Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 Fréttir Umræða um matvælaverð hefur verið allnokkur síðustu misseri. Viðfangsefnið nálgast málshefj- endur úr ýmsum áttum og sýnist sitt hverjum eins og gengur. Tölur Eurostat hafa þó sýnt að samfellt frá 2007 hefur hlutfall útgjalda neytenda á Íslandi til matvæla- kaupa verið lægra en að meðaltali í 28 ríkjum Evrópusambandsins. Bændasamtökin gáfu í janúar út skýrslu um þætti sem hafa áhrif á matvöruverð. Þar kom í ljós að afurðaverð til frumframleiðenda er oft ekki nema brot af endanlegu smásöluverði. „Þeir eru fjölmargir, ekki aðeins afurðaverð til bænda heldur líka, laun starfsfólks í virðiskeðjunni, samkeppni á smásölumarkaði, nýt- ing verslunarhúsnæðis, afgreiðslu- tími verslana og skattar og gjöld á matvæli,“ segir Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtakanna. Samanburður við önnur lönd athyglisverður Erna segir áhugavert að bera matvælaverð á Íslandi saman við nágrannalöndin og verðlag innan ESB. Eurostat (hagstofa Evrópusambandsins) hefur yfir yfir- gripsmiklum gagnagrunni að ráða í þessu skyni. Þar er hægt að gera samanburð á hlutfallslegu verðlagi á matvörum. Það felur í sér saman- burð á verðlagi hvers lands miðað við meðaltals verðlag innan ESB. Ef hlutfallslegt verðlag er hærra en 100 er verðlag hærra en að meðaltali innan ESB og öfugt. Einnig má lýsa þessu sem verð- lagi mælt í evrum, með kaupmáttar- jafngildingu. Eurostat ber saman verðlag með þessum hætti fyrir 32 lönd en aðeins 19 þeirra eru hluti af evrusvæðinu, auk Danmerkur en danska krónan er nátengd evru. Samkvæmt nýjustu tölum Eurostat er Ísland í 8. sæti á þessum mælikvarða. Lægst er matvælaverð í löndum A-Evrópu mælt með þessari aðferð Eurostat. „Þar, líkt og á Íslandi, er evran hins vegar ekki alls staðar orðin gjaldmiðill heldur enn notaðir gjald- miðlar viðkomandi landa, ef frá eru talin Eystrasaltslöndin, Slóvakía og Slóvenía. Almennt má segja að eftir því sem laun eru hærri í viðkomandi landi, því hærra er verðlag, þar með talið á matvörum,“ segir Erna. − Hve háu hlutfalli af útgjöldum sínum verja neytendur til matvæla- kaupa? „Á það hefur oftsinnis verið bent að hæð á verðlagi segi ekki alla söguna, heldur skipti meira máli hve þungt útgjöld til matvælakaupa vegi í heildarútgjöldum heimilanna. Matur er jú ein helsta grunnþörfin sem þarf að uppfylla og því minna af ráðstöfunartekjum sem fara til þess, því meira er eftir til ráðstöfunar í annað.“ Bretland hagstæðast Samkvæmt Eurostat verja Íslendingar 13,3% útgjalda sinna til kaupa á matvörum og eru í 10. sæti neðan frá á þeim mælikvarða. Hagstæðast að þessu leyti er að búa í Bretlandi en þar er enginn virðisaukaskattur á matvæli. Í þeim löndum þar sem verðlag mælist hvað lægst eru útgjöld neyt- enda að jafnaði hlutfallslega há til matvælakaupenda. Í þeim hópi eru meðal annars Eystrasaltslöndin sem hafa tekið upp evru. Meðaltal ESB- landa er um 14% og evru-löndin koma lítið eitt lakar út. Lægra hlutfall til matarkaupa á Íslandi öll árin frá hruni − Hvernig hefur þróun útgjalda vegna matarkaupa verið undanfar- in ár í samanburði við ESB-löndin? „Hjá Eurostat er einnig hægt að skoða hvernig hlutfall útgjalda til