Morgunblaðið - 12.12.2019, Page 59

Morgunblaðið - 12.12.2019, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2019 Gæðavörur í umhverfisvænum umbúðum Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Hollt, bragðgott og þæginlegt Vegan - Keto - Pascaterian - Glutenlaust Sölustaðir: Hagkaup, Melabúð, Fjarðarkaup og Matarbúr Kaju Akranes Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarka hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp slands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Matbúr Kaju hefur sett á markað nýja vöru en það er amerískt pönnu- kökumix sem er sérhannað fyrir þá sem eru vegan, með eggja- og mjólk- uróþol eða bara þá sem vilja eitthvað fljótlegt, þægilegt og bragðgott. Mixið er fljótlegt og hér má sjá eina skemmtilega útfærslu sem einnig er hægt að fá á Cafe Kaju á Akranesi. Þrjár amerískar pönnukökur gerðar úr Kaju-mixi sjá uppskrift Amerískar pönnukökur að hætti Kaju ½ lífrænt epli 30g af 70% súkkulaði frá Saveurs et nature ½ dl af ristaðri valhnetuolíu frá Vigean tæplega ½ dl af hlynsírópi Deig: 150 g af Kaju-mixi 3⁄4 bolli vatn 2 msk. olía 1 tsk. vanilludropar Látið deigið standa í 10 mínútur. Setjið tæplega 1⁄4 bolla af deigi á pönnu fyrir hverja pönnuköku. Samsetning: Bakið þrjár pönnukökur, saxið epli og súkkulaðið í hæfilega bita og setjið á milli og á toppinn, hellið rist- uðu valhnetuolíunni og hlynsírópi yf- ir. Pönnukökumixið fæst í Hag- kaupum, Melabúð, Fjarðarkaup og Matarbúri Kaju Akranesi. Nýtt pönnukökumix komið í verslanir Kærkomin viðbót Vörur frá Kaju eru þekktar fyrir gæði og hreinleika. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Hjá Nóa Síríusi starfar stór hópur fólks sem hefur mikla ástríðu fyrir starfi sínu enda vart annað hægt þar sem allt nærumhverfið ilmar af súkkulaði. „Við erum mjög fastheldin hvað konfektið varðar,“ segir Helga Beck, markaðsstjóri fyrirtækisins, aðspurð hvort konfektið hafi breyst mikið frá því það kom fyrst á markað. „Við gerum engar breytingar nema að vel ígrunduðu máli og höldum í hefðina eins og kostur er. Þetta eru sömu uppskriftirnar sem hafa fylgt þjóðinni í hartnær sjötíu ár,“ segir Helga en bætir við að síðasta breytingin hafi verið gerð árið 2016. „Þá bættum við Íslandsmolanum svokallaða við en okkur langaði að búa til virkilega sér- íslenskan mola og viðbrögð við- skiptavina okk- ar voru virkilega góð. Hann er orðinn í uppáhaldi hjá mörgum, ekki síst vegna lögunar- innar. Konfektið hefur að öðru leyti fengið að haldast nán- ast óbreytt í alla þessa áratugi og sjálfsagt ekki margir sem átta sig á því að margir mol- anna eru handgerðir auk þess sem raðað er kassana af alúð og vand- virkni. Flest okkar ólust upp við Nóa-konfektið og eigum minningar tengdar því. Kassinn er oftar en ekki dreginn fram á tyllidögum og þannig tengjum við hann við minn- ingar sem eru okkur kærar. Hefðir eru misjafnar á heimilum en marg- ir tengja við að þurfa að klára fyrstu hæðina áður en byrjað er á þeirri næstu og þar fram eftir göt- unum. Við heyrum mikið af skemmtilegum sögum og okkur þykir vænt um þær.“ „Það er ekki bara að við séum fastheldin hvað konfektið varðar heldur eru viðskiptavinir okkar það líka og kunna illa við miklar breyt- ingar enda engin ástæða til að breyta of mikið því sem hefur alltaf staðið fyrir sínu, en við höfum allt- af hug á að bæta við úrval mola“ segir Helga brosandi og segir gott dæmi um þetta vera þegar umbúð- um fyrir kílóakassanum var breytt fyrir nokkrum árum úr hvítum í svartar. „Þetta er ekki stór breyting en fólk er enn að hringja og leita að hvíta kassanum.“ Fyrirtækið hefur tekið upp á því að bjóða upp á sértæka kassa sem innihalda þá annaðhvort fylltu mol- ana eða marsípanmolana. „Sú nýjung hefur mælst vel fyrir og svo brugðum við á það ráð að halda kosningu um vinsælasta mol- ann fyrir nokkrum árum og var núggat og krisp-molinn valinn sá vinsælasti. Við ákváðum því fyrir jólin núna að bjóða upp á hann sem pralínsúkkulaði í takmörkuðu upp- lagi. Viðbrögðin hafa verið frábær og ég hvet fólk til að ná sér í plötu svo það missi ekki af þessu frá- bæra súkkulaði.“ Hver er þér svo kær? Konfektið frá Nóa Síríusi hefur fylgt þjóðinni frá því á fjórða áratugnum þegar fyrsti konfektkassinn leit dagsins ljós frá Nóa sem keypti súkkulaðið einmitt frá súkkulaðigerðinni Síríusi. Þessir fyrstu konfektmolar mörkuðu tímamót í íslenskri súkkulaðisögu því síðan þá hefur konfektið frá Nóa, sem í dag heitir Nói Síríus, verið fastur fylgifiskur þegar fjölskyldan á ljúfar stundir. Munngæti Konfektið var fyrst um sinn kallað munngæti. Takmarkað upplag Ákveðið var að setja vin- sælasta konfektmolann í pralín- súkkulaði fyrir jólin. Handgert konfekt Helga segir að fólk átti sig almennt ekki á því að stór hluti konfektsins sé handgerður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.