Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 12

Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 Hinn 10. maí síðastliðinn var til- kynnt um úrslit í Evrópuforkeppni matreiðslukeppninnar Bocuse d´Or þar sem Viktor Örn Andrésson keppti fyrir hönd Íslands, ásamt aðstoðarmönnum sínum. Íslenska liðið náði fimmta sæti sem telst frábær árangur, en það tryggir liðinu sæti í aðalkeppni Bocuse d'Or, sem haldin verður í Lyon í Frakklandi 24. og 25. janúar 2017. Keppt var í tveimur riðlum, alls 20 lið, og fara tólf þjóðir upp úr riðlunum og keppa í Lyon. Sérstök aukaverðlaun voru veitt fyrir ein- staka rétti og þar sigraði íslenski fiskrétturinn. Svíþjóð var með besta aðstoðarmanninn og Frakkland með besta kjötréttinn. Bocuse d‘Or hefur verið haldin síðan 1987 en fyrsti íslenski kepp- andinn tók þátt árið 1999, þegar Sturla Birgisson náði fimmta sæti. Síðan þá hafa Íslendingar alltaf verið í einu af níu efstu sætunum en bestum árangri náði Hákon Már Örvarsson árið 2001 þegar hann vann til bronsverðlauna. /smh Fréttir Upplýsingar: 893-8424 / set@velafl .is og á 694-3700 / gk@velafl .is www.velafl.is Ný gúmmíbelti frá Linser til á lager fyrir allar gerðir véla 2–5 tonn Markaðurinn og völundar - húsið opnað á Engi Á föstudaginn síðastliðinn var garðyrkjustöðin Engi, grænmet- is- og kryddjurtamarkaðinn, opn- aður í Laugarási, Biskupstungum. Sömuleiðis vaknaði völundarhús- ið til lífsins eftir vetrardvalann. Þá verður áfram haldið með Berfótagarðinn frá því í fyrra þegar hann var kynntur sem nýj- ung á Engi. Völundarhúsið þekkja margir, enda hefur það verið að taka á sig mynd og draga að sér athygli síðast- liðin sjö ár. Völundargarðurinn nær yfir þúsund fermetra og mótast af gulvíði sem er klipptur til, en hann nýtur mikilla vinsælda hjá barna- fjölskyldum. Berfótagarðurinn er nálægt völ- undarhúsinu og er í raun gangstígur sem liggur inni á milli hárra trjáa og lægri runnagróðurs. Gestir taka af sér skó og sokka og feta sig eftir stígn- um sem þakinn er ýmsum ólíkum náttúrulegum efnum; sandi, stein- völum, furukönglum og margs konar ilmandi jurtum. Vínviðurinn laufgast Þau Sigrún Reynisdóttir og Ingólfur Guðnason hafa rekið lífrænt vottaða garðyrkjustöð á Engi frá 1996 og hafa alltaf verið framsækin og leitandi í því að prófa nýja hluti í krydd- og grænmetisræktun sinni. Til að mynda hafa þau sótt innblástur talsvert til Asíu. Þegar blaðamaður var á ferðinni um Laugarás á dögunum tók Sigrún á móti honum, en ætlunin var að skoða hvernig Syrah-vínviðnum vegnaði hjá þeim. Um mánaðamótin apríl-maí heimsótti nefnilega ítalskur vínbóndi Engi, að nafni Alessandro Monni, en hann er frá Sardiníueyju. Tilgangurinn var að skoða möguleika á því að rækta vínvið undir berum himni á Íslandi. Ingólfur og Sigrún tóku vel á móti honum og leyfðu honum að gera nokkrar tilraunir í landi þeirra. Sigrún fylgdi blaða- manni inn í kalt gróðurhús þar sem vínviðurinn virtist vera kominn vel af stað – og jafnvel örlaði fyrir blóm- knöppum á nokkrum afleggjaranna. Ingólfur segir að græðlingarnir séu flestallir lifandi, en ekki votti enn fyrir rótarmyndun. „Ég veit ekki hvers vegna, kannski tekur það bara svona langan tíma. Veðrið í maí hefur reyndar verið óheppilegt fyrir