Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 Lokaverkefni Sigurðar Kristins Jónssonar í vél- og orkutæknifræði hjá Háskólanum í Reykjavík: Svínagasframleiðsla á Vatnsleysuströnd − Kostnaðargreiningar og arðsemismat sýna að metanorkuframleiðsla er raunhæfur kostur fyrir svínabúið Sigurður Kristinn Jóhannesson, sem útskrifaðist úr vél- og orku- tæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík í síðasta mánuði, skilaði þar athyglisverðu verk- efni. Lýtur það að því hvernig hægt sé að framleiða gas, raf- magn og hitaorku ásamt lífræn- an áburð úr svínaskít í svínabúi á Vatnsleysuströnd. Sigurður hefur einnig verið í meistaranámi í Danmörku að undanförnu. Sigurður var svo vinsamlegur að upplýsa lesendur Bændablaðsins um þetta verkefni sitt í eftirfarandi texta: Búið treystir í dag alfarið á rafmagn Ólíkt flestum svínabúum á Íslandi er Svínabú Ali á Vatnsleysuströnd ótengt við hitaveitu og treystir alfar- ið á rafmagn til kyndingar svína- býlisins. Hliðarafurð í svínaeldinu sem fellur til í stórum stíl er lífrænn úrgangur. Lífrænn úrgangur eða lífmassi er samheiti yfir hin ýmsu lífrænu efni s.s. matarleifar, gras, skólp, fiski- úrgangur, sláturúrgangur, saur, þör- ungar, plöntur o.s.frv. Umræddan úrgang er hægt að vinna frekar og umbreyta í lífgas sem myndast við loftfirrt niðurbrot á lífrænum efnum og efnaskiptum baktería. Metangas er megin uppistöðuefni í lífgasi og er orkurík gastegund. Í lokaritgerð til fullnaðar BSc- gráðu í vél- og orkutæknifræði var leitast við að svara eftirfarandi spurningu, hvort uppsetning á minni háttar orkuveri á lóð svínabýlisins til framleiðslu á lífgasi væri hagkvæm. Áhugasamir geta nálgast lokarit- gerðina í heild sinni inn á vefsíðu Skemmunnar. Rannsóknir sýna að framleiðsla á lífgasi sé umhverfisvæn og brennsla á lífgasi dregur úr gróðurhúsaáhrif- um. Lífgas má nýta á margvíslegan hátt en í tilfelli svínabýlisins var lagt upp með að hagnýta lífgasið til upphitunar á svínabýlinu og neysluvatni. Framleiðsluferlið Í grunninn er framleiðsla á metangasi með sams konar beinagrind víðast hvar í heiminum og gekk því ver- kefnið út á að nýta þekkingu og reynslu erlendis frá og yfirfæra á krefjandi íslenskar kringumstæður. Hönnunin tók því mið af íslenskum aðstæðun sem og að aðlaga mann- virki og aðra innviði að framleiðslu svínabýlisins. Framleiðsluferlið sem passar best við það umhverfi og aðstæður sem metanorkuverið á að starfa í er millihitaþolið fram- leiðsluferli. Hentugast er að aðlaga millihitaþolið framleiðsluferli að staðarháttum og því verður það fyrir valinu sem framleiðsluferli. Sú fram- leiðsluaðferð er einfaldari og krefst minna magns af orku til upphitunar heldur en með hitaþolnum bakterí- um. Kjörhitastig fyrir millihitaþoln- ar bakteríur er 36–38 gráður og þá er viðbúinn viðverutími í kringum 15–30 dagar. Í skýringarmyndinni hérna fyrir ofan má sjá framleiðsluferli á met- ani. Ferlið hefst vinstra megin á skýr- ingarmynd með söfnun á lífmassa í svokallaðan safntank eða fortank. Algengt er að samsetning lífmassans sé fjölbreytileg og þá reynist betra að nota hakkara til að brjóta niður lífræn efni sem er svo blandað saman við mykju í blandara. Í stóru gulu gerjunartönkunum fer fram sjálft gasmyndunarferlið undir stöðugum loftfirrtum og ljóslausum aðstæðum. Hratið eða gerjaður lífmassi er að lokinni gerjun flutt yfir í geymsluþró áður en hratinu er dreift á tún. Í gerjunartanknum stígur lífgasið svo upp til lofts í svokallaðan gastank sem er sambyggður ofan á gerjun- artankinn. Lífgasið er leitt í gegnum hreinsun vegna tærandi efna. Lífgasið er sprengt í varma- og rafmagnseiningu (e. combinded heat and power unit eða CHP) þar sem rafmagnið er flutt inn á raforkukerfið en varmaorkan frá brunanum fer í gegnum varmaskipti til frekari nota. Útfærslan fyrir svínabúið er fyrst og fremst frábrugðin að því leytinu til að í stað þess að sprengja lífgas- ið í varma- og rafmagnseiningu er lífgasið brennt í gasbrennara og öll efnaorkan er þar af leiðandi nýtt til upphitunar á svínabúinu. Í þessu tilviki er ónauðsynlegt að hreinsa lífgasið fyrir brennslu. Hvað er svo gert við hratið? Orkuframleiðsla er ekki eini ávinn- ingurinn sem hlýst af metangerjun. Í þokkabót stendur eftir lífmassi sem er tilvalinn til áburðargjafar. Lífmassinn sem eftir stendur að lokinni gerjun kallast hrat. Frekari nýting á hrati til áburðargjafar er mjög áhugaverður kostur fyrir margar sakir. Á meðan metangerjun stendur brotna niður lyktarmengandi efni sem dregur töluvert úr lyktarmeng- un frá skítnum