Morgunblaðið - 10.10.2019, Page 24

Morgunblaðið - 10.10.2019, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019 miðaldra sem kannski hafa efni á þessu. Björgunarsveitirnar fá niður- fellingu á ýmsum gjöldum, sem hjálpar þeim að láta breyta,“ sagði Tryggvi. Minni vélar – minni losun Bílaframleiðendur hafa lagað sig að hertum mengunarkröfum með vélum sem losa minna. Vörugjöld af ökutækjum taka einnig mið af losun. „Mér finnst þetta vera afturför á vissan hátt. Það sparast ekkert endi- lega í eyðslu með minni vélum. Stærri vélarnar vinna léttar. Fram- leiðendur hafa sett 8-10 gíra fjöl- skiptigírkassa til að vega þetta upp en vélin er jafn lítil fyrir það. Lítið breyttir eða óbreyttir jeppar standa þó alveg fyrir sínu þótt vélarnar hafi minnkað,“ sagði Tryggvi. sagði Tryggvi. Hann er í Ferða- klúbbnum 4X4 og Útivist og var um tíma fararstjóri hjá þeim í jeppa- ferðum. „Ég fer mikið á fjöll þótt ég sé farinn að velja betra veður eftir öll þessi ár. Áður fyrr fór maður í öll- um veðrum,“ sagði Tryggvi. Stórar breytingar eru dýrar Mjög hefur dregið úr því að menn láti gera stórar breytingar á jeppum sínum. Tryggvi segir að það séu helst björgunarsveitir sem láti gera það í dag. Hann er nýbúinn að breyta Land Cruiser 150-jeppa fyrir 42 tommu dekk fyrir björgunarsveit. En hvað hefur breyst? „Ætli þetta sé ekki orðið svo dýrt? Ungir strákar sem nenna því helst að fara á fjöll kaupa sér gamla bíla til að komast. Svo eru einhverjir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Toyota Land Cruiser-jeppinn hefur lengi verið mikils metinn á Íslandi og draumabíll margra sem þurfa að komast leiðar sinnar við misjafnar aðstæður. Tryggvi V. Traustason, framkvæmdastjóri Stýrivélaþjónust- unnar, hefur verið tryggur eigandi Land Cruiser frá 2001. Sá nýjasti í hans eigu verður á sögusýningu hjá Toyota í Kauptúni í Garðabæ á laugardaginn kemur. „Ég er búinn að eiga þá marga og á tvo Land Cruiser eins og er,“ sagði Tryggvi. „Ég á tæplega ársgamlan Land Cruiser 150 á 35 tommu dekkj- um sem er á sýningunni. Svo á ég fjallajeppa, Land Cruiser 100 á 46 tommu dekkjum.“ En hvað er hann búinn að eiga marga Land Cruisera? Níu Land Cruiser-bílar „Ég er búinn að eiga 80-gerðina, 90-gerðina, þrjá af 100-gerðinni, 120- gerðina, 150-gerðina og tvo 200-- Cruisera, samtals níu bíla. Svo hef ég átt tvo Toyota Hilux þar að auki. Ég hef endurnýjað á nokkurra ára fresti, oft þegar kemur nýtt útlit eða breyttur búnaður,“ sagði Tryggvi. „Fyrsti Cruiserinn minn var af 90- gerðinni og ég keypti hann nýjan ár- ið 2001. Land Cruiser-bílar hafa reynst mér alveg gríðarlega vel. Þetta eru traustir og sterkbyggðir jeppar með háu og lágu drifi, mögu- leikum sem við jeppakallar viljum hafa. Það er gott að hafa lága drifið og læsingarnar, til dæmis þegar maður fer yfir ár. Ég er líka ánægð- ur með strákana í þjónustunni hjá umboðinu þá sjaldan eitthvað hefur komið upp á. Ég er vélvirki og hef séð um bílana að mestu leyti sjálfur, en ef eitthvað hefur komið upp á hef- ur þjónustan verið prýðileg.