Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 47
LÆKNAblaðið 2020/106 99
ar sem veiti þeim ríkan afslátt umfram
einkareknar stöðvar á rannsóknum. Rann-
sóknir séu næststærsti einstaki kostnað-
arliðurinn á eftir launakostnaði. „Þegar
Heilsugæslan Höfða leitaði eftir samn-
ingum við Landspítala var þeim boðið að
greiða 165 kr. á rannsóknareiningu meðan
ríkisreknu stöðvarnar greiddu 110 krónur
á einingu,“ segir hann.
„Það er svakalegt. Rosalegt. Hvernig
stendur á því að ríkið kýs að mismuna
þeim sem reka heilsugæsluþjónustu í fjár-
mögnunarlíkani sem á að vera á jafnræðis-
grundvelli?“ Stóri bróðir fái þriðjungi
lægra verð. Þá greiði einkarekna gæslan
virðisaukaskatt af þjónustu en sú ríkis-
rekna ekki. Eins þurfi þær einkareknu að
kaupa tryggingar en ekki þær ríkisreknu.
Ráðherra hunsar beiðni þeirra
„Samkeppniseftirlitið tók þrjú dæmi og
sagði að jafna þyrfti stöðuna. Síðan hefur
ekkert gerst. Ekkert, engin viðbrögð. Við
fórum á fund ráðherra 2018 og báðum
um að brugðist yrði við en fengum engin
viðbrögð,“ segir hann. Þeir hafa ítrekað
áhyggjur sínar í bréfi en því hefur ekki
verið svarað.
„Þannig að tilmælum Samkeppnis-
eftirlitsins var bara stungið ofan í skúffu.
Það er ömurlegt og ekki góð stjórnsýsla að
svara ekki. Þetta hefðu betur verið bind-
andi tilmæli en það voru þau ekki. Það á
samt að fara eftir þeim,“ segir Þórarinn.
„Þeim skjólstæðingum sem velja að
vera hér er mismunað,“ segir hann. Þeir
gætu ráðið inn hjúkrunarfræðing eða
lækni fyrir fjármunina sem fengjust
stæðu þeir jafnfætis þeim ríkisreknu og
veitt enn betri þjónustu. Þeir vilji kom-
ast á ofursamninginn sem ríkisreknu
heilsugæslurnar hafi við Landspítala.
„Við viljum bara að þetta sé réttlátt.“
Norræn ríki kjósa einkarekstur
Hann er spurður hvort það sé áskorun
að hafa heilbrigðisráðherra sem sé síður
hlynntur einkaframtaki, ráðherra Vinstri
grænna, en fyrirrennarinn frá Sjálfstæðis-
flokki?
„Það eru margir sem hafa illan bifur á
okkur en við horfum ekki á þetta þannig.
Við vinnum samkvæmt skandinavíska
módelinu. Heilsugæslan er sjálfstætt
rekin í Danmörku, Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi,“ segir hann. Ráðherra verði að
huga að því að þarlend yfirvöld hafi talið
þjónustunni best borgið með þjónustu-
samningum.
„Ráðherra hefur ekki verið hlynnt
þessu og ekki komið að skoða. En það er
ekki hægt að horfa framhjá því hve margir
kjósa að sækja til sjálfstæðra heilsugæslu-
stöðva. Hvers á þetta fólk að gjalda? Það er
áskorun að vera með ráðherra sem er ekki
vinsamlegur okkur. En þó má ekki hunsa
þetta atriði,” segir Þórarinn.
„Við höfum skorað hátt á flestum gæða-
vísum og verið í efsta sæti í stórri þjón-
ustukönnun en heilbrigðisyfirvöld hafa
sýnt okkur afar lítinn áhuga. Það verður
að vera jafnræði. Það verður að svara er-
indum.“
Þórarinn segist sjá fram á að sjálfstætt
starfandi heilugæslum fjölgi. „Þetta er
framtíðin í mínum huga.“
Þórarinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri lækninga
í Heilsugæslunni Höfða, er stoltur af sérhönnuðu
sjálfstæðu heilsugæslunni en kallar eftir sann-
gjarnara rekstrarumhverfi. Ríkisreknar heilsugæsl-
ur standi þar betur. Mynd/gag