Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2020/106 91
Kristinn R. Guðmundsson
Frv. yfirlæknir, heila- og taugaskurðdeild
Borgarspítala / Landspítala
kristann@mmedia.is
Þann 30. september síðastliðinn voru
nákvæmlega 130 ár liðin frá því ein fræg-
asta og virðulegasta læknastofnun heims
opnaði dyr sínar fyrir sjúklingum. Tilurð
þessarar stofnunar er örugglega mörgum
kunn en verður rakin hér í stuttu máli.
Sagan er merkileg meðal annars fyrir það
að þarna átti hlut að máli þroskasaga, ein-
beiting og köllun fórnfúsrar ungrar konu
í fjarlægu og lítt numdu landi og ákveðni
og samhugur þriggja lækna, feðga, sem
tóku höndum saman um að gera þessa
köllun, þennan draum að veruleika.
Minnesota er eitt af miðvesturríkjum
Bandaríkjanna norður við landamæri
Kanada. Það er fyrst og fremst landbún-
aðarríki. Þar er funheitt á sumrin en
snjóþungt og nístingskalt á veturna. Tví-
buraborgin Minneapolis-St. Paul er þar
stærst borga en aðrar minni eru til dæmis
Rochester, sem þekktust er fyrir sína
Mayo-Clinic og Duluth, sem áður fyrr var
gjarnan viðkomustaður vestur-íslenskra
landnema, sem þarna komu yfir vötnin
miklu í lok 19. aldar.
Ofviðrið
Árið 1883 var Rochester fátækur og fá-
mennur landnemabær. Óveður voru og
eru þar tíð á vissum árstímum. Víða má
nú sjá hlaðin skýli fyrir fólk að forða sér
í og einnig eru leiðbeiningar um hvar
annars staðar megi leita sér skjóls. Sírenur
gjalla ef hætta er á ferðum. Þar sem landið
er flatt má sjá skýjabakka hrannast upp
langar leiðir að. Þannig var veðrið þann
21. ágúst 1883. Fólk fagnaði komu rign-
ingar sem ekki var vanþörf á, en í þetta
sinn fluttu skýin einnig með sér mikinn
ógnvald, hvirfilvind eða „tornedo“, sem
skall á bænum. Mörg hús eyðilögðust og
margir íbúar slösuðust.
Nunnur og uppbygging
Nú voru góð ráð dýr. Dr. Mayo var þá
starfandi læknir í Rochester. Hann leitaði
til nunna í bænum að hafa yfirumsjón
með hjúkrun hinna slösuðu, sem voru
fjölmargir og mikið álag fyrir svona lítið
samfélag. Móðir Alfred var stofnandi
reglunnar og abbadís. Hún átti sér langa
sögu og mikla reynslu. Hún var dóttir vel-
megandi járnsmiðs í Lúxemburg og hafði
frá unglingsárum dreymt um að halda
til Ameríku með systur sinni að boða
Indíánum guðstrú. Þangað var haldið og
næstu 20 árin kenndi hún og starfaði við
trúboðsskóla í miðvestrinu og stofnaði
nunnureglu í Illinois. Til Minnesota kom
hún árið 1876 og einnig þar stofnaði hún
skóla og „Motherhouse“.
Móðir Alfred hugsaði mikið um þenn-
an atburð og leitaði að lokum til Mayo
með þá hugmynd að byggja spítala í
Rochester. Sjálf var hún sannfærð um
þörfina. Sagt er að Mayo hafi ekki tekið
vel í þetta en lét að lokum tilleiðast, hann
tæki að sér að stjórna lækningum en hún
myndi safna peningum og það tókst á fjór-
um árum.
Undir öruggri stjórn nunnanna stækk-
aði spítalinn hröðum skrefum og öllu
starfsliði fjölgaði ár frá ári. Synir Dr. Mayo
gerðust báðir skurðlæknar (Charles og
William) og í raun helgaði spítalinn sig
fyrst og fremst skurðlækningum til að
byrja með. Nunnur sinntu hjúkrun ásamt
hjúkrunarfræðingum. Smám saman
breyttist sú skoðun almennings að veikir
færu aðeins á spítala til að deyja. Mikil
uppbygging hefur alla tíð átt sér stað
á þessu sviði í Rochester. Þar eru tvö
stór sjúkrahús, St. Marys og Methodist
Hospital. Þangað sækja stúdentar í lækna-
nám eða hjúkrun og útlærðir læknar í
sérfræðinám hvaðanæva að í Bandaríkj-
unum og frá öllum heimshornum og þar
eru stunduð margskonar vísindastörf á
sviðum læknisfræði. Kendall uppgötvaði
kortisón þarna árið 1949 og það leiddi
til Nóbelsverðlauna ári síðar. Auk þessa
hefur Mayo Clinic verið verðlaunuð marg-
sinnis sem besta stofnun á þessu sviði.
Mayo Clinic er nú með útibú á tveimur
stöðum í Bandaríkjunum, í Jacksonville í
Flórída og í Arizóna (Scottsdale og Phoen-
ix) svo og útstöðvar annars staðar erlendis.
Fundur Mayo Alumni
Í tilefni af 130 ára afmæli Mayo Clinic var
haldinn fundur Mayo Alumni 3. ágúst í
húsakynnum Landspítala við Hringbraut.
Þar voru mættir þrír íslenskir sérfræðingar
í læknisfræði sem allir starfa nú við Mayo
Clinic í Rochester, sem er afrek útaf fyrir
sig fyrir svo litla þjóð. Hver þeirra flutti
erindi um sín störf í Rochester. Mikill
fengur er að fá að heyra um það nýjasta
sem er að gerast á sviði læknisfræðinnar
hjá þessari merku menntastofnun og fá
þau öll hinar bestu þakkir fyrir. Vonast er
til að gera megi þetta að árlegum viðburði.
Á fundinn mættu einnig margir af núver-
andi félögum í Mayo Clinic Alumni en alls
hafa 23 íslenskir læknar verið eða eru við
nám og störf í Rochester. Fyrstur til þess
var Ófeigur J. Ófeigsson lyflæknir sem þar
var árin 1936-1937.
Mayo Clinic
130 ára
Tuttugu og þrír íslenskir læknar hafa stundað þar
nám og störf og fjórir starfa þar nú sem sérfræðingar.
Fjölmargir Íslendingar hafa leitað sér lækningar þar.
Á myndinni eru frá vinstri.: Jóhann Ingimarsson, Þorvarður Hálfdánarson,
Björg Þorsteinsdóttir og Kristinn R. Guðmundsson. Myndina tók Anna G. Ólafsdóttir.