Morgunblaðið - 10.10.2019, Síða 69
ÍÞRÓTTIR 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2019
HANDBOLTI
Olísdeild karla
ÍBV – Selfoss ........................................ 29:30
Haukar – FH ........................................ 29:29
Staðan:
ÍR 5 5 0 0 160:133 10
Haukar 5 4 1 0 130:118 9
ÍBV 5 4 0 1 136:124 8
Afturelding 5 4 0 1 133:122 8
Selfoss 5 3 1 1 146:146 7
FH 5 2 1 2 132:131 5
KA 5 2 0 3 137:136 4
Valur 5 1 1 3 120:120 3
Fjölnir 5 1 1 3 127:143 3
Fram 5 1 0 4 111:121 2
Stjarnan 5 0 1 4 117:139 1
HK 5 0 0 5 123:139 0
Þýskaland
Blomberg-Lippe – Leverkusen.......... 36:24
Hildigunnur Einarsdóttir var ekki á
meðal markaskorara Leverkusen.
Neckarsulmer – Thüringer................ 21:40
Birna Berg Haraldsdóttir var ekki á
meðal markaskorara Neckarsulmer.
Danmörk
Holstebro – Aalborg............................ 25:27
Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk
fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er
frá vegna meiðsla. Arnór Atlason er
aðstoðarþjálfari liðsins.
Skjern – GOG ....................................... 36:32
Elvar Örn Jónsson skoraði 1 mark fyrir
Skjern og Björgvin Páll Gústavsson varði 4
af 15 skotum sem hann fékk á sig í mark-
inu. Patrekur Jóhannesson þjálfar liðið.
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk
fyrir GOG en Óðinn Þór Ríkharðsson ekk-
ert. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 2 skot
af 12 sem hann fékk á sig í marki liðsins.
Efstu lið: Aalborg 13, Bjerringbro/Silke-
borg 9, Ribe-Esbjerg 9, Holstebro 8, GOG
8, SönderjyskE 8, Skjern 7, Aarhus 6.
Esbjerg – Horsens ............................... 27:21
Rut Jónsdóttir var ekki á meðal marka-
skorara Esbjerg.
Frakkland
Bourg-de-Péage – Brest Bretagne ... 20:36
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði 3 mörk fyrir Bourg-de-Péage.
Noregur
Kolstad – Elverum............................... 30:30
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 5
mörk fyrir Elverum.
Nærbö – Drammen.............................. 26:27
Óskar Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir
Drammen.
Svíþjóð
Alingsås – Lugi .................................... 24:21
Aron Dagur Pálsson var ekki á meðal
markaskorara Alingsås.
Meistaradeild Evrópu
A-riðill:
Flensburg – Zagreb ............................. 20:17
Staðan: Flensburg 7, Aalborg 6, París SG
6, Barcelona 4, Pick Szeged 3, Elverum 0,
Celje Lasko 0, Zagreb 0.
ÁSVELLIR/EYJAR
Bjarni Helgason
Guðmundur Tómas Sigfússon
Einar Rafn Eiðsson tryggði FH
29:29-jafntefli við Hauka í frábær-
um Hafnarfjarðarslag í Olísdeild-
inni í handbolta í gærkvöld.
Óhætt er að segja að leikur
Hafnarfjarðarliðanna hafi verið
spennandi en Haukum tókst þó að
búa sér til þriggja marka forskot
fyrir lok fyrri hálfleiks, 14:11. Það
forskot var hins vegar fljótt að
hverfa því FH-ingar komu vel gír-
aðir í seinni hálfleikinn og jöfnuðu
metin á fjórum mínútum. Þeir
komust svo yfir með marki Ás-
björns Friðrikssonar úr hraðaupp-
hlaupi 20 mínútum fyrir leikslok,
20:19, en Haukar náðu forystunni
fljótt aftur.
Einar Pétur Pétursson virtist
vera að tryggja Haukum sigur þeg-
ar hann skoraði hálfri mínútu fyrir
leikslok, en nafni hans var ekki á
sama máli eins og fyrr segir.
Selfyssingar magnaðir í
45 mínútur en högnuðust
á mistökum
Selfyssingar stöðvuðu sig-
urgöngu Eyjamanna í gærkvöldi
þegar liðið vann magnaðan eins
marks sigur í Vestmannaeyjum,
29:30. Selfyssingar lögðu grunninn
að sigrinum á fyrstu 45 mínútunum
þar sem liðið spilaði magnaðan
handbolta, þeir leiddu 20:26 þegar
korter var eftir.
Kristján Örn Kristjánsson og
Hákon Daði Styrmisson skoruðu
hvor um sig 9 mörk fyrir Eyja-
menn, hjá gestunum var Atli Ævar
Ingólfsson með átta mörk en þeir
Hergeir Grímsson og Haukur
Þrastarson gerðu sex mörk hvor.
