Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Feb 2020, Page 36

Læknablaðið - Feb 2020, Page 36
88 LÆKNAblaðið 2020/106 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Hlustið á viðtalið á hlaðvarpi Læknablaðsins „Það er svo skammt frá hruni og í kjölfar þess var þögn talin einn af orsakavöldum þess hversu illa fór. Það hefði kannski bægt frá meira tjóni en ella hefði fólk tjáð sig,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í lyf- og gigtlækningum á Landspítala, þegar við setjumst niður á skrifstofu hans á sjöundu hæð Fossvogs- spítala og ræðum fund Svandísar Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra með Læknaráði Landspítala. Upptaka af fundinum fór víða í fjöl- miðlum vegna orða ráðherra um að erfitt væri að standa með spítalanum þar sem læknar ályktuðu á „færibandi“ um slæmt ástand hans. Þeir Ragnar og Björn Rúnar Lúðvíksson, formaður prófessoraráðs Landspítala, stigu fram á fundinum og gagnrýndu þessi orð, eins og sjá má hér í blaðinu. Læknablaðið hitti þá Björn og Ragnar hvorn í sínu lagi sama dag á skrifstofum sínum, Björn á Hringbraut og Ragnar í Fossvogi. „Það er háalvarlegt mál að við skulum ekki hafa lært meira af hruninu en þetta,“ segir Ragnar. „Ég tala nú ekki um að vinstri stjórnmálamaður biðji fólk um að þegja um grafalvarlegt ástand.“ Það hafi ekki verið að ástæðulausu að ályktanirnar komu á færibandi. Lýsa NEYÐARÁSTANDI „Mann grípur skelfing að hugsa til þess að fyrir einu og hálfu ári sögðum við að það væri neyðarástand. Ekkert var gert. Neyðarástandið verður því alltaf meira. Fyrst neyðarástand með litlum stöfum, svo Neyðarástand með stóru N-i og nú NEYÐARÁSTAND í hástöfum. Hvað velj- um við næst; últra-NEYÐARÁSTAND?“ Björn segir að hann telji að ráðherra hafi ekki áttað sig á því hve alvarlegt ástandið hafi verið í langan tíma. „Við höfum horft á hvernig hefur molnað und- an starfsemi spítalans mjög lengi. Þetta svakalega högg og niðurskurður sem verður við hrunið, um og yfir 20%, hefur aldrei verið bætt. Á sama tíma hafa verk- efnin margfaldast.“ Björn bendir á að læknar hafi á þessum sama rúma áratug séð gríðarlegar framfar- ir í læknisfræði. „Hátækni. Við meðhöndl- um sjúkdóma sem við gátum ekki fyrir áratug síðan. Við erum betri í að með- höndla alvarlega veikt fólk og koma því til heilsu sem við gátum ekki fyrir áratug síðan. Þetta kostar gríðarlegt fjármagn.“ Ragnar nefnir margt sem vel hafi ver- ið gert undir stjórn ráðherra, eins og að byggja hjúkrunarrými, koma til móts við fíkla og fanga. „En ímyndaðu þér að litla barnið þitt kæmi gangandi með einkunna- spjaldið úr skólanum. Það hefði fengið 10 í öllu en þú sérð að það er kviknað í hárinu á barninu. Hvað er fyrst á dagskrá þann daginn? Einkunnaspjaldið eða eldurinn?“ spyr hann. Óstarfhæf fyrir bráðveika „Við erum með óstarfhæft sjúkrahús þegar kemur að því að sinna bráðveiku, og þá sérstaklega bráðveiku öldruðu fólki,“ segir hann. Inntur eftir nánari útskýringum bendir hann á að frá því í haust hafi um 30 sjúklingar að jafnaði legið fastir á bráða- móttökunni. Þennan föstudag, 17. janúar, hafi tveir sjúklingar verið útskrifaðir af lyflækningasviði. „Það hefði þurft að útskrifa 35. Af deildinni minni þar sem útskrifa á 5 á dag fer enginn.“ Það sé einkar slæmt fyrir helgi þar sem starfsemin sé minni en á virkum dögum. Björn Rúnar segir að með orðum sínum hafi ráðherra staðfest þann stjórnunar- stíl sem viðgangist á spítalanum. „En það verður samt að segja henni til hróss Mikilvægt að benda á vandann – segja Ragnar Freyr Ingvarsson og Björn Rúnar Lúðvíksson Læknarnir segja mikilvægt að stíga fram og tjá sig um stöðu heilbrigðis- kerfisins. Ragnar Freyr segir umvandanir ráðherra á fundi Læknaráðs Land- spítala sérlega alvarlegar sé litið til bankahrunsins þar sem talið sé að verr hafi farið vegna þagnar fólks sem hafði þekkinguna en varaði ekki við. „Við þurfum að horfa til þess sem við gerum í dag, hvað við ætlum að gera eftir mánuð, hvað eftir 6 mánuði og hvað til lengri tíma,“ segir Ragnar Freyr. „Ég sé enga áætlun. Þess vegna erum við að hrópa um neyðarástand.“

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.