Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - Feb 2020, Page 46

Læknablaðið - Feb 2020, Page 46
98 LÆKNAblaðið 2020/106 ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir „Við erum heldur betur búin að þurfa að taka á honum stóra okkar,“ segir Þórar- inn Ingólfsson, einn eigenda og fram- kvæmdastjóri lækninga á Heilsugæslunni Höfða. Stöðin var opnuð 1. júní 2017 og leiða þeir Gunnlaugur Sigurjónsson lækn- ir hópinn. „Við vorum með fullmannaða stöð en mjög fáa skjólstæðinga þegar hún opnaði,“ segir hann. Þeir voru 2900 forskráðir við opnun og hafi fylgt sínum heimilislækni á nýjar slóðir. „Um áramótin 2017 voru þeir 4000 og núna 19.500,“ segir Þórarinn. Á Heilsugæslunni Sólvangi sem er næst stærst eru rúmlega 17.000 skráðir. Hann segir frá því að Heilsugæslan Höfða hafi verið sú fyrsta sem opnuð var á 11 ára tímabili. Þörfin hafi verið mikil og áhrifin af nýju fjármögnunarlíkani augljós, því samkeppni hafi myndast þegar fólki var með nýjum samningum gert kleift að kjósa með fótunum. Þeim hafi fjölgað sem sækja á heilsugæsluna og fækkað á bráða- móttöku. „Ríkisheilsugæslustöðvarnar höfðu ekki undan.“ Fólk hafi viljað sjá nýja nálgun á þjónustunni. Þeir hafi lofað fólki tíma hjá lækni sínum samdægurs. Það hafi þeim tekist að uppfylla með breyttu vinnulagi. „Það er engin bið. Sjúklingur- inn bara mætir.“ Hönnuðu stöðina sjálfir Þeir Þórarinn og Gunnlaugur fengu stöð- ina hannaða frá grunni eftir eigin áhersl- um og hugmyndum. Þeir lögðu áherslu á að þjónusta sem flesta á sem stystum tíma og að fólk hitti sinn heimilislækni sem sé lykilatriði. Læknar á stöðinni eru ekki bundnir eigin skrifstofu á morgunmót- töku heldur komi þeir til sjúklinga sinna í einu af 6 litlum skoðunarherbergjum stöðvarinnar. „Hjúkrunarfræðingar hafa þá þegar tekið stöðuna, dregið blóð eða annað sem þarf áður en læknir kemur á staðinn. Það er líka ómetanlegt að hafa myndgrein- ingarrannsóknir í sama húsi og rann- sóknarstofu opna allan daginn,“ segir hann. „Þannig getum við þjónustað marga á stuttum tíma en haldið til haga samfellu í þjónustunni.“ Þrjár biðstofur eru á heilsugæslunni. Ein fyrir mæðravernd, önnur fyrir vaktina og sú þriðja fyrir bókaða tíma. Mæðra- verndin er nú ein sú stærsta á landinu og yfir 300 konur sem fæddu í fyrra í þjón- ustu þeirra. Hann er stoltur af stöðinni, hönnun hennar og starfsfólki, sem deilir vinnuað- stöðu í opnu rými á morgnana sem skapar afar góðan vinnumóral og tækifæri til faglegs samráðs. „Hér er ekki skilið á milli hjúkrunarfræðinga og lækna. Hér höfum við endurmetið hvað læknar gera.“ Það hafi leitt af sér að læknar stöðvarinnar séu ekki bundnir eins yfir skriffinnsku og vottorðagerð. Valdeflandi að gefa eftir verkefni „Við læknar þurfum alvöru teymisvinnu. Við getum ekki gert þetta allt sjálfir. Ef sílóin sem reist hafa verið um hverja stétt eru tekin gengur allt betur. Það valdeflir alla sem við vinnum með.“ Þessi nálgun hafi skapað jafningjamóral á heilsugæsl- unni og fólk sé ánægt í starfi. Góð sam- vinna sé betri fyrir sjúklinga. „Það er ekki betra fyrir sjúklinginn að bíða eftir lækni þegar hægt er að leysa vandann með öðrum hætti,“ segir hann. Alls 11 læknar eru í fullri vinnu á stöðinni og tveir í hlutastarfi. Fjöldi sjúklinga hjá þeim sé ólíkur. Haukur Heiðar Hauksson, sem hóf störf nokkrum dögum fyrir viðtal, með ríflega 120 en Þórarinn sjálfur rúm- lega 1900. „Samvinna gerir okkur kleift að sinna fleirum. Við höfum stórkostlegt starfsfólk, hjúkrunarfræðingarnir, ljósmæðurnar og ritararnir. Við höfum aldrei auglýst eftir starfsmanni. Fólk vill gjarnan vinna hérna og það skiptir máli,“ segir Þórarinn. Ójafnt gefið af stóra bróður „Vandinn er ekki að fá starfsfólk. Vandinn er að reksturinn er undirfjármagnaður. Við þyrftum að ráða fleiri til að gera enn betur,“ segir Þórarinn og gagnrýnir stöðu sjálfstæðrar heilsugæslu gagnvart þeirri ríkisreknu. „Vandinn er ójafnræði,“ segir Þórarinn. „Við sem erum sjálfstætt starfandi berum skarðan hlut frá borði. Við kvörtuðum strax yfir því til Samkeppniseftirlitsins sem rannsakaði málið. Eftirlitið beindi svo tilmælum til heilbrigðisráðherra haustið 2017 sem ekki hefur verið brugðist við.“ Hann nefnir atriðin. Landspítalinn sé með samning við ríkisreknar heilsugæslustöðv- Segir yfirvöld hafa stungið tilmælum Samkeppniseftirlitsins ofan í skúffu, – Þórarinn Ingólfsson er ómyrkur í máli „Þetta hefur verið ævintýri,“ segir einn eigenda að Heilsugæslunni Höfða. Heilsu- gæslan er orðin sú stærsta á höfuðborgarsvæðinu á aðeins rúmum tveimur og hálfu ári. Skjólstæðingarnir eru 19.500. Hann gagnrýnir skakka samkeppnisstöðu sjálfstætt starfandi heilsugæslna gagnvart þeim ríkisreknu og að yfirvöld hafi ekki farið að tilmælum Samkeppniseftirlitsins um að bæta þar úr.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.