Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 51
LÆKNAblaðið 2020/106 103
Vandi skapast verði Landspítali að takast á
við kórónaveiruna eða alvarlega inflúensu.
Þetta segir Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir
sýkingavarnadeildar Landspítala. Spít-
alinn hafi þó lært af heimsfaröldrum eins
og svínaflensunni sem hafi tekið mjög á
starfsemi spítalans árið 2009. Þá lögðust
á annað hundrað manns inn á spítalann
og tæplega 30 á gjörgæslu. Margir þurftu
öndunarvélameðferð og 3 að fara í hjarta-
og lungnavél.
„Það var ansi alvarlegur faraldur,“ segir
Ólafur. Læknablaðið spyr hvort aðstæður á
spítalanum séu alvarlegri nú en þá segist
hann ekki alveg geta svarað því. „Hins
vegar er það þannig að allt sem eykur
álagið, slys eða veirusýkingar, valda spítal-
anum ákveðnum vanda.“
Ólafur hefur fundað reglulega með
sóttvarnarlækni, sóttvarnarlæknum í
héraði, Almannavörnum og öðrum hags-
munaaðilum til að undirbúa heilbrigð-
iskerfið undir hugsanleg smit hér á landi.
Hann segir mörgum ferlum fylgt þegar
svona ný veira vakni. Allir viðbragðsaðilar
séu virkjaðir svo þeir þekki hvernig flæði
sjúklinga eigi að vera.
„Verði tilfellin mörg kemur það til með
að reyna enn frekar á innviði stofnunar-
innar og heilbrigðiskerfisins alls,“ segir
hann. „Við vonum að tilfellin verði fá og
að kórónaveiran verði ekki íþyngjandi
fyrir íslensku þjóðina. Vona það innilega,“
leggur hann áherslu á.
„Við komum alltaf til með að gera allt
eins vel og við getum,“ segir hann og
viðurkennir að á sama tíma að allt um-
fram dagleg verkefni á spítalanum sé mjög
krefjandi. „Þannig að ég vona að þetta
verði viðráðanlegt ástand,“ segir Ólafur.
Fregnir af alvarlegum lungnasýking-
um bárust í desember frá Wuhan-borg í
Kína. Áður þekkt kórónaveiruafbrigði var
staðfest sem nú kallast 2019-nCoV. Á vef
Embættis landlæknis segir að sennilega
sé veiran upprunnin í dýrum en sýki nú
menn.
Embættið hefur gefið út að undirbún-
ingurinn miðist við uppfærðar áætlanir
frá HABL/(SARS)-faraldrinum 2002. Unnið
sé að því að gefa út leiðbeiningar til heil-
brigðisstarfsmanna en einnig almennings
um hvernig eigi að hafa samband við heil-
brigðiskerfið vakni grunur um sýkingu af
völdum nýju veirunnar, Novel coronavir-
us eða 2019-nCoV Wuhan-veiru.
Ólafur segir að reynt verði að stýra
sjúklingum frá Landspítala. Ferðamönn-
um sé kynnt að þeir eigi að að hringja í
1700, síma heilsugæslunnar, finni þeir
fyrir einkennum. Allar heilsugæslustöðvar
eigi að vera undirbúnar til að taka á móti
sjúklingum sem smitaðir séu af kóróna-
veirunni.
„Ef sjúklingar eru veikir eða metið
þannig að þeir þurfi frekara mat er hægt
að vísa þeim á Landspítala,“ segir hann.
„Þar er hægt að taka þá beint upp á A7 eða
í gegnum bráðamóttökuna.“ Ólafur segir
handtökin hafa verið snör enda einungis
hálfur mánuður frá því að veiran greindist
þegar þetta er ritað og innan við hálfur
mánuður í að greiningarprófin berist til
landsins.
Ólafur segir spítalann nú undirbúinn.
„Ekki má gleyma að þetta er sjötti far-
aldurinn sem við lendum í, með svipuðum
vandamálum. Við höfum lært af hverjum
og einum og sú þekking nýtist við þessum
vanda.“
Wuhan-veiran krefjandi fyrir
kerfið komi hún til landsins
Kórónaveiran frá Wuhan reynir á heilbrigðiskerfið allt og ekki síst innviði Landspítala komi hún til
landsins. Þetta segir Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeildar Landspítala. Hann segir
spítalann nýta þekkingu eftir fyrri faraldra og svínaflensan fyrir rúmum áratug vegi þar þyngst.
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Hvetur starfsfólk til að verja sig
„Við getum ekki sagt til um hvort einstaklingar séu með faraldurinn eða inflúensu.
Það er ekki hægt að ráða í það nema með greiningu,“ segir Ólafur Guðlaugsson,
yfirlæknir sýkingavarna hjá Landspítala og gagnrýnir starfsmenn fyrir að undirbúa
sig ekki sem best.
„Við vitum að inflúensa kemur á hverju ári. Við vitum að við þurfum að vera
undirbúin og því er hjákátlegt að heilbrigðisstarfsmenn séu ekki ákafari í bólusetn-
ingu inflúensunnar á hverju ári,“ segir hann.
„Við vitum aldrei hversu slæm hún verður og við getum gert heilmikið til að verj-
ast henni,“ segir hann.
Ólafur Guðlaugsson, yfirlæknir sýkingavarnadeildar
Landspítala. Mynd/gag.