Gríma - 01.09.1941, Blaðsíða 47
FRA KRISTJÁNI FÓTALAUSA
25
festir í tagl á hesti. Fer Jón síðan á bak hestinum
og ríður sem hvatast með Kristján í togi heim til
hans að Heiðarseli. — Mælt var að Jón riði svo hratt
með köflum, að Kristján drægist öðruhvoru flatur
með jörð. — Afhenti hann nú Benedikt í Heiðarseli
son hans og hét stráknum enn verri för, ef hann
héldi uppteknum hætti um komur að Lundarbrekku.
— Ekki er getið undirtekta Benedikts, en brátt eftir
þetta lagði Kristján af útilegur.
b. Kristján frýs úti og missir limi.
Næst er Kristjáns getið austur í Vopnafirði. Er
hann þá vinnumaður þar og fulltíða. — Mælt er, að
hann frétti þangað lát stúlku einnar á Illugastöðum
í Fnjóskadal, er Sigríður hét, og grunur lék á, að lát-
izt hefði af mannavöldum. Var Sigríður frændkona
Kristjáns. Fylltist Kristján heift og bræði til bana-
manns Sigríðar og tókst þá ferð á hendur til
Fnjóskadals að vetrarlagi, þeirra erinda, eftir því,
sem hann sjálfur sagði, að hefna frændkonu sinnar
og drepa hinn seka. — Gisti hann hina fyrstu nótt á
bæ nokkrum undir Dimmafjallgarði. Að morgni var
hríðarveður, og vildi Kristján ekki leggja á fjall-
garðinn. — Bóndi fór til gegninga um morguninn,
en Kristján sat inni hjá húsfreyju. Lét hún þau orð
falla, að ratljóst væri og ástæðulaust fyrir Kristján
að sitja þar hríðtepptur. Þoldi Kristján eigi frýju-
yrði hennar og þaut af stað og lagði á fjallgarðinn.
Var á grenjandi stórhríð og grimmdarfrost. Æddi
Kristján áfram, eftir því sem hann hugði réttasta
leið, og gekk, þar til dimmdi af nóttu. Var Kristján
þá orðinn allþrekaður og sagði hann svo síðar frá,
að hann hefði lagzt fyrir norðan í skafli og verið þá