf við lífeyrissjóði á árinu 2010
en það mun verða fyrirferðarmeira í
starfseminni þegar lög um greiðsluþátt-
töku þeirra verða afgreidd.
Á stuttum starfstíma VIRK hefur strax
mátt merkja árangur af starfinu. Færri
hafa farið á örorku en áður og um 1700
einstaklingar hafa fengið þjónustu. Af
þeim 428 einstaklingum sem hafa lokið
Ávarp formanns
Vilhjálmur Egilsson formaður stjórnar VIRK
Starfsemi VIRK er fyrst og fremst
fjárfesting í fólki.“
vegna þjónustu við langtímaveika. Á
næstu 2–3 árum verður með faglegum
hætti leitað bestu lausna fyrir þennan
hóp um hvernig þróa megi uppbyggilegt
aðhald með fjarvistum, þjónustu og
endurkomu til vinnu. Á meðan á þessu
þróunarverkefni stendur og í framhaldi af
því munu aðstandendur VIRK og aðilar
vinnumarkaðarins, taka þátt og fylgjast
með og fjalla um hvort og hvernig þurfi
að aðlaga réttindakerfi vinnumarkaðarins
að þessu ferli þannig að það verði sem
árangursríkast.
Það er samfellt viðfangsefni að efla
vitneskju og vitund á vinnumarkaðnum
um VIRK bæði hjá stjórnendum og
starfsfólki fyrirtækja og stofnana. Að
þessu verður markvisst unnið á næstu
misserum þannig að sem flestir viti af
starfseminni og þeirri þjónustu sem
boðið er upp á. Almennt hefur starfsemi
VIRK verið vel tekið og mikilvægi hennar
viðurkennt. Miklu máli skiptir að fólk sem
þarf á þjónustu VIRK að halda fái hana
sem fyrst þegar þörfin verður til því að þá
eru mestar líkur á að árangur náist.