Gríma - 01.09.1941, Page 39
UM SANDHOLTSFEÐGA 17
enda munu þeir áður en lauk flestir hafa trénazt
upp á því að venja komur sínar á þær hafnir, ,sem
þeir mágarnir, Clausen og Sandholt, verzluðu á. —
Árni Sandholt var búsettur í Kaupmannahöfn í 23
ár og barst þar talsvert á, eins og íslenzkra kaup-
manna var siður í þá daga. Þau hjónin eignuðust
þrjú börn, son, sem Óli hét og var efnilegasti maður,
en dó ungur, og tvær dætur, sem hétu Ólína og Guð-
rún og giftust báðar tignum dönskum mönnum. —
Dætur Árna voru á sínum tíma orðlagðar í kóngs-
ins Kaupmannahöfn fyrir fríðleik sinn og glæsilega
háttsemi. Og þar sem þær voru dætur ríks manns,
var þeim veitt það bezta uppeldi og menntun, sem
kostur var á. Þær voru því gjaforð góð, enda kallað-
ar „de islandske Guldfugle"1) meðal ungdómsins í
Höfn. Guðrún giftist Scheel greifa, en Ólína giftist
Bardenfleth liðsforingja, sem mun hafa verið sonur
Bardenfleths, sem hér var stiftamtmaður. Af þeim
eru komnar ættir í Danmörku, en ekkert afkvæmi
þeirra hefur borizt til íslands. —
Sagt er, að Árni Sandholt hafi átt laundóttur með
dóttur Jóns nokkurs í Gjótu við Búðir, sem var fá-
tækur þurrabúðarmaður, en vandaður. — Þessi
stúlka, sem hét Guðrún, var kölluð Jónsdóttir, þó að
flestir þættust vita hið rétta faðerni, því að svo hafði
hún svarið sig í föðurætt sína. Árni hafði sýnt telp-
unni ræktarsemi og borið umhyggju fyrir því, að
hún fengi gott uppeldi, og kom henni því norður að
Kolbeinsá í Strandasýslu til Ólafs Gíslasonar hafn-
sögumanns, sem var vinur Sandholtsbræðra. Hjá
honum var fyrirmyndar heimili, og þar fékk Guð-
U Þ. e. islenzku gullfuglarnir.
2