Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 39

Læknablaðið - feb. 2020, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2020/106 91 Kristinn R. Guðmundsson Frv. yfirlæknir, heila- og taugaskurðdeild Borgarspítala / Landspítala kristann@mmedia.is Þann 30. september síðastliðinn voru nákvæmlega 130 ár liðin frá því ein fræg- asta og virðulegasta læknastofnun heims opnaði dyr sínar fyrir sjúklingum. Tilurð þessarar stofnunar er örugglega mörgum kunn en verður rakin hér í stuttu máli. Sagan er merkileg meðal annars fyrir það að þarna átti hlut að máli þroskasaga, ein- beiting og köllun fórnfúsrar ungrar konu í fjarlægu og lítt numdu landi og ákveðni og samhugur þriggja lækna, feðga, sem tóku höndum saman um að gera þessa köllun, þennan draum að veruleika. Minnesota er eitt af miðvesturríkjum Bandaríkjanna norður við landamæri Kanada. Það er fyrst og fremst landbún- aðarríki. Þar er funheitt á sumrin en snjóþungt og nístingskalt á veturna. Tví- buraborgin Minneapolis-St. Paul er þar stærst borga en aðrar minni eru til dæmis Rochester, sem þekktust er fyrir sína Mayo-Clinic og Duluth, sem áður fyrr var gjarnan viðkomustaður vestur-íslenskra landnema, sem þarna komu yfir vötnin miklu í lok 19. aldar. Ofviðrið Árið 1883 var Rochester fátækur og fá- mennur landnemabær. Óveður voru og eru þar tíð á vissum árstímum. Víða má nú sjá hlaðin skýli fyrir fólk að forða sér í og einnig eru leiðbeiningar um hvar annars staðar megi leita sér skjóls. Sírenur gjalla ef hætta er á ferðum. Þar sem landið er flatt má sjá skýjabakka hrannast upp langar leiðir að. Þannig var veðrið þann 21. ágúst 1883. Fólk fagnaði komu rign- ingar sem ekki var vanþörf á, en í þetta sinn fluttu skýin einnig með sér mikinn ógnvald, hvirfilvind eða „tornedo“, sem skall á bænum. Mörg hús eyðilögðust og margir íbúar slösuðust. Nunnur og uppbygging Nú voru góð ráð dýr. Dr. Mayo var þá starfandi læknir í Rochester. Hann leitaði til nunna í bænum að hafa yfirumsjón með hjúkrun hinna slösuðu, sem voru fjölmargir og mikið álag fyrir svona lítið samfélag. Móðir Alfred var stofnandi reglunnar og abbadís. Hún átti sér langa sögu og mikla reynslu. Hún var dóttir vel- megandi járnsmiðs í Lúxemburg og hafði frá unglingsárum dreymt um að halda til Ameríku með systur sinni að boða Indíánum guðstrú. Þangað var haldið og næstu 20 árin kenndi hún og starfaði við trúboðsskóla í miðvestrinu og stofnaði nunnureglu í Illinois. Til Minnesota kom hún árið 1876 og einnig þar stofnaði hún skóla og „Motherhouse“. Móðir Alfred hugsaði mikið um þenn- an atburð og leitaði að lokum til Mayo með þá hugmynd að byggja spítala í Rochester. Sjálf var hún sannfærð um þörfina. Sagt er að Mayo hafi ekki tekið vel í þetta en lét að lokum tilleiðast, hann tæki að sér að stjórna lækningum en hún myndi safna peningum og það tókst á fjór- um árum. Undir öruggri stjórn nunnanna stækk- aði spítalinn hröðum skrefum og öllu starfsliði fjölgaði ár frá ári. Synir Dr. Mayo gerðust báðir skurðlæknar (Charles og William) og í raun helgaði spítalinn sig fyrst og fremst skurðlækningum til að byrja með. Nunnur sinntu hjúkrun ásamt hjúkrunarfræðingum. Smám saman breyttist sú skoðun almennings að veikir færu aðeins á spítala til að deyja. Mikil uppbygging hefur alla tíð átt sér stað á þessu sviði í Rochester. Þar eru tvö stór sjúkrahús, St. Marys og Methodist Hospital. Þangað sækja stúdentar í lækna- nám eða hjúkrun og útlærðir læknar í sérfræðinám hvaðanæva að í Bandaríkj- unum og frá öllum heimshornum og þar eru stunduð margskonar vísindastörf á sviðum læknisfræði. Kendall uppgötvaði kortisón þarna árið 1949 og það leiddi til Nóbelsverðlauna ári síðar. Auk þessa hefur Mayo Clinic verið verðlaunuð marg- sinnis sem besta stofnun á þessu sviði. Mayo Clinic er nú með útibú á tveimur stöðum í Bandaríkjunum, í Jacksonville í Flórída og í Arizóna (Scottsdale og Phoen- ix) svo og útstöðvar annars staðar erlendis. Fundur Mayo Alumni Í tilefni af 130 ára afmæli Mayo Clinic var haldinn fundur Mayo Alumni 3. ágúst í húsakynnum Landspítala við Hringbraut. Þar voru mættir þrír íslenskir sérfræðingar í læknisfræði sem allir starfa nú við Mayo Clinic í Rochester, sem er afrek útaf fyrir sig fyrir svo litla þjóð. Hver þeirra flutti erindi um sín störf í Rochester. Mikill fengur er að fá að heyra um það nýjasta sem er að gerast á sviði læknisfræðinnar hjá þessari merku menntastofnun og fá þau öll hinar bestu þakkir fyrir. Vonast er til að gera megi þetta að árlegum viðburði. Á fundinn mættu einnig margir af núver- andi félögum í Mayo Clinic Alumni en alls hafa 23 íslenskir læknar verið eða eru við nám og störf í Rochester. Fyrstur til þess var Ófeigur J. Ófeigsson lyflæknir sem þar var árin 1936-1937. Mayo Clinic 130 ára Tuttugu og þrír íslenskir læknar hafa stundað þar nám og störf og fjórir starfa þar nú sem sérfræðingar. Fjölmargir Íslendingar hafa leitað sér lækningar þar. Á myndinni eru frá vinstri.: Jóhann Ingimarsson, Þorvarður Hálfdánarson, Björg Þorsteinsdóttir og Kristinn R. Guðmundsson. Myndina tók Anna G. Ólafsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.