Morgunblaðið - 12.12.2019, Page 12

Morgunblaðið - 12.12.2019, Page 12
Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019 Taugaröskunin ADHD (e.Attention deficit hype-ractivity disorder) stafaraf truflun í boðefnakerfi heilans á svæðum sem stýra hegðun og athygli. Um það bil 7-10% barna greinast með ADHD og er röskunin algengari hjá strákum en stelpum. ADHD er yfirleitt meðfætt og eru erfðir stærsti orsakaþátturinn. ADHD stafar ekki af lélegu uppeldi eða erfiðleikum í félagsumhverfi en álag getur ýtt undir einkennin og gert þau meira hamlandi. Hamlandi áhrif Börn með ADHD eru gjarnan hressir, skemmtilegir orkuboltar með fjörugt ímyndunarafl. Eru oft listrænir skapandi einstaklingar og með leiðtogahæfileika. Athyglis- brestur, stutt úthald, ofvirkni og hvatvísi geta hins vegar haft afar hamlandi áhrif á hegðun, nám, fé- lagasamskipti og líðan. Börn með ADHD eiga erfitt með að hlusta og fylgjast með, eru utan við sig, gleymin í athöfnum daglegs lífs, týna hlutum, truflast auðveld- lega og gera kæruleysisleg mistök. Þau eiga erfitt með að sitja kyrr, eru mikið á iði, fikta í hlutum, skemma óvart og tala mikið. Þau eiga erfitt með að bíða í röð, grípa fram í fyrir öðrum og framkvæma hluti án þess að hugsa fyrir afleið- ingum. Breytileg einkenni Stýrifærni er skert sem birtist gjarnan í slakri reiði- og tilfinn- ingastjórnun, erfiðleikum við að skipuleggja sig, slakri tímastjórnun og skorti á félagsfærni. Oft er daga- munur á einkennum og sveiflur í líð- an. Með aldrinum minnkar ofvirkni en eirðarleysi og einbeitingar- skortur eru áfram hamlandi, mis- mikið þó. Erfið hegðun, mótþrói og samskiptavandi eru gjarnan fylgi- fiskar ADHD. Kækir, námserfið- leikar og/eða lesblinda eru einnig al- geng. Ákveðinn hópur barna með ADHD er með viss einkenni ein- hverfu og/eða greinist með ein- hverfu. Mikilvægt er að greina vandann og grípa til viðeigandi meðferðar þegar einkenni verða hamlandi, því ef ekkert er að gert er hætta á að börn og ungmenni með ADHD þrói með sér lágt sjálfsmat, kvíða og/eða depurð. Auknar líkur eru á áhættu- hegðun og slæm reynsla af skóla- göngu eykur líkur á brottfalli úr framhaldsskóla. Það er ekkert sem læknar ADHD. Meðferð miðar að því að draga úr einkennum, koma í veg fyrir fylgiraskanir, auka náms- og félagsfærni, bæta líðan og sjálfs- mat. Með því að fræða og kenna að- ferðir sem eru gagnreyndar er hægt að efla færni og/eða bjargráð barna, foreldra, kennara og annarra umönnunaraðila til að takast á við vandann. Skipulag og fastar venjur Börn með ADHD þurfa skýrt skipulag, fastar venjur og rútínur, skýr og einföld fyrirmæli. Mynd- rænt skipulag hjálpar. Gott er að búta niður verkefni og vinna í litlum hópum. Lágmarka þarf áreiti og stuðla að stöðugleika í umhverfi. Tryggja þarf nægan svefn og hollar matarvenjur. Markviss stuðningur í skóla, þátttaka í íþróttum eða tóm- stundum og skilningur umhverfisins er lykilatriði. Lyfjameðferð við ADHD er stór þáttur í meðferðinni. Ekki þurfa öll börn með ADHD lyf, en ef farið er að halla undan fæti varðandi nám, líðan og félagsleg samskipti þrátt fyrir önnur úrræði er rétt að prófa lyf. Góð eftirfylgd er nauðsynleg og með markvissri með- ferð og eftirfylgd er hægt að bæta stöðu barna með ADHD og minnka líkur á vanda síðar meir. Nánar um ADHD má finna undir Ráð á síðu Þroska- og hegðunar- stöðvar á vef Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins, www.heilsu- gaeslan.is/throska-og-hegdunarstod Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ærslabelgir Það er gaman að vera til, lifa og leika sér þegar lífið er allt í góðu jafnvægi. Hoppað í þorpi úti á landi. Orkuboltar með ADHD Heilsuráð Katrín Davíðsdóttir barnalæknir og fagstjóri lækn- inga, Þroska- og hegðunarstöð heilsugæslunnar Bráðum koma blessuð jólin er yfir- skrift jóladagskrár sem boðið til í Ár- bæjarsafni í Reykjavík sunnudagana 15. og 22. desember næstkomandi. Viðburðir verða á öllu safnsvæðinu og getur fólk rölt á milli húsanna og fylgst með undirbúningi jólanna, eins og hann var forðum daga. Hrekkjóttir jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í potta. Börn og fullorðnir dansa í kring- um jólatréð á torginu og syngja vinsæl jólalög. Húsin í Árbæjarsafni bera uppruna- leg og skemmtileg nöfn. Í Árbænum sitja fullorðnir og börn með vasahnífa og skera út laufabrauð en uppi á bað- stofulofti er spunnið og prjónað. Í Kornhúsinu búa börn og fullorðnir til fallegt jólaskraut. Í Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir fá að bragða á. Í Ný- lendu má fylgjast með tréútskurði og í Miðhúsum fæst prentuð jólakveðja. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Kram- búðinni er kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu. Fastir liðir á safninu á sunnudögum til jóla eru að klukkan 14 er guðsþjón- usta í safnkirkjunni, kl. 15 dansað í kringum jólatréð á torginu og sungin jólalög og milli kl. 14-16 skemmta jóla- sveinar gestum og taka þátt í söng og dansi í kringum jólatréð. Að vanda eru svo ljúffengar og hefðbundnar jóla- veitingar í boði í Dillonshúsi. sbs@mbl.is Jólagleði á sunnudögum í Árbæjarsafni í Reykjavík Laufabrauð, hangikjöt og tréútskurður Morgunblaðið/Hari Gaman Þjóðlegir jólasveinar heilsa upp á gesti Árbæjar- safns nú á aðventunni og láta þeir öllum illum látum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Handverk Það er kúnst að móta kerti, en nú verður hægt að kynna sér vinnubrögðin sem þar ligga að baki. Einstök stílgáfa höfundar nýtur sín vel í frásögnum af búsmala og fjallferðum. Skemmtileg og mannbætandi lesning. „Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Balaskarði í Laxárdal er án efa einhver fjörmesta og skemmtilegasta sjálfsævisaga, sem íslenzkur alþýðumaður hefur skrifað.“ Sjómannablaðið Víkingur 1947 Morð á Vatnsleysuströnd um aldamótin 1900 og Strandaringum stendur á sama! Hrollvekjandi en samt bráðskemmtileg saga. Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019. Heillandi og hófstillt verk þar sem hugsanir um æsku og elli vega salt. Í þessari bók eru rifjaðar upp sögur af íslenskum kindum að fornu og nýju, afrekum þeirra, uppátækjum og viðureignum við óblíða náttúru og kappsfulla smala.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.