og starfsskilyrði við dreifingu batna. Plöntur bregðast betur gegn hratinu því mörg efni og sýrur sem hafa skaðleg áhrif á plöntur brotna niður í gerjunarferlinu. Hratið er samleitnari massi með betri flæði- eiginleika og er hratið meðfærilegra en annars. Við metangerjun verður minna köfnunarefnistap í ferlinu saman- borið við tap frá óunnum úrgangi, því er hratið næringarríkari áburður. Efnaskipti í gerjuninni fyrirbyggja mengun á grunnvatni af völdum nítrats. Metangasvinnsla á lífmassa hefur jákvæð áhrif á loftgæði vegna minni losunar á metangasi og ammóníaks. Gerjunarferlið dregur úr frjósemi illgresisfræja og sýklahættu sem lífmassi getur borið með sér. Hversu áhrifarík virknin er frá gerjunarferlinu er háð hitastigi og viðverutíma. Ljóst er að umhverfisábati þess að fullnýta mykjuna er umtalsverður. Sala á hrati til áburðar er algeng sjón á meginlandi Evrópu. Umrædd hliðarafurð sprottin úr lífgasfram- leiðslu verður oft mikilvæg tekjulind fyrir metanorkuver erlendis. Slíkar forsendur voru ekki teknar með í arð- semisreikninga í ritgerðinni þar sem sölusamningar á hrati lágu ekki fyrir. Úr skít yfir í orku Miðað er við framleiðslutölur frá árinu 2014 sem gefa 7.565 tonn af blautum svínaskít. Miðað við 7.565 tonn af blautum svínaskít og 10,31 rúmmetra af metangasi fyrir hvert tonn af blautum svínaskít fást 77.995 rúmmetrar af hreinu metangasi við normalaðstæður. Metangasmagnið sem fæst er 8,9 rúmmetrar á klukkustund að meðaltali yfir allt árið. Orkuinnihald á hreinu metangasi er 9,81 kílóvattstundir sem jafngildir meðalafli upp á 87,34 kílóvött, eða 765.131 kílóvattstundir á ári. Til að setja hlutina í samhengi nam heildar raforkunotkun svínabýlisins sama ár 898.710 kílóvattstundum. Eftir stendur ekki öll framleidd orka til umráða því þegar gasið er brennt tapast alltaf einhver orka sökum orkutapa í kerfinu. Auk þess þarf að eyða orku til þess að búa til orku. Metanorkuverið er þar engin undantekning með orkufrekan hita- og rafbúnað í framleiðsluferlinu. Þegar eigin orkunotkun hefur verið dregin frá framleiddri orku þá stendur eftir nettó orkuframleiðsla. Áætluð árleg nettó orkuframleiðsla nemur 417.020 kílóvattstundum. Niðurstöður Niðurstöður sýna tvímælalaust að framleiðsla á lífgasi er umhverfis- væn og brennsla á lífgasi dregur úr gróðurhúsaáhrifum. Niðurstöður kostnaðargreiningar og arðsemismats sýna að metanorka er raunhæfur kostur fyrir svínabúið. Kostnaður orkuversins er rekstrar- kostnaður vegna afskrifta, vinnu og viðhalds á orkuverinu. Starfsemi metanorkuversins stuðl- ar því að umhverfisvænni verðmæta- sköpun. Tækifæri fyrir metangas á Íslandi Í grunninn er framleiðsla á metangasi með sams konar beinagrind víðast hvar og auðvelt að yfirfæra fram- leiðslulausnir með aðlögunar- breytingum yfir á önnur býli og bæi á Íslandi. Lausnirnar geta verið þess eðlis að henta einyrkjum á bóndabýl- um yfir í að þjóna bæjarsamfélögum á landsbyggðinni þar sem íbúar geta tekið sig saman og framleitt metangas til ýmissa nota. Í landshlutum þar sem hitaveita hefur ekki verið lögð er brennsla á metangasi sniðug lausn til rafmagns- framleiðslu og húshitunar. Í landshlutum þar sem hitaveitu hefur verið komið á kopp þjónar metangas vel sem orkugjafi í sam- göngum. Þar má nýta affallsvatn úr húsum til upphitunar á gerjunartank og draga þannig stórlega úr fram- leiðslukostnaði sem vegur upp á móti kaupum á hreinsibúnaði en nauðsyn- legt þykir að hreinsa metangasið fyrir notkun í samgöngum. Forritaþróun fyrir landbúnað Upplýsingatæknisvið Bændasamtaka Íslands óskar eftir að ráða forritara til starfa í Reykjavík. Tilvonandi starfsmaður mun vinna við þróun vefforrita fyrir landbúnað. Æskileg þekking og reynsla: • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg menntun • Python, Django og Linux • Oracle gagnagrunnur • Java • HTML5 og CSS3 • Javascript og jQuery • Agile/Scrum aðferðafræði Hæfniskröfur: • Geta til að vinna í teymi og sjálfstætt • Frumkvæði, metnaður og framsýni • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum Í boði er fjölbreytt og spennandi forritunarstarf þar sem reynir á teymisvinnu, sjálfstæð vinnubrögð og getu til að takast á við krefjandi verkefni. Umsóknarfrestur er til 22. júní 2016. Nánari upplýsingar gefur Þorberg Þ. Þorbergsson, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs Bændasamtaka Íslands,í síma 563-0300 eða í netfangið thorberg@bondi.is. Bændasamtök Íslands – Bændahöllin við Hagatorg - 107 Reykjavík - www.bondi.is – 563-0300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.