Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 37
LÆKNAblaðið 2020/106 89
að hún kom í pontu eftir að við Ragnar
mótmæltum orðum hennar og dró þau að
sumu leyti til baka.“ Hún hafi sannarlega
viljað opna umræðuna. Spurður frekar um
stjórnunarstílinn á spítalanum segir hann:
„Þegar fjármagnið er af skornum
skammti grípa stjórnendur til örþrifaráða.
Þeir eru með bakið upp við vegg og bregð-
ast við sem sært ljón, það bítur frá sér,“
segir hann og nefnir dæmi.
Í stríði við helstu stéttir
„Eins og það að lýsa yfir stríði við hóp
lækna, lýsa yfir stríði við hóp hjúkrunar-
fræðinga með launaskerðingum. Það þýðir
raunverulega ekki annað en að verið er að
draga saman seglin. Þetta fólk getur ekki
unnið þau störf sem það gerði áður. Hver á
að vinna vinnuna ef ekki læknar og hjúkr-
unarfólk?“
Björn vísar í McKinsey-skýrsluna sem
segi álagið á íslenska lækna of mikið. „Það
molnar því hægt og rólega undan starf-
seminni. Það er vandamálið. Við höfum
horft á svo ofboðslega stóran vanda í svo
langan tíma að við erum komin í breaking
point. En hingað til hefur okkur tekist að
halda uppi öflugu og góðu heilbrigðiskerfi
í fremstu röð þrátt fyrir þessa hörmungar,
aðstöðuleysi og fjárskort,“ segir hann og
gagnrýnir nýja skipuritið.
„Yfirstjórnin er að fjarlægjast kjarna-
starfsemina. Það er slæmt og þetta nýja
stjórnunarlag er ekki til að bæta ástandið,“
segir hann. „Það er martröð að þurfa að
ganga frá einu stigi í annað til að fá loks-
ins svar um hvort einhver ákvörðun verði
tekin. Þetta er óskilvirkt fyrirkomulag.
Þetta er veruleikinn í dag.“
Ragnar tekur undir það. Ábendingar
af gólfinu nái ekki á toppinn. „Forstjóri,
framkvæmdastjórar, forstöðumenn,
yfirlæknar, sérfræðingar. Það er afar langt
til þeirra sem ráða.“ Hann skilji þó að for-
stjóri vilji breytingar og vill gefa honum
tíma til að spreyta sig með þetta nýja fyr-
irkomulag.
Áætlanir og arðsemi
Ragnar kallar eftir aðgerðaáætlun. „Við
þurfum að horfa til þess sem við gerum í
dag, hvað við ætlum að gera eftir mánuð,
hvað eftir 6 mánuði og hvað til lengri
tíma,“ segir hann „Ég sé enga áætlun.
Þess vegna erum við að hrópa um neyðar-
Björn Rúnar Lúðvíksson og Ragnar Freyr
Ingvarsson stigu fram og gagnrýndu orð
heilbrigðisráðherra á fundi með Læknaráði.
Þeir hafa miklar áhyggjur af ástandi spítal-
ans. Þar ríki NEYÐARÁSTAND. Mynd/gag