Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - feb. 2020, Side 32

Læknablaðið - feb. 2020, Side 32
84 LÆKNAblaðið 2020/106 F R É T T A S Í Ð A N Skerpt á sérnámi til heimilis- lækninga Samkomulag um að skerpt verði á sérnámi í heimilislækningum á Íslandi milli þriggja stofnana, Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu, Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins og Landspítala, var undirritað um miðjan desember. „Samkomulagið eflir námið klárlega og eykur samvinnu,“ segir Elínborg Bárðar- dóttir, kennslustjóri í heimilislækningum. „Það er hlutverk okkar allra að mennta fólk til heimilislæknis því það er skortur á þeim.“ Elínborg segir samninginn í takti við aðra þróun í sérnámi hér á landi síðustu ár. „Með samkomulaginu nú skilgreinum við betur hvað er kennt og hvernig við metum það sem við kennum og hvort sérnáms- læknarnir hafi þá þekkingu sem þeim ber að hafa.“ Hún segir að fyrst hafi verið skrifað undir samninginn árið 2014. Sjúkrahúsið á Akureyri og heilsugæslan þar geri svipaðan samning við Heilbrigðisstofnun Norður- lands. Samkvæmt frétt á vef Landspítala er ein mikilvægasta viðbótin viðauki fyr- ir starfsnámstíma á ýmsum deildum; á kvennadeild, bráðadeild, í lyflækningum og á öldrunardeildum, í geðþjónustu og á Barnaspítala Hringsins. Um 40% af sérnámi sérnámslækna fer fram á sjúkrahúsi. Nærri 60 læknar stunda sérnám í heim- ilislækningum á Íslandi en þar af starfar nærri þriðjungur inni á Landspítala á hverj- um tíma. Árið 2019 útskrifuðust 8 heimilis- læknar. „Ég hef haldið dagbók frá því að ég lærði að skrifa,“ sagði Páll Matthías son, forstjóri Landspítala á málþingi Læknadaga um kulnun þann 21. janúar og vitnaði í dagbók sína frá 1996 þegar hann var í sér- námi. „Það sem sló mig var að það var ekk- ert að frétta. Ég var alltaf á vakt,“ sagði hann og lýsti því að hann hafi ekki átt sér persónulegt líf. Þétt var setið í Silfurbergi á mál- þinginu. Þar töluðu einnig Alma Möller landlæknir, Gerður Aagot Árnadóttir, heimilislæknir, Sigríður Dóra Magnús- dóttir, framkvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslunni, og Haraldur Erlendsson geðlæknir. Páll vitnaði einnig í fyrirlestur um kulnum sem hann ásamt fleirum hélt sem yfirlæknir á geðsviði Landspítala árið 2009. Þar hafi verið rætt um lækninn sem drekki of mikið, þann þunglynda, lækninn sem virði ekki mörk við sjúk- linga og útbrennda lækninn. Kulnun meðal lækna sé kannski fyrir ferðarmest um þessar mundir. „Kulnun er ekki geðsjúkdómur held- ur skiljanleg viðbrögð við álagi,“ sagði Páll og rakti skaðlega þætti eins og full- komnunaráráttu, vinnukúltúr lækna og ótta við mistök. Hann nefndi aðgerðir Landspítala við vandanum og sagði ábyrgð vinnuveitenda mikla. Hann velti því fyrir sér hvort þau almennu úrræði sem grip- ið væri til á spítalanum væru sem skilaboð á segli á ísskáp, ekki væri nóg að gert. „Við höfum áhyggjur af kulnun hjá mörgum hópum. Hjá læknum, hjúkrunarfólki og sjúkra- liðum,“ sagði Páll. Stjórnun hafi verið efld og lögð áhersla á teymisvinnu og sjálfstjórn í vinnu. „Spennan á milli þess sem maður vill gera og þess sem er svigrúm til að gera er stundum þrúgandi,“ sagði Páll og rakti að spítalinn væri með stuðnings- og ráðgjafateymi sem starfsfólk geti leitað til hvort sem álagið tengist vinnunni ein- göngu eða einkalífi. Þá nefndi Páll meðal aðgerða að spítalinn væri í samstarfi við VIRK. Páll sagði þó að það væru ekki aðrar lausnir til við óbærilegu stressi en að minnka álagið. „Það má spyrja: Er sú sívaxandi kulnun og örvænting sem sést hjá læknum um allan heim afleiðing ákveðinnar aftengingar milli gilda lækna og læknisstarfsins annars vegar og heilbrigðisþjónustunnar hins vegar? Það er alla vega ljóst að þátttaka er and- hverfa kulnunar og þátttaka felst í krafti, helgun og áhuga. Hvernig við gerum vinnustað lækna að heilbrigðari og betri vinnustöðum er áskorun næstu ára og kannski áratuga.“ Erfitt að taka á kulnun Togstreita er á milli þess sem forstjóri Landspítala vill gera varðandi kulnun og þess sem er svigrúm til, sagði Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, í erindi sínu á Læknadögum. Hann sagði ábyrgð stjórnenda mikla en lausnina felast í samvinnu lækna og yfirmanna. Fjölmenni var á málþingi um kulnun. Mynd/gag.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.