Ársrit um starfsendurhæfingu - 2011, Síða 35
35www.virk.is
RANNSÓKN
einstaklingar í öðrum hópum. Hlédrægni
eða tilhneiging til að draga sig í hlé var
hins vegar meiri meðal karla og mældist
staða yngri karla slökust að því leiti. Konur
upplifðu aftur á móti líkamlegan vanda í
ríkari mæli en karlar. Hegðunarvandi var
meira áberandi í yngri hóp og mældist
mestur hjá yngri körlum.
Sé litið sérstaklega á brottfallshópinn
(n=44) kom í ljós að sá hópur bjó við
meiri vanda en sá hópur sem hélt áfram
og lauk eða er að ljúka endurhæfingunni.
Munurinn á þessum hópum lá helst í meiri
hegðunarerfiðleikum brottfallshópsins
og þar vógu erfiðleikar yngri karla
þungt. Þannig var kynjahlutfallið í
brottfallshópnum frábrugðið kynja-
hlutfallinu í heildarhópnum. Karlar voru
46% brottfallshópsins, en aðeins 25%
þess hóps sem eftir stóð.
Fjárhagsleg staða og fátækt
Flestir þátttakendur áttu erfitt með
að ná endum saman, en litu þó ekki
á fjárhagslega fátækt sem sitt helsta
vandamál. Þeir sáu hins vegar fram
á bætta fjárhagsstöðu með tímanum
og voru bjartsýnni á framtíðina en fyrir
starfsendurhæfinguna.
Þátttakendur í símakönnun (n=53) voru
beðnir að meta á kvarðanum 1 til 10
hversu ánægðir eða óánægðir þeir væru
með fjárhagsafkomu sína (sjá mynd
2). Tíðasta gildið var 5, sem gefur til
kynna að þeir væru hvorki ánægðir né
óánægðir. Meðaltalið var nær óánægju
en ánægju eða 4,55. Rúmur helmingur
sagði tekjur sínar vera svipaðar fyrir og
eftir starfsendurhæfingu. Tæp 30%
sögðu tekjurnar hafa minnkað og tæp
15% sögðu tekjurnar hafa aukist eftir að
starfsendurhæfingu lauk.
Sé nánar litið til tekna fyrir og eftir
starfsendurhæfingu meðal þátttakenda í
SN sem tóku þátt í símakönnun, kom í
ljós að það fjölgaði í hópi þeirra sem þáðu
laun frá vinnuveitanda, fór úr 26% í tæp
40%. Sömuleiðis fjölgaði í hópi þeirra
sem þáðu örorkulífeyri, fór úr 17% í
42% og þáðu lífeyrissjóðsgreiðslur, fór úr
12% fyrir starfsendurhæfingu í 21% eftir
hana. Á móti kemur að það fækkaði í hópi
þeirra sem fengu atvinnuleysisbætur,
framfærslu frá maka og/eða fjölskyldu
og enginn svarenda sem hafði lokið
starfsendurhæfingu fékk fjárhagsaðstoð
frá sveitarfélagi. Niðurstöðuna má sjá á
mynd 3.
Félagsleg einangrun og virkni
Í símakönnuninni (n=53) sögðu
rúm 60% að félagsleg einangrun
þeirra hafi minnkað við þátttöku í
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
26
39
21
27
19
9
17
42
14
6
12
21
10
0
6
0
6
9 9
0
Mynd 2. Samanburður á tekjuöflun þátttakenda fyrir og eftir þátttöku í SN (hægt var að merkja við fleiri en einn svarmöguleika)
La
un
fr
á v
inn
uv
eit
an
da
En
du
rh
æf
ing
ar
líf
ey
rir
At
vin
nu
ley
sis
bæ
tur
Ör
or
ku
líf
ey
rir
Fra
mf
ær
sla
fr
á f
jöl
sk
yld
u
Líf
ey
ris
sjó
ðs
gr
eið
slu
r
Da
gp
en
ing
ar
fr
á s
júk
ra
sjó
ði
Að
ra
r t
ek
jur
Fjá
rh
ag
sa
ðs
toð
fr
á s
v.f
él.
Te
kju
r a
f e
igi
n a
tvi
nn
ur
ek
str
i
Tekjuöflun fyrir starfsendurhæfingu Tekjuöflun 6+ mánuðum eftir lok starfsendurhæfingar