Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - febr 2020, Qupperneq 54

Læknablaðið - febr 2020, Qupperneq 54
106 LÆKNAblaðið 2020/106 út þessa ábyrgð hefur ekki komið fram. Hafa samtök sjúklinga óskað eftir skertri ábyrgð lækna? Vanmat sérfræðilegrar þekkingar Á seinni árum hefur fjölgað rekstrarstjórn- endum heilbrigðisþjónustu (sviðsstjórum, framkvæmdastjórum, forstöðumönnum) sem ekki eru ráðnir á grundvelli fagþekk- ingar sinnar. Aðeins er gerð krafa um lægstu háskólagráðu í „einhverri heil- brigðisgrein“ en ekki um yfirlæknishæfi. Þessir rekstrarstjórnendur eru settir yfir yfirlæknana. Huglægir þættir að hætti Capacent ráða för við mannaráðningar. Viðskiptanám virðist vera tekið fram yfir kunnáttu í vísindalegri læknisfræði. Að- alatriðið er að vera „liðsmaður“, að rugga ekki bátnum. Þá er framinn vís. Þó vita allir að aðeins heilaskurðlæknir er fær um að vera í forystu fyrir og bera ábyrgð á skipulagningu og framþróun heilaskurð- lækninga. Rekstrarnám er ekki forsenda þess að vera leiðtogi lækningastofnana frekar en hjá arkitekt sem stýrir arki- tektastofu eða biskup sem stýrir kirkju. Fagþekkingin gerir fólk hæft til forystu þekkingarstofnana. Lögleiðir Alþingi lögbrot post hoc? Þrátt fyrir rökstuddar umkvartanir um ólöglegar valdatilfærslur frá yfirlæknum til faglega vanhæfra aðila allt frá árinu 2000, úrskurði umboðsmanns og lagasetn- ingu Alþingis 2007, hafa rekstrarstjórnend- ur spítalans haldið áfram á sömu braut. Ráðherrar, hver á fætur öðrum, hafa með samþykkt skipurita – ef til vill án þess að gera sér grein fyrir því – fært aðilum sem ekki eru til þess bærir höfuðlæknisábyrgð, jafnvel ólæknislærðum. Allan þann tíma hefur spítalinn brunnið. Þeir sem hafa maldað í móinn á Landspítala hafa verið kallaðir „umdeildir menn“ og hafa verið beittir bolabrögðum. Nýjasta skipurit Landspítala, staðfest af ráðherra, tók gildi 1. október síðastliðinn (mynd 2A einfölduð mynd höfundar og 2B skipurit forstjóra). Ráðherrann hefur fengið forstjóra konungsvald án lagastoðar og forstjórinn síðan skipað þrjá jarla og 11 greifa yfir starfsemina. Fagstjórnendum sem eiga að bera ábyrgð skv. 10. grein laga um heilbrigðisþjónustu er sparkað til hliðar eða niður. Framkvæmdastjórar lækninga og hjúkrunar eru hliðsettir sem ráðgjafar í skipuriti forstjórans og hinir endanlega ábyrgu lögformlegu yfirlæknar koma hvergi fyrir í skipuritinu. Stjórn- kerfið fylgir ekki lögmætisreglu og er ófaglegt. Sviptir völdum bera yfirlæknar samt ábyrgð á starfsemi sinni að lögum. Af þessu leiðir að yfirlæknar bera ábyrgð á starfi yfirmanna sinna – eða hvað? Eru það ekki öfugmæli? Ábyrgð og valdheim- ildir fara ekki saman. Til þess að vera fær um að bera ábyrgð á starfi sérgreina þurfa yfirlæknar að uppfylla strangt mat um fagleg hæfnisskilyrði. Starfsmenn sér- greinanna þurfa að heyra undir yfirlækn- ana sem og ákvarðanir um tæki og tól eins umboðsmaður bendir á í áliti sínu 6. sept- ember síðastliðinn. En þar kreppir skórinn á Landspítala. Heilbrigðisráðherra hefur samþykkt skipuritsþvæluna þótt hún sé andstæð lögum. Landlæknir aðhefst ekki, ekki heldur ríkisendurskoðun eða stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Hvað er til ráða? Landspítali hefur frá sameiningu árið 2000, verið rekinn sem deild í ráðuneyti heilbrigðismála eða síðan stjórnarnefndir spítalanna voru aflagðar. Núverandi „ráð- gjafarstjórn“ Landspítala er valdalaus og ábyrgðarlaus. Spítalinn og sjúklingarnar hafa tapað málsvörum og forstjórinn misst nauðsynlegt aðhald. Á fjölsóttum læknaráðsfundi Landspít- ala 15. nóvember 2019 höfnuðu læknar Landspítala stjórnkerfi forstjórans. Hvöttu læknar ráðherra til að sjá til þess að skipurit sjúkrahússins sé faglegt, fylgi lögum, og taki mið af umsögnum um- boðsmanns. Fundurinn ályktaði að tryggja þyrfti að yfirlæknar beri sem fyrr faglega ábyrgð á þeirri læknisþjónustu sem undir þá heyrir gagnvart framkvæmdastjóra lækninga. Sömuleiðis að læknaráð starfi með sama hætti og verið hefur um ára- tuga skeið. Jafnframt hvatti fundurinn til þess að íhugað verði að skipa stjórn yfir Landspítala sem hafi það hlutverk að ráða og hafa eftirlit með forstjóra, tryggja fjár- mögnun og sjá til þess að spítalinn sinni þríþættu hlutverki sínu sem lækninga- stofnun, kennslu- og vísindastofnun. Þessar ályktanir lækna spítalans þýða á mannamáli að núverandi stjórnkerfi Landspítala sé hvorki faglegt né löglegt og að ofríki rekstrarstjórnenda ógni jafnvel öryggi sjúklinga. Ábyrgðarkeðjan sé alls ekki eins og sjúklingar og Alþingi ætlist til. Ég á bágt með að trúa að Svandís Svav- arsdóttir hafi samþykkt hið nýja skipurit Landspítala vitandi að það stæðist ekki fagleg sjónarmið, lög eða álit umboðs- manns sem birt var fáum vikum fyrr. Hafi ráðherra ekki áttað sig á vanköntunum eða verið beinlínis dulinn þeim af ráðgjöf- um sínum, væri ráð að draga staðfestingu skipuritsins til baka, hlusta á fagmenn, lesa álit umboðsmanns, og tryggja að rekstrarstjórnendur Landspítala fari að gildandi lögum eins og forsætisráðherra krafðist í ræðustól Alþingis. Með skipun sjálfstæðrar stjórnar mætti frelsa spítal- ann undan ráðuneytinu. Í dag er íslenski háskólaspítalinn lítt eftirsóknarverður vinnustaður fyrir metnaðarfulla unga lækna, sem hafa lagt á sig sérmenntun og strit á leiðandi háskólasjúkrahúsum austan og vestan hafs. Vill þjóðin ekki endurheimta bestu námsmenn sína til starfa á þjóðarsjúkrahúsinu? Ráðamenn ættu að íhuga að verði viðskiptanám og stjórnunarheimspeki metin meira virði en hin eiginlega þekking og starf (lækningar og hjúkrun, kennsla og vísindastarf) er hætt við að íslenskri læknisfræði hraki á næstu árum. Hæfasta unga fólkið, leið- togar læknisfræðinnar, munu sækjast eftir sínum frama annars staðar. Ég efast um að ráðherra og kjósendur vilji það. S J Ó N A R H O R N

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.