Gríma - 01.09.1941, Blaðsíða 26
4
UM SANDHOLTSFEÐGA
fénazt svo vel, að hann hafi átt 15 þúsundir ríkisdala,
þegar hann kom þaðan aftur heim til íslands. —
í Grænlandi komst Egill í kynni við stúlku, sem
Aníka hét, og giftust þau svo og áttu þrjú börn.
Aníka hét fullu nafni Aníka Tanika Fanika Mohr og
var Eskimói í móðurætt, en sagt er, að faðir hennar
hafi verið Svíi og heitið Óli Mohr. Aníka hafði verið
bæði fríð kona og gáfuð og fluttist hún með manni
sínum hingað til lands, og settust þau að í Keflavík,
en fluttust síðar til Reykjavíkur, og þar dó hún. —
Hún hélt grænlenzkum siðum sínum eftir það er hún
var flutt hingað til íslands, en að ýmsu framferði
hennar mun nágrannakonunum í Reykjavík ekki
hafa geðjazt sem bezt, og var mikið um einkennilega
háttu hennar skrafað. — Um hana var það m. a. sagt,
að hún legði sér til munns hrafna og ketti, en þetta
mun vera orðum aukið, því að þau Egill og Aníka
voru efnuð, eða öllu heldur auðug hjón, og þurftu
því ekki að leggja sér slíkt óæti til munns. En frá
því er líka sagt, að Aníka hafi, að grænlenzkum sið,
borið börn sín í poka á bakinu um götur Reykja-
víkur, og mun það vera satt. —
Egill Sandholt og Aníka eignuðust þrjú börn, tvo
syni, Óla og Jens, og eina dóttur, Elínu, sem átti
Diðrik Hölter, en þeirra dóttir var Aníka, kona Dið-
riks Knudsens snikkara. — Jens Sandholt var einn
þekktasti borgari Reykjavíkur eftir aldamótin 1800
og var þar veitingamaður um tíma, en Egill sonur
hans fluttist til ísafjarðar, og er Sandholtsættin hér
á landi afkomendur hans, en margt manna þeirrar
ættar er fríðleiksfólk og mörgum góðum kostum bú-
ið. Dóttir Jens Sandholts var Sigríður móðir Ásgeirs
Ásgeirssonar etatsráðs á ísafirði. - Óli Sandholt varð