Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
109.995
SÉRTILBOÐ Í NÓVEMBER & DESEMBER
GranCanaria
20. nóvember í 7 nætur
Turbo Club Apartmentsaaa
ALLT INNIFALIÐ
SÍÐAN 1969
FLOTTUSTU BÚNINGARNIR
ÞÍNAR SÉR ÓSKIR UM FJÖLBREYTTA
FRAMLEIÐSLU EÐAMERKINGAR
846 BLS BÆKLINGUR Á HEIMASÍÐUNNI HENSON.IS
TIL MERKINGA EÐA EKKI
SENNILEGA FJÖLHÆFASTI FATAFRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI
ÍSLANDS ÞÓVÍÐARVÆRI LEITAÐ!
Brautarholti 24 · 105 Reykjavík · S.: 562 6464 · henson@henson.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Vettvangsrannsóknin á Landssíma-
reitnum í miðbæ Reykjavíkur sem
fram fór 2016-2018 leiddi í ljós
mannvist og mannvirki allt frá
fyrstu tíð Íslandsbyggðar til okkar
daga. Þetta kemur fram í lokaorðum
áfangaskýrslu sem Vala Garðars-
dóttir, fornleifafræðingur og stjórn-
andi rannsóknarinnar, hefur sent
Minjastofnun.
Úrvinnslu er ekki lokið og munu
ítarlegri niðurstöður, greiningar og
túlkanir birtast í lokaskýrslu. Stefnt
er að því að birta lokaniðurstöður í
riti í lok ársins 2021.
Óhefðbundinn uppgröftur
Í inngangi segir að uppgröfturinn
hafi verið að mörgu leyti óhefðbund-
inn og miklar tafir orðið vegna ófyr-
irséðra þátta. Mikil umræða skap-
aðist um rannsóknina í fjölmiðlum á
þessum tíma. Verkið náði yfir tæp-
lega þriggja ára tímabil og störfuðu
tólf manns við uppgröftinn.
Landssímareiturinn er alls tæp-
lega 2.000 fermetrar að flatarmáli
og voru grafnir upp um 2.600 rúm-
metrar. Þar eð um þéttbýlisupp-
gröft var að ræða var grafið á af-
mörkuðu svæði og var grafið niður á
náttúruleg jarðlög þar sem enga
mannvist var lengur að finna, það er
niður á forsöguleg jarðlög.
Þarna fundust mannvistarlög,
garðlög, torfveggir frá landnámi,
eldstæði og hleðslur frá miðöldum,
leifar af mannvirki frá tímum Inn-
réttinganna á 18. öld, brotakenndar
leifar af húsum Schierbecks land-
læknis en umfangsmestar voru leif-
ar af kirkjugarðinum Víkurgarði.
Ætla má að jarðneskar leifar þrjátíu
kynslóða Reykvíkinga hvíli í garð-
inum.
Alls voru greind ellefu mannvirki
og 38 grafir við fornleifarannsókn-
ina. Mannvirkin voru af ýmsum
stærðum og gerðum og allt frá land-
námi og fram á fyrri hluta 20. aldar í
bland við yngri minjar sem ekki telj-
ast til fornleifa samkvæmt 100 ára
reglunni sem gildir um fornleifar í
landinu. Erfitt var að greina hlut-
verk og aldur margra mannvirkj-
anna vegna seinni tíma rasks.
Ýmsar framkvæmdir hafa verið
þarna eftir að kirkjugarðurinn var
aflagður. Fjölda grafa var raskað
við þær framkvæmdir, sérstaklega
vegna lagnavinnu og var allt svæðið
sundurskorið eftir þær.
Fjölbreytt mannlíf
Fundanúmer voru 134 en fjöldi
gripa var meiri. Grisjað var á staðn-
um og ekki teknir gripir úr hreyfð-
um jarðlögum nema sérstök ástæða
væri til. Búið er að skila öllum grip-
um og sýnum til Þjóðminjasafns Ís-
lands og hafa allir gripir verið
skráðir í Sarp, gagnagrunn Þjóð-
minjasafns Íslands.
„Umfang þeirra minja sem rann-
sakaðar voru gefur til kynna fjöl-
breytt mannlíf og ríka verkmenn-
ingu í Kvosinni. Þrátt fyrir að flest
ef ekki öll mannvirkin hafi verið
sundurskorin af framkvæmdum í ár-
anna rás má sjá brotakennda mynd
af mannvirkjum og mannlífi í
Reykjavík á liðnum öldum,“ segir
m.a. í skýrslunni.
Mynd frá liðnum öldum kom í ljós
Áfangaskýrsla um Landssímareit Umfang minja gefur til kynna fjölbreytt mannlíf og verkmenningu
Morgunblaðið/Hari
Mótmæli Margir mótmæltu því að hótel yrði byggt í Víkurgarði. Fornleifarannsókn var gerð á svæðinu og nú
liggur áfangaskýrsla um hana fyrir. Stefnt er að því að birta lokaniðurstöður rannsóknanna í riti í lok ársins 2021.
Friðarsúlan í Viðey var tendruð í gærkvöldi, á afmælis-
degi John Lennon, eins og gert hefur verið í þrettán ár.
Friðarsúlan mun lýsa til 8. desember, sem er dánar-
dægur Lennons. Súlan er hugarfóstur Yoko Ono lista-
manns og er hugsuð sem leiðarljós fyrir heimsfrið.
Kveikt var á ljósinu klukkan átta í gærkvöldi við at-
höfn í Viðey og var lagið Imagine leikið undir eins og
venja er. Yoko Ono var ekki viðstödd að þessu sinni.
Árleg athöfn í Viðey
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Friðarsúlan lýsir upp kvöldhimininn
Tveir af þremur fulltrúum í skipu-
lagsnefnd Reykhólahrepps leggja
til við sveitarstjórn að fallið verði
frá því að setja Teigsskógarleið á
aðalskipulag hreppsins, eins og
unnið hefur verið að. Þess í stað
verði farin leið sem tengi Reykhóla-
þorpið við Vestfjarðaveg. Full-
trúarnir halda sig við fyrri afstöðu
en þeir urðu undir þegar meirihluti
sveitarstjórnar ákvað að fara
Teigsskógarleiðina. Afgreiða á
skipulagstillöguna í sveitarstjórn í
næstu viku. Verði hún samþykkt
getur Vegagerðin sótt um fram-
kvæmdaleyfi.
Vilja falla frá áformum um Teigsskógarleið