Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 33
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Góður undirbúningur skiptir öllu máli
Félagsmenn VR og atvinnurekendur þurfa að komast að samkomulagi um
útfærslu styttingarinnar fyrir 1. desember. Ef ekkert samkomulag er gert styttist
vinnudagurinn sjálfkrafa um 9 mínútur.
Kynntu þér mögulegar útfærslur á vr.is/9min
Á DAG
Á VIKU
ÁMÁNUÐI3 51
54
9
Ásýnd hverfisins haldist
Í tillögunum segir að mikilvægt
sé að komið verði í veg fyrir að
menningarminjar á svæðinu glatist
vegna framkvæmda við ný mann-
virki en jafnframt lögð áhersla á að
húseigendur haldi sem mestu af því
athafnafrelsi sem mótað hefur svip-
mót byggðarinnar. Þannig geti ný
mannvirki orðið til þess að fram-
lengja og bæta við hefð byggðar-
innar ef þess er gætt að stærðar-
hlutföll bygginga verði hófstillt.
Lagt er til að komið verði í veg
fyrir frekari skemmdir á hlöðnum
görðum og stuðlað að endurhleðslu.
Stuðlað verði að vernd fornminja.
Ekki eru gerðar kröfur um að not-
að verði sama byggingarefni í fram-
tíðinni og nú einkennir byggðina en
lagt til að áform um allar fram-
kvæmdir verði skoðuð rækilega til
þess að þau hafi ekki áhrif á ásýnd
hverfisins. Þá verði sögu hverfisins
gert hátt undir höfði, meðal annars
með göngustígum og söguskiltum.
Margbreytileiki Fjölbreytni er í húsagerð í hverfinu, bæði íbúðarhúsa, kofa og annarra útihúsa. Svo mun verða
áfram, þrátt fyrir verndun. Sum húsin er búið að gera upp en önnur bíða lagfæringa.
Morgunblaðið/Eggert
Bryggjan Hverfin í Grindavík byggðust á aðgengi að gjöfulum fiskimiðum.
„Það er gott fyrir sveitamann eins og mig að búa hér. Maður býr úti í sveit
en samt inni í bæ,“ segir Páll Jóhann Pálsson, útgerðarmaður og fyrrver-
andi alþingismaður, en hann býr í Stafholti í Þórkötlustaðahverfi. Hann
viðurkennir að sveitin og sjórinn hafi togast á í sér alveg frá því hann
man eftir sér.
Páll Jóhann segir að sér lítist ágætlega á tillögur um að gera hverfið að
verndarsvæði og veit ekki annað en að það sama gildi um flesta aðra
íbúa.
Hann segir að vissulega verði hlaðnir garðar betur friðaðir og sama
gildi um fleiri minjar. Á móti komi að líkur séu á því að ný hús verði byggð
í gamla stílnum og passi því inn í umhverfið. „Fólk er hrætt við að hér rísi
nýtísku hús, blokkir eða hótel og vill forðast það,“ segir hann.
Hann segir að tækifæri felist í því að varðveita hverfið. Það þyki sér-
stakt að búa á þessum gömlu bæjum með góðar landspildur í kring.
Öll húsin í Þórkötlustaðahverfi hafa sín heiti, eins og Þórkötlustaðir,
Stafholt, Bjarmaland, Heimaland, Buðlunga og Auðsholt. Parhús er þar
og ber hvor helmingur þess sitt nafn, annar heitir Klöpp og hinn Teigur.
„Nei, það held ég nú ekki. Við fáum að þróast,“ segir Páll Jóhann þegar
hann er spurður hvort íbúarnir verði friðaðir. Hann bætir því við að þeir
hafi fengið ágætis kynningu á þessum hugmyndum. Þar hafi komið fram
að ekki væri ætlunin að hamla gegn því að eitthvað verði framkvæmt,
bara að það verði í gamla stílnum.
Gott fyrir sveitamann
PÁLL JÓHANN Í STAFHOLTI
Sjór og sveit Páll Jóhann Pálsson hefur alltaf taugar til sveitarinnar.