“ Tryggvi segir að hann hafi stundum hlaupið út undan sér og prófað aðrar sortir með Toyotunum, en alltaf haldið tryggð við Land Cruiser. Fæst við jeppabreytingar Fyrirtæki Tryggva, Stýrivéla- þjónustan, fæst meðal annars við jeppabreytingar og selur ýmsan búnað í fjallajeppa. „Þetta spannst út frá jeppadell- unni minni og svo spurðist þetta út. Þetta er ekki mín aðalvinna en við erum með tvær lyftur og erum svo- lítið í breytingum, litlum og stórum. Fjallajeppar eru með aukalæsingar og aukamillikassa sem kallaður er skriðgír og úrhleypibúnaði fyrir dekkin. Þetta hefur bara gengið vel,“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Jeppaeigandi Tryggvi V. Traustason við Land Cruiser 150-jeppann. Hann verður á sögusýningu Land Cruiser. Tryggur eigandi Land Cruiser í 18 ár  Hefur átt níu Land Cruiser-bíla og á nú tvo af þeirri gerð Ljósmynd/Arnór Snær Þorsteinsson Fjallajeppi Land Cruiser 100-bíll Tryggva brunar á 46 tommu dekkjum. Tíu milljónasti Toyota Land Cruis- er-jeppinn rann af færibandinu hinn 31. ágúst síðastliðinn. Af því tilefni er efnt til Sögusýningar Land Cruiser laugardaginn 12. október hjá Toyota í Kauptúni. Frá því að fyrstu Land Cruiser- bílarnir komu til Íslands hafa 12.779 bílar af þeirri tegund verið skráðir hér. Það vekur athygli að af þeim eru 10.719 enn í notkun eða 84% af öllum Land Cruiser-bílum sem hafa verið skráðir á Íslandi. Land Cruiser hefur lengi verið einn vinsælasti bíllinn á Íslandi enda er hann útbúinn til að takast á við krefjandi aðstæður og erfið skil- yrði eins og oft mæta okkur Ís- lendingum. Fyrsti bíllinn í Land Cruiser- fjölskyldunni leit dagsins ljós 1. ágúst 1951 og hét Jeep BJ. Hann var smíðaður fyrir Japansmarkað. Útflutningur hófst með tilkomu Land Cruiser 20 fjórum árum síð- ar. Fyrst voru 100 bílar fluttir út á ári en 1965 voru þeir orðnir 100.000. Um 400.000 Land Cruis- er-bílar eru nú seldir á hverju ári í 170 löndum. Tíu milljón Land Cruiser-bílar SÖGUSÝNING TOYOTA LAND CRUISER NÆSTA LAUGARDAG Bílaviðgerðir Almennar bílaviðgerðir fyrir tegundir bíla Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is SAMEINUÐ GÆÐI Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. HELGARFERÐ Frá kr. 69.995 Ljubljana Ve rð ám an nm .v. 23 .jú ní áH ote lR oc M ar be lla Pa rk 25. OKTÓBER 3 NÆTUR 595 1000 Flug frá kr. 39.950 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri Félag prófessora kom saman til fundar í vikunni og samþykkti ályktun þar sem átalinn er harð- lega „seinagangur og ósveigjan- leiki ríkisins“ í samningaviðræðum við aðildarfélög BHM almennt og Félag prófessora við ríkisháskóla sérstaklega. Bendir félagið á að eftir meira en sex mánaða samningalotu sé enn langt í land varðandi frágang kjarasamnings. „Háskólastarfseminni í landinu er brýn nauðsyn að geta boðið pró- fessorum samkeppnishæf launa- kjör. Í því sambandi verður að tryggja eðlilega launaþróun pró- fessora í samræmi við stöðu þeirra, ábyrgð og árangur í starfi. Fundurinn krefst þess að samn- inganefnd ríkisins bregðist án frekari tafa og með viðunandi hætti við sanngjörnum kröfum fé- lagsins í yfirstandandi kjarasamn- ingsviðræðum,“ segir í ályktun prófessoranna. Prófessorar átelja seinagang viðræðna Prófessorar Fjölmargir starfa við HÍ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.