Morgunblaðið - 10.10.2019, Blaðsíða 62
Ísland vaknar Ásgeir Páll, Kristín Sif og Jón Axel eru stjórnendur þáttarins.
„Það að fá Ísland vaknar til okkar í
Vogue fyrir heimilið í beina útsend-
ingu var algjört æði, enda eru þau
algjörir snillingar. Hér var mikið
fjör og vonandi náðum við að leyfa
þeim að upplifa útvarp pínulítið
öðruvísi enda sendu þau beint út úr
Ergomotion-rúmum,“ segir Steinn
Kári Ragnarsson hjá Vogue búð-
inni. Ísland vaknar-teymið var líka
ánægt með að fá að senda þáttinn út
uppi í rúmi. „Þetta var ótrúlega
gaman. Ekkert okkar hefur áður
sent út úr rúmi þó að ýmislegt hafi
verið prófað í gegnum tíðina. Við
vorum heppin og fengum frábær
rúm að liggja í, gátum lyft bakinu
og komið okkur vel fyrir,“ sagði Jón
Axel sem hefur marga fjöruna sopið
í útvarpi. „Við vorum einmitt að
ræða það eftir á að við gætum alveg
vanist þessu og spurning um að
koma sér bara upp búnaði heima og
senda bara út úr rúminu,“ bætti Ás-
geir Páll við en hann stjórnaði út-
sendingunni úr Vogue búðinni og
hafði veg og vanda af því að allt skil-
aði sér til hlustenda.
Íslandsmót í hrotum
Samhliða útsendingunni var stað-
ið fyrir Íslandsmótinu í hrotum þar
sem hlustendum gafst kostur á að
senda hroturnar sínar, maka eða
annarra fjölskyldumeðlima eða vina
inn og freista þess að vinna Ergo-
motion-rúm frá Vogue búðinni að
verðmæti vel yfir 600.000 kr. „Inn-
sendingar fóru fram úr björtustu
vonum og það var mikil vinna að
fara í gegnum allar hroturnar, en að
lokum stóðu mjög óvenjulegar hrot-
ur Kára Þorleifssonar uppi sem
sigurvegari,“ segir Ásgeir Páll, sem
hefur legið yfir upptökum af hrotum
undanfarnar vikur.
Kári kom í Vogue búðina í vik-
unni og fékk nýja rúmið afhent og
var hann að vonum ánægður með
þennan glæsilega vinning og sömu-
leiðis með titilinn, að vera Íslands-
meistari í hrotum. „Tilfinningin að
vera Íslandsmeistari í hrotum er
yndisleg, loksins borgaði það sig að
hrjóta svona,“ segir Kári sem
skammast sín ekkert fyrir að hrjóta.
„Ég sé ekki eftir neinu. Ég sendi
upptökuna inn sjálfur, það er ekkert
feimnismál hjá mér að ég hrjóti,“
bætti Kári við sem sagðist að-
spurður jafnvel vera til í að taka
þátt í hrotukeppni á víðari vett-
vangi, t.d. á heimsmeistaramóti.
Hrotubanarúm á leiðinni
Steinn Kári er stoltur af Ergomo-
tion-rúmunum sem Kári fékk í vinn-
ing. „Ergomotion eru stillanleg
heilsurúm sem geta gert svefngæði
þín meiri, með öllum þeim mögu-
leikum sem þau bjóða upp á. Hægt
er að fá allt frá mjög einföldum
vönduðum og góðum rúmum yfir í
stillanleg rúm sem gera allt sem
hugurinn girnist og meira til,“ segir
Steinn sem er svo að fá spennandi
nýjung á nýju ári fyrir þá sem
hrjóta. „Væntanlegt á nýju ári er
rúm frá Ergomotion með „hrotu-
bana“, rúmið hlustar á þig sofa, að-
stoðar þig við að hrjóta ekki, mælir
svefninn þinn, gæði hans og fleira
og fleira,“ segir Steinn og er ljóst að
hrjótarar þessa lands geta látið sig
hlakka til.
Bein útsending uppi í rúmi
Það var mikið líf í morgunþætti K100, Ísland vakn-
ar, í síðustu viku þegar þátturinn var sendur beint
út úr Vogue búðinni. Þau Ásgeir Páll, Jón Axel og
Kristín Sif hlömmuðu sér upp í Ergomotion-rúm og
sendu þáttinn beint út úr rúminu í náttfötum.
Reynsluboltar Ásgeir Páll og Jón Axel hafa prófað ýmislegt, en aldrei áður að senda útvarpsþátt beint úr rúminu!
Ergomotion Kári mátar rúmið ásamt kærustunni sinni Evelínu sem greini-
lega er bjartsýn á betri svefn í nýju rúmi og kannski minni hrotur.
Gleði Það er alltaf gaman þar sem K100 er, í rúminu sem annars staðar.
Hrotuplástur Jón Axel prófaði plástur í beinni sem á að draga úr hrotum.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
Reykjavik Raincoats
LAUGAVEGUR 62, 101 RVK
www.reykjavikraincoats.com
info@reykjavikraincoats.com
Sími: 5711177