Morgunblaðið - 10.10.2019, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
miðaldra sem kannski hafa efni á
þessu. Björgunarsveitirnar fá niður-
fellingu á ýmsum gjöldum, sem
hjálpar þeim að láta breyta,“ sagði
Tryggvi.
Minni vélar – minni losun
Bílaframleiðendur hafa lagað sig
að hertum mengunarkröfum með
vélum sem losa minna. Vörugjöld af
ökutækjum taka einnig mið af losun.
„Mér finnst þetta vera afturför á
vissan hátt. Það sparast ekkert endi-
lega í eyðslu með minni vélum.
Stærri vélarnar vinna léttar. Fram-
leiðendur hafa sett 8-10 gíra fjöl-
skiptigírkassa til að vega þetta upp
en vélin er jafn lítil fyrir það. Lítið
breyttir eða óbreyttir jeppar standa
þó alveg fyrir sínu þótt vélarnar hafi
minnkað,“ sagði Tryggvi.
sagði Tryggvi. Hann er í Ferða-
klúbbnum 4X4 og Útivist og var um
tíma fararstjóri hjá þeim í jeppa-
ferðum. „Ég fer mikið á fjöll þótt ég
sé farinn að velja betra veður eftir
öll þessi ár. Áður fyrr fór maður í öll-
um veðrum,“ sagði Tryggvi.
Stórar breytingar eru dýrar
Mjög hefur dregið úr því að menn
láti gera stórar breytingar á jeppum
sínum. Tryggvi segir að það séu
helst björgunarsveitir sem láti gera
það í dag. Hann er nýbúinn að
breyta Land Cruiser 150-jeppa fyrir
42 tommu dekk fyrir björgunarsveit.
En hvað hefur breyst?
„Ætli þetta sé ekki orðið svo dýrt?
Ungir strákar sem nenna því helst
að fara á fjöll kaupa sér gamla bíla
til að komast. Svo eru einhverjir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Toyota Land Cruiser-jeppinn hefur
lengi verið mikils metinn á Íslandi og
draumabíll margra sem þurfa að
komast leiðar sinnar við misjafnar
aðstæður. Tryggvi V. Traustason,
framkvæmdastjóri Stýrivélaþjónust-
unnar, hefur verið tryggur eigandi
Land Cruiser frá 2001. Sá nýjasti í
hans eigu verður á sögusýningu hjá
Toyota í Kauptúni í Garðabæ á
laugardaginn kemur.
„Ég er búinn að eiga þá marga og
á tvo Land Cruiser eins og er,“ sagði
Tryggvi. „Ég á tæplega ársgamlan
Land Cruiser 150 á 35 tommu dekkj-
um sem er á sýningunni. Svo á ég
fjallajeppa, Land Cruiser 100 á 46
tommu dekkjum.“ En hvað er hann
búinn að eiga marga Land Cruisera?
Níu Land Cruiser-bílar
„Ég er búinn að eiga 80-gerðina,
90-gerðina, þrjá af 100-gerðinni, 120-
gerðina, 150-gerðina og tvo 200--
Cruisera, samtals níu bíla. Svo hef
ég átt tvo Toyota Hilux þar að auki.
Ég hef endurnýjað á nokkurra ára
fresti, oft þegar kemur nýtt útlit eða
breyttur búnaður,“ sagði Tryggvi.
„Fyrsti Cruiserinn minn var af 90-
gerðinni og ég keypti hann nýjan ár-
ið 2001. Land Cruiser-bílar hafa
reynst mér alveg gríðarlega vel.
Þetta eru traustir og sterkbyggðir
jeppar með háu og lágu drifi, mögu-
leikum sem við jeppakallar viljum
hafa. Það er gott að hafa lága drifið
og læsingarnar, til dæmis þegar
maður fer yfir ár. Ég er líka ánægð-
ur með strákana í þjónustunni hjá
umboðinu þá sjaldan eitthvað hefur
komið upp á. Ég er vélvirki og hef
séð um bílana að mestu leyti sjálfur,
en ef eitthvað hefur komið upp á hef-
ur þjónustan verið prýðileg.“
Tryggvi segir að hann hafi stundum
hlaupið út undan sér og prófað aðrar
sortir með Toyotunum, en alltaf
haldið tryggð við Land Cruiser.
