Gríma - 01.09.1941, Síða 79
FRÁ HJÖRLEIFSHÖFÐA
57
til þess að ná sér í vatn að drekka. En rétt um leið
og hann var að drekka úr bollanum, varð honum
litið inn í eldhúsdyrnar. Sér hann þá hvar kemur
labbandi innan úr eldhúsinu ókennilegt kvikindi,
svart, lágfætt og með langt, loðið skott. Það stanzar
augnablik, um leið og það fer út úr dyrunum, lítur
á drenginn, og sýnist honum það hvessa á sig aug-
un. Síðan fer það út í skúrinn, sem var fyrir út-
göngudyrunum, og hverfur þar.
Eins og áður er sagt, var allt hitt fólkið inni' í
búri, þegar þetta var; en búrið var vestur af eldhús-
inu. Þar var tík inni hjá fólkinu. Fór hún allt í einu
að ýlfra og væla og bera sig aumlega, eins og hún
þyrði hvergi að vera. Mamma kallaði þá til hennar;
hún kom og þrýsti sér fast upp að henni, eins og hún
væri að leita sér skjóls.
í sama bili þyrmdi yfir höfuð konu Guðmundar;
fannst henni eins og væri að líða yfir sig, og það
dró úr henni allan mátt. En þetta leið frá aftur um
leið og drengurinn kom inn úr eldhúsinu, og þá
hætti tíkin líka að ýlfra.
Mér er enn ókunnugt um, hvers konar dýr það
var, sem við sáum.