Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 48
100 LÆKNAblaðið 2020/106
Una Emilsdóttir unglæknir og Helga Ágústa Sigurjónsdóttir innkirtlalæknir.
Benedikt Sveinsson kvensjúkdómalæknir, Kristín Sigurðardóttir slysalæknir og
Magni Jónsson lungnalæknir.
Guðrún Agnarsdóttir, Davíð Gíslason ofnæmislæknir og Sigurveig Sigurðardóttir
ofnæmislæknir.
Sigurður Guðmundsson fyrrum landlæknir glaðvakandi á milli tveggja svæfinga-
lækna, Ingunnar Þorsteinsdóttur og Hjördísar Smith.
Júlía Linda Ómarsdóttir hjúkrunarfræðingur og Gerður Aagot Árnadóttir heimilislæknir,
þær vinna saman á Heilsugæslustöð Garðabæjar.
Valgerður Rúnarsdóttir stýrði fundi um lögleiðingu kannabis. Christian G. Schütz frá há-
skólanum í British Columbia og Sigurður Örn Hektorsson geðlæknir voru frummælendur
á þessum fjölsótta fundi.
930 skráðu sig til
leiks á Læknadögum
„Ánægja með Læknadaga var mikil. Margir hafa komið að máli
við mig og talað um það,“ segir Reynir Arngrímsson, formaður
Læknafélags Íslands og formaður Fræðslustofnunar. Hann segir
ráðstefnuna hafa tekist betur en oft áður. Aðsóknin hafi verið með
mesta móti en alls 930 manns sóttu Læknadaga sem haldnir voru í
Hörpu dagana 20.-24. janúar. Gestum fjölgaði um 10% milli ára.
„Læknadagar eru mikilvægir í símenntun lækna. Fjölbreytt
erindi höfðuðu til stéttarinnar sem sást á góðri mætingu,“ segir
hann. „Læknadagar eru hluti af því átaki félagsins að efla sí-
menntun,“ segir hann.
Haldin voru 184 erindi á 28 málþingum. Fyrirlesarar voru 177,
þar af 145 læknar. Þrettán erlendir gestir tóku þátt í Læknadögum
í ár.
„Mjög ánægjulegt er hve margir læknar tóku tíma til þess að
fræða aðra lækna um þeirra sérsvið og stuðla þannig að breiðari
þekkingu í samfélagi lækna,“ segir hann.
Fræðslustofnun hélt utan um dagskrána í ár og skipuðu fulltrú-
ar hennar undirbúningsnefndina. Auk Reynis eru þau Arngrímur
Vilhjálmsson, Margrét Aðalsteinsdóttir, Nanna Sigríður Kristins-
dóttir, Ólafur Már Björnsson og Runólfur Pálsson í nefndinni.
L Æ K N A D A G A R 2 0 2 0