Fæst við jeppabreytingar
Fyrirtæki Tryggva, Stýrivéla-
þjónustan, fæst meðal annars við
jeppabreytingar og selur ýmsan
búnað í fjallajeppa.
„Þetta spannst út frá jeppadell-
unni minni og svo spurðist þetta út.
Þetta er ekki mín aðalvinna en við
erum með tvær lyftur og erum svo-
lítið í breytingum, litlum og stórum.
Fjallajeppar eru með aukalæsingar
og aukamillikassa sem kallaður er
skriðgír og úrhleypibúnaði fyrir
dekkin. Þetta hefur bara gengið vel,“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jeppaeigandi Tryggvi V. Traustason við Land Cruiser 150-jeppann. Hann verður á sögusýningu Land Cruiser.
Tryggur eigandi
Land Cruiser í 18 ár
Hefur átt níu Land Cruiser-bíla og á nú tvo af þeirri gerð
Ljósmynd/Arnór Snær Þorsteinsson
Fjallajeppi Land Cruiser 100-bíll Tryggva brunar á 46 tommu dekkjum.
Tíu milljónasti Toyota Land Cruis-
er-jeppinn rann af færibandinu
hinn 31. ágúst síðastliðinn. Af því
tilefni er efnt til Sögusýningar
Land Cruiser laugardaginn 12.
október hjá Toyota í Kauptúni.
Frá því að fyrstu Land Cruiser-
bílarnir komu til Íslands hafa
12.779 bílar af þeirri tegund verið
skráðir hér. Það vekur athygli að af
þeim eru 10.719 enn í notkun eða
84% af öllum Land Cruiser-bílum
sem hafa verið skráðir á Íslandi.
Land Cruiser hefur lengi verið einn
vinsælasti bíllinn á Íslandi enda er
hann útbúinn til að takast á við
krefjandi aðstæður og erfið skil-
yrði eins og oft mæta okkur Ís-
lendingum.
Fyrsti bíllinn í Land Cruiser-
fjölskyldunni leit dagsins ljós 1.
ágúst 1951 og hét Jeep BJ. Hann
var smíðaður fyrir Japansmarkað.
Útflutningur hófst með tilkomu
Land Cruiser 20 fjórum árum síð-
ar. Fyrst voru 100 bílar fluttir út á
ári en 1965 voru þeir orðnir
100.000. Um 400.000 Land Cruis-
er-bílar eru nú seldir á hverju ári í
170 löndum.
Tíu milljón Land Cruiser-bílar
SÖGUSÝNING TOYOTA LAND CRUISER NÆSTA LAUGARDAG
Bílaviðgerðir
Almennar
bílaviðgerðir
fyrir
tegundir bíla
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
HELGARFERÐ
Frá kr.
69.995
Ljubljana
Ve
rð
ám
an
nm
.v.
23
.jú
ní
áH
ote
lR
oc
M
ar
be
lla
Pa
rk
25. OKTÓBER
3 NÆTUR
595 1000
Flug frá kr.
39.950 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri
Félag prófessora kom saman til
fundar í vikunni og samþykkti
ályktun þar sem átalinn er harð-
lega „seinagangur og ósveigjan-
leiki ríkisins“ í samningaviðræðum
við aðildarfélög BHM almennt og
Félag prófessora við ríkisháskóla
sérstaklega.
Bendir félagið á að eftir meira
en sex mánaða samningalotu sé
enn langt í land varðandi frágang
kjarasamnings.
„Háskólastarfseminni í landinu
er brýn nauðsyn að geta boðið pró-
fessorum samkeppnishæf launa-
kjör. Í því sambandi verður að
tryggja eðlilega launaþróun pró-
fessora í samræmi við stöðu
þeirra, ábyrgð og árangur í starfi.
Fundurinn krefst þess að samn-
inganefnd ríkisins bregðist án
frekari tafa og með viðunandi
hætti við sanngjörnum kröfum fé-
lagsins í yfirstandandi kjarasamn-
ingsviðræðum,“ segir í ályktun
prófessoranna.
Prófessorar átelja seinagang viðræðna
Prófessorar Fjölmargir starfa við HÍ.