kaupa á matvörum hefur verið að þróast undanfarinn áratug. Meðfylgjandi mynd sýnir saman- burð á Íslandi annars vegar og ESB í heild hins vegar. Greinilegt er að áhrifa fjármálakreppunnar í heimin- um gætir fyrr í ESB en á Íslandi, eða strax á árinu 2008. Eðlilega kemur hins vegar stökk til hækkunar á Íslandi árið 2009 og hefur síðan aftur farið jafnt og þétt lækkandi og er öll árin lægra en í ESB í heild. Á árinu 2016 má þó merkja hækkun á ný og þarfnast það nánari skoðunar. Því má bæta við að hlutfall útgjalda til kaupa á innlendum búvörum (mjólk- urvörum, eggjum og kjötvörum) er um 5,4%,“ segir Erna. Lækkun tolla tryggir ekki endi- lega lægra verð til neytenda − Hvernig er verðlag á innfluttum matvörum án tolla? „Nær allar aðrar matvörur (utan kartaflna og örfárra annarra undan- tekninga) eru fluttar inn án tolla og ættu því að vera sambærilegar í verði og gerist í nágrannalöndunum ef kenningar talsmanna afnáms tolla standast. Tölur Eurostat hafa hins vegar fram til þessa sýnt að brauð og kornvörur og ávextir og grænmeti eru hlutfallslega dýrari hér á landi en í nágrannalöndunum. Þetta undir- strikar að verð til neytenda ræðst af fjölmörgum þáttum,“ segir Erna. Hún bendir á að margoft hafi verið sýnt fram á að afurðaverð til bænda er aðeins lítill hluti af útsöluverði og hefur farið lækkandi sem hlutfall af því á undanförnum árum og ára- tugum. Úrvinnsla, eftirlitskostnaður, markaðs- og dreifingarkostnaður og smásöluálagning séu dæmi um þætti sem hafa á móti hækkað sem hlutfall af útsöluverði. Hlutfall tekna sem fer í matarkaup er einn mælikvarði á lífskjör „Einn mælikvarði á lífskjör er hversu stórt hlutfall útgjalda neytenda af heildarútgjöldum fer til kaupa á mat- vælum. Hér á landi er þetta hlutfall lítillega undir meðaltali ESB. Það hlýtur að verða keppikefli okkar að svo verði áfram og að þetta hlutfall lækki enn. Það eru fjölmargir þættir sem hafa áhrif á matvælaverð til neytenda. Á sumum sviðum, eins og í heilbrigð- iskröfum, hefur íslenskur landbúnað- ur dýrmæta sérstöðu sem standa þarf vörð um. Landbúnaðurinn mun á móti leitast við að hagræða og leggja sitt af mörkum til að byggja gjöfult samfélag,“ segir Erna Bjarnadóttir. /HKr. Tölur Eurostat um þróun útgjalda vegna kaupa á matvælum sýna hagstæðan samanburð Íslands við ESB-ríkin öll árin frá 2007: Matvælaverð er hlutfallslega lægra á Íslandi en hjá öllum hinum Norðurlandaþjóðunum − Þá er hlutfall útgjalda neytenda til matvælakaupa hærra í 25 Evrópulöndum en hér á landi Bretland Sviss Austurríki Lúxemborg Þýskaland Írland Danmörk Noregur Holland Ísland European Union (28 countries) Euro area (18 countries) Euro area (19 countries) Svíþjóð Finnland Malta Belgía Frakkland Slóvenía Slóvakía Ítalía Kýpur Pólland Tékkland Búlgaría Spánn Ungverjaland Eistland Portúgal Króatía Grikkland Litháen Lettland Tyrkland Rúmenía Noregur Svíss Danmörk Svíþjóð Finnland Írland Austurríki Ísland Luxemborg Frakkland Ítalía Belgía Kýpur Bretland Þýskaland Grikkland Malta ESB 28 Holland Slóvenía Portúgal Spánn Króatía Lettland Slóvakía Eistland Tékkland Ungverjaland Litháen Rúmenía Pólland Búlgaría Erna Bjarnadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.