Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 4
63
Sunna Lu Xi Gunnarsdóttir, Erla Liu Ting Gunnarsdóttir, Alexandra Aldís Heimisdóttir,
Sunna Rún Heiðarsdóttir, Sólveig Helgadóttir, Martin Ingi Sigurðsson,
Tómas Guðbjartsson
Notkun ósæðardælu við kransæðahjáveituaðgerðir
Kransæðahjáveituaðgerð er algengasta opna hjartaaðgerðin og er oftast valaðgerð en
stundum bráða-aðgerð eftir nýlegt hjartadrep, óstöðugan brjóstverk eða vegna hjarta-
bilunar. Hjá sumum sjúklingum getur komið til greina að beita meðferð með ósæðardælu
sem er helíumfyllt plastblaðra og slanga sem tengd er dælu sem blæs upp og tæmir
blöðruna, oftast í takt við hjartalínurit en í takt við slagæðakúrfu ef óregla er mikil á
hjartslætti.
71
Olga Sigurðardóttir, Kristín Leifsdóttir, Þórður Þórkelsson, Ingibjörg Georgsdóttir
Þroski minnstu fyrirburanna á Íslandi 1988-2012
Á síðustu árum hafa orðið miklar framfarir í fæðingar- og nýburalækningum. Lífslíkur
minnstu fyrirburanna (fæðingarþyngd ≤1000 g) hafa aukist og flestir þeirra lifa nú af án
alvarlegra fylgikvilla. Fimm ára lifun minnstu fyrirburanna í íslensku þýði fór úr 22% fyrir
árin 1982-1990 upp í 63% árin 2001-2005. Auk þess er nú hægt að bjarga óþroskaðri
börnum en áður, eða allt niður í 22-23 vikna meðgöngulengd.
79
Ólafur Sveinsson, Áskell Löve, Vilhjálmur Vilmarsson, Ingvar Ólafsson
Heilkenni afturkræfs æðasamdráttar í heilaæðum
– ein helsta ástæða endurtekins þrumuhöfuðverkjar
Megineinkenni heilkennisins eru endurtekin höfuðverkjaköst og í sumum tilfellum stað-
bundin taugaeinkenni. Æðamyndatökur geta sýnt þrengingu heilaæða og mest sér-
kennandi er að með endurteknum rannsóknum sést að æðaherpingurinn eykst og minnkar
tiltölulega hratt með tímanum. Þessar æðabreytingar ganga yfir af sjálfu sér á einum til
þremur mánuðum.
56 LÆKNAblaðið 2020/106
F R Æ Ð I G R E I N A R
2. tölublað ● 106. árgangur ● 2020
59
Dóra Lúðvíksdóttir
Lungun
og loftgæðin
Hér á landi er loftmeng-
un vegna landrofs og
gróðureyðingar ásamt
útblæstri frá jarðhita-
orkuverum sérstakt
áhyggjuefni.
61
Hilma Hólm
Lípóprótein(a)
og áhrif þess á
hjartasjúkdóma
Nú er staðfest að Lp(a)
hefur áhrif á kransæða-
sjúkdóm og skylda
æðasjúkdóma, ósæðar-
lokuþrengsl, hjartabilun
og ævilengd. Við sáum
hins vegar ekki tengsl við
bláæðasega eða nýrna-
sjúkdóma.
z
L E I Ð A R A R
LÆKNADAGAR
Læknadagar eru: Heil fræðslu-
vika með milljón málþingum, há-
degisverðarmambói, nokkrum
lítrum af latte og karmellum,
lyfjabásum, hinni hefðbundnu
spurningakeppni, gömlum fé-
lögum og kollegum á trúnó, og
fréttum af læknisfræðilegum
nýjungum og framfarasporum.
Kristinn Ingvarsson hirðljós-
myndari Háskóla Íslands tók
þessa mynd fyrir Læknablaðið á
lokadegi þessarar viku, þar sem
einhugur, vinátta og gleði var
langefst á baugi. -VS