Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Dönsk hönnun
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Í tilefni 100 ára afmælis KitchenAid
fór þessi glæsilega risahrærivél í
heimsreisu og stoppar nú í október
á Íslandi. Vélin verður til sýnis á
blómatorginu á 1. hæð Kringlunnar
út október og getur fólk á staðnum
tekið þátt í skemmtilegum leik og
átt þess kost að vinna sína eigin
KitchenAid-hrærivél í hefðbund-
inni stærð.
Að sögn forsvarsmanna Kitchen-
Aid hér á landi er það einstakt að
Ísland hafi fengið tækifæri til þess
að sýna þessa eintöku vél en hún
hefur meðal annars ferðast til
London og Kína. Það sé mikil
ánægja með heimsóknina og fólk
hvatt til að gera sér ferð í Kringl-
una og sjá gripinn með eigin
augum.
Fyrsta KitchenAid-hrærivélin
kom á markað árið 1919 og því eru
100 ár síðan fyrsta KitchenAid-
vélin leit dagsins ljós. Síðan
KitchenAid-vörur urðu fyrst fáan-
legar hér á landi hafa Íslendingar
haldið mikið upp á hrærivélarnar
og því sérlega viðeigandi að risa-
vélin skuli hafa gert sér ferð hingað
til lands.
Morgunblaðið/Hari
Risahrærivél í Kringlunni
Undanfarin misseri hafa er-
lendir miðlar á borð við
Vogue, World of Interiors og
GQ sýnt hönnun hennar mik-
inn áhuga. „Ég er auðvitað
upp með mér yfir athyglinni
sem bollarnir hafa verið að fá
og hún staðfestir það að þessi
hönnun er svo sannarlega
tímalaus, enda spannar saga
bollanna að verða 30 ár.“
Inga Elín gekk einnig ný-
verið til liðs við Icelandair og
má því nú í fyrsta sinn í sögu
ferils Ingu Elínar nálgast
þessa fallegu hönnun um borð
í Icelandair-vélunum. Um er
að ræða tvær sérhannaðar út-
gáfur af veltibollunum sem
margir hverjir hafa safnað
um árabil. Inga Elín segir af-
ar ánægjulegt að hönnun sín
sé nú aðgengileg með þessum hætti bæði fyrir Ís-
lendinga sem og erlenda ferðamenn sem oft á tíðum
vilja taka eitthvað íslenskt og eigulegt með sér til
heimalandsins.
Veltibollar Ingu
Elínar í VOGUE
Þeir sem drukkið hafa úr veltibollum Ingu Elínar vita að þeir gera gott kaffi einfald-
lega betra. Bollarnir eru handgerðir úr postulíni og því engir tveir bollar eins. Inga,
sem er án efa einn farsælasti listamaður landsins, fagnar fimmtíu ára starfsafmæli
sínu á næsta ári og er óhætt að segja að frægðarsól hennar hafi aldrei skinið skærar.
Vönduð velta Þeir sem hafa drukkið úr veltibollum Ingu
Elínar vita að þeir gera gott kaffi einfaldlega betra.
Einstök hönnun Bollarnir eru handgerðir úr postulíni og því eru engir tveir bollar eins.
Vinsæl Inga Elín hefur starfað sem listamaður í 49 ár og hafa kaffibollarnir alltaf verið vinsælasta verk hennar.