Selfyssingar eiga heiður skilinn
fyrir það hvernig þeir léku fyrstu
45 mínútur leiksins en þeir voru í
raun búnir að kasta sigrinum frá
sér undir lokin. Þá voru Eyjamenn
í sókn og 30 sekúndur eftir, en þá
voru skref dæmd á Dag Arnarsson,
þegar hann var þó aðeins búinn að
taka tvö skref. Rándýr dómur en
einhverjir veltu því fyrir sér hvort
dæmd hefði verið leiktöf á Dag, en
hann hélt á boltanum í 2 sekúndur.
Eyjamenn eru vissulega æfir yfir
dómnum enda telja þeir að þeir
hafi verið rændir stigunum tveim-
ur, þar sem liðið hefði verið í frá-
bærri stöðu til að vinna leikinn,
með boltann og 30 sekúndur eftir.
Dómarar leiksins áttu virkilega
slakan leik og bitnaði það á báðum
liðum á löngum köflum í leiknum.
Margir óskiljanlegir dómar litu
dagsins ljós og létu stuðningsmenn
beggja liða klóra sér í hausnum.
Það skal þó tekið fram að þrátt
fyrir þessa frammistöðu í leiknum
hafa báðir þessir dómarar, Bjarki
Bóasson og Bóas Börkur Bóasson,
dæmt fjöldann allan af góðum leikj-
um.
Selfyssingar eru komnir með sjö
stig og eru því einungis einu stigi á
eftir ÍBV, sem hafði unnið fyrstu
fjóra leiki sína. Leiksins verður
minnst fyrir þessi afdrifaríku
dómaramistök en þá einnig fyrir
mikið af töpuðum boltum en bæði
lið gáfu boltann oftar en ekki á
andstæðinga sína í sóknum sínum.
Selfyssingar spila Evrópuleik á
laugardaginn og ef þeir ná að færa
fyrstu 45 mínútur þessa leiks yfir á
laugardag eru þeim allir vegir fær-
ir. Grímur Hergeirsson og Haukur
Þrastarson biðluðu báðir til stuðn-
ingsmanna í viðtali eftir leik um að
fylla kofann á laugardag þegar
sænska liðið Malmö kemur í heim-
sókn.
Hafnarfjarðarslagurinn
var af bestu gerð
Selfoss vann sætan sigur í Eyjum fyrir Evrópuleik Dýrkeypt dómaramistök
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rimma Bjarni Ófeigur Valdimarsson skýtur að marki Hauka en Vignir Svavarsson tekur hraustlega á honum.
Vestmannaeyjar, Olísdeild karla,
miðvikudag 9. október 2019.
Gangur leiksins: 1:2, 3:6, 5:7, 7:10,
10:13, 13:15, 14:19, 17:23, 20:26,
24:27, 27:28, 29:30.
Mörk ÍBV: Kristján Örn Kristjánsson
9, Hákon Daði Styrmisson 9/4, Kári
Kristján Kristjánsson 4, Elliði Snær
Viðarsson 3, Theódór Sigurbjörns-
son 2, Petar Jokanovic 1, Fannar
Friðgeirsson 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 3, Björn
Viðar Björnsson 1.
ÍBV – SELFOSS 29:30
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk Selfoss: Atli Ævar Ingólfsson
8, Hergeir Grímsson 6/2, Haukur
Þrastarson 6, Guðjón Baldur Óm-
arsson 4, Árni Steinn Steinþórsson
3, Magnús Öder Einarsson 2, Nökkvi
Dan Elliðason 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvins-
son 9/1.
Utan vallar: 16 mínútur
Dómarar: Bjarki Bóasson og Bóas
Börkur Bóasson.
Áhorfendur: 520.
Ásvellir, Olísdeild karla, miðvikudag
9. október 2019.
Gangur leiksins: 2:3, 6:5, 6:7, 9:7,
12:8, 14:11, 15:15, 17:15, 18:20, 22:21,
25:22, 26:25, 28:29, 29:29.
Mörk Hauka: Adam Haukur Baum-
ruk 7, Einar Pétur Pétursson 6, Ólaf-
ur Ægir Ólafsson 4/3, Brynjólfur
Snær Brynjólfsson 3, Vignir Svav-
arsson 3, Atli Már Báruson 2, Tjörvi
Þorgeirsson 2, Ásgeir Örn Hall-
grímsson 1, Jason Guðnason 1.
HAUKAR – FH 29:29
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson
15/2.
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk FH: Ásbjörn Friðriksson 9/2,
Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Arnar
Freyr Ársælsson 6, Einar Rafn Eiðs-
son 3, Ágúst Birgisson 2, Einar Örn
Sindrason 1, Birgir Már Birgisson 1.
Varin skot: Phil Döhler 8.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Sigurður Hjörtur Þrast-
arson og Svavar Ólafur Pétursson.