vín- viðinn, heitt á daginn en allt of oft hefur verið næturfrost – sem dregur úr vaxtarkraftinum. Sem sagt miklar hitasveiflur, kannski 25 gráðu hiti á daginn en -1 gráða seinni part nætur. Utanhúss er frost nýfarið úr jörð og nokkrir græðlingar bíða úti eftir að komast í nýtætta jörð. Ef plönturnar sem eru inni lifa þá mun ég skilja eftir plöntur inni en set afganginn út á beð. En það á allt eftir að koma í ljós,“ segir Ingólfur um framvindu þessarar tilraunar. Gott grænmetis- og kryddúrval í byrjun sumars Ingólfur segir að grænmetis- og kryddjurtaúvalið sé bara gott miðað við árstíma. Við verðum með salat, kirsuberjatómata, gulrætur og fleira grænmeti auk allra kryddjurtanna. Við erum líka með hindberja- og jarðarberjaplöntur til sölu og jafnvel trjáplöntur. Við höfum tekið á móti hópum ef þeir óska þess með nægum fyr- irvara, nemendahópar, leikskólar, starfsmannafélög, kvenfélög og þess háttar. Þar kemur völundarhúsið sterkt inn og líka nýi berfótagarðurinn, sem er enn í mótun. Sýnisgarðurinn með margs konar nytjajurtum er líka að taka á sig mynd eftir veturinn. Við erum alltaf að reyna nýjar tegundir, til dæmis er hægt að fá hjá okkur hundasúruplöntur og íslenskt blóðberg. Í júnílok verðum við von- andi með bæði melónur og maís úr eigin ræktun. Sem sagt, allt að ger- ast,“ segir Ingólfur. /smh Sigrún er hér í óupphituðu gróðurhúsi þar sem vínviðarsprotunum var stungið niður. Vínviðurinn frá Sardiníueyju deilir húsi með jarðarberjaplöntum en nýtínd jarðar- og hindber verða í boði á markaðnum í sumar. Mynd / smh Berfótastígurinn. Frá markaðnum á Engi. Ísland tryggði sér þátttökurétt í Bocuse d'Or: Viktor Örn náði 5. sæti í Evrópuforkeppninni Nýr framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda: Margrét Gísladóttir verður framkvæmdastjóri LK Stjórn Landssambands kúa- bænda hefur gengið frá ráðn- ingu Margrétar Gísladóttur sem framkvæmdastjóra LK frá og með næstu mánaðamótum, en þá mun Baldur Helgi Benjamínsson láta af störfum eftir 10 ár. Margrét er menntaður almanna- tengill og markþjálfi og hefur víð- tæka reynslu í stjórnun og ráðgjöf á sviði upplýsinga- og kynningar- mála. Hún hefur undanfarið starfað sem ráðgjafi hjá KOM ráðgjöf og rak áður eigið ráðgjafarfyrirtæki, Taktík ehf. Árin 2013 til 2015 starfaði hún sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra og sem sérstak- ur ráðgjafi ráðherra í forsætis- ráðuneytinu. Áður starfaði hún við kynningar- og markaðsmál hjá Árnasonum auglýsingastofu. Einnig hefur hún setið sem vara- maður í stjórn Íslandsstofu og Iceland Naturally. „Við vorum sammála um það að hugsa aðeins út fyrir kassann og fara nýjar leiðir þegar kom að ráðningu framkvæmdastjóra. Margrét býr yfir fjölbreyttri reynslu sem mun koma sér vel fyrir næstu verk efni sem liggja fyrir hjá okkur. Fyrst og fremst erum við að horfa til búvörusamninganna og eftirfylgni þeirra breytinga sem þeim fylgja, ásamt því að leggja aukna áherslu á markaðs- og kynn- ingarmálin hjá okkur. Á sama tíma og við bjóðum Margréti velkomna til starfa vil ég nýta tækifærið og þakka fráfar- andi framkvæmdastjóra fyrir vel unnin störf,“ segir Arnar Árnason, formaður LK. Margrét Gísladóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.