Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 41

Bændablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 Það hefur vakið athygli margra á liðnum misserum að hér á landi skuli þrífast starfsemi sem aug- lýst er á Facebook undir heitinu „Skutlarar“ og býður fólki skutl með einkabílum gegn greiðslu. Samkvæmt upplýsingum frá Ökuskólanum í Mjódd er slík starfsemi ótvírætt ólögleg. Mörgum þykir þessi starfsemi sniðug og saklaus, þar sem hún geti tryggt fólki skutl á milli staða í höf- uðborginni fyrir mun lægra gjald en þekkist hjá leigubílastöðvunum. Þótt mörgum þyki þetta saklaus iðja, er ekki víst að allir geri sér grein fyrir að svo er alls ekki. Starfsemi af þessu tagi getur falið í sér brot á mörgum lagagreinum. Sem dæmi eru viðkomandi ekki að borga nein leyfisgjöld, enga skatta eða neitt annað af starfseminni og fæstir hafa trúlega tilskilin öku- réttindi til að aka með farþega gegn gjaldi. Þá hlýtur einnig að orka tví- mælis hvar ökumaður og farþegar standa lagalega ef þeir lenda í slysi ef það sannast að ferðamátinn hafi verið með þessum hætti. Þá vekur einnig athygli í þessu samhengi að á þessari Skutlara-síðu má sjá ýmis nöfn sem gert hafa sig gildandi á vefsíðum í hneykslan yfir því að ýmsir fjármálamenn hafi verið að stunda það að lauma fjármunum úr landi í svokölluð skattaskjól til að komast hjá því að borga hér skatta og gjöld til samfélagsins. Skilaboðin þeirra eru þá væntanlega að það sé allt í lagi að stela frá samfélaginu, bara ef það hentar sumum. Líka stunduð „sprúttsala“ í skutlinu Leigubílstjórar hafa ítrekað kvartað undan þessari starfsemi sem oft er talsvert áberandi um helgar. Telja þeir mikla hagsmuni í húfi þar sem verið sé að taka frá þeim atvinnu sem þeir hafa lagt umtalsverða fjármuni í að fá lögleg réttindi til að stunda. Bændablaðið hefur heimildir fyrir því að leigubílstjórar hafi komið ábendingum um þessa starfsemi til lögreglu, en þrátt fyrir það virðist ekkert lát vera á tilboðum á Facebook um slíka þjónustu. Það sem meira er að þar er líka verið að bjóða áfengi til sölu sem flokkast undir það sem áður var gjarnan nefnt „sprúttsala“. Dæmi um slíkt er algengt að sjá eins og þetta: • „Er á ferðinni er líka með bjór pm.“ • „Er á ferðinni með ískaldan bjór,“ og uppgefið er símanúmer viðkomandi. Svo er líka dæmi um útsölu á áfengi: • „Er með Peachtree ferskju- líkjör 20% á aðeins 5000 kr. Líter flaska, ódýrara en í rík- inu. Langar endilega að losna við þetta, sendið tilboð í skila- boðum.“ Einum ofbýður þó áfengisauglýs- ingarnar á Skutlinu, en auglýsir sjálfur að geta útvegað aðgengi að því sem hann kallar „Vínbúðin“ og á þar væntanlega ekki við ÁTVR og skrifar: • „Vinsamlegast reynið að halda áfengissölunni í þar til gerðum grouppum. Getið sent á mig pm & friend request ef þið viljið aðgang að Vínbúðinni.“ Þá eru greinilega sumir að lána far- þegum fyrir gjaldinu og var einn að kvarta yfir því að maður með ákveðið símanúmer hafi lofað að borga um mánaðamót. Nánari deili eru gefin á viðkomandi, „... sem hafi verið að heimsækja kærustuna , sem býr innst í…“ Bannað er að selja áfengi án leyfis ÁTVR Vart þarf að taka fram að samkvæmt lögum er öll sala á áfengi bönnuð nema með tilskildum leyfum. Samkvæmt lögum um verslun með áfengi og tóbak frá 2011 segir í III kafla 7. gr. að ÁTVR hafi einkaleyfi til að selja og afhenda áfengi í smá- sölu, sbr. 10. gr. áfengislaga. Um endursölu áfengis hjá vínveitinga- húsum fer eftir ákvæðum sérlaga. Þá segir í áfengislögum frá 1998 að; „öðrum en þeim sem hafa til þess leyfi skv. 3. gr. [laga þessara og III. kafla laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald]1) er óheimilt að veita, selja eða láta af hendi áfengi til annarra gegn gjaldi eða öðru verðmæti. Það varðar mann refsingu sam- kvæmt lögum þessum láti hann við- gangast ólöglegan tilbúning áfengis, ólöglega sölu eða geymslu þess í húsum sínum eða á landi sínu. Sama gildir ef skip hans, bátur eða annað flutningstæki er með vitund og vilja hans notað til geymslu, flutnings eða sölu ólöglegs áfengis. Með sama hætti skal refsa þeim sem hefur áfengi í vörslu sinni sem látið hefur verið af hendi andstætt ákvæðum laga þessara. Réttinda og leyfis krafist til að aka farþegum gegn gjaldi Til að stunda leigubílaakstur á Íslandi eða annan akstur með farþega gegn gjaldi, þarf að hafa tilskilin réttindi skráð í ökuskírteini. Sömuleiðis þarf heimild Samgöngustofu sem gefur út leyfi til slíkrar starfsemi. Þá þurfa allar tryggingar að vera í lagi gagn- vart þeim sem ekið er með. Til að öðlast réttindi til aksturs far- þega gegn gjaldi þarf að undirgangast námskeið og próf í ökuskóla og þarf viðkomandi að vera orðinn 20 ára. Öðruvísi er ekki hægt að fá heimild Samgöngustofu fyrir slíka starfsemi. Námskeið og réttindaöflun kosta hundruð þúsunda króna Í fyrsta lagi er um að ræða námskeið sem veitir réttindi til aksturs 1–8 far- þega gegn gjaldi. Hjá Ökuskólanum í Mjódd kostar slíkt námskeið 140.000 kr. Ef maður með fyrrnefnd réttindi vill síðan stunda afleysingaakstur fyrir annan handhafa leyfis þá kostar það 39.500 krónur til viðbótar. Til að frá leyfi fyrir akstur á litlum rútum, 9–16 farþega, þarf svo annað námskeið sem kostar 208.000 kr. og próf á stórar rútur kostar 325.000 kr. Hægt er að fá réttindi á allar stærðir bifreiða, þar með taldar stórar rútur og vörubifreiðar með aftanívagna, og kostar slíkur pakki með afslætti 527.000 kr. Það er því deginum ljósara að lög- gjafarvaldið gerir skýrar kröfur um að fólk sem hyggst aka með farþega og taka fyrir það gjald, þarf að hafa tilskilin leyfi og réttindi. /HKr. - með þér alla leið - 569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn Valdimarsson löggiltur fasteignasali sími: 695 5520 jon@miklaborg.is Sala jarða og fasteigna Skoða og verðmet jarðir og aðrar eignir um allt land • Fagleg þjónusta löggilts fasteignasala • Góð kynning á eignum í vefmiðlum og dagblöðum • Vönduð ljósmyndataka af eignum, m.a. loftmyndir Einkunnarorð Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi, en mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning allra hlutaðeigandi í viðskiptunum. Hjá okkur geta eigendur fasteigna verið öryggir um að eign þeirra fái hámarkskynningu og einstaka þjónustu. Við leggjum mikla áherslu á að vera áberandi í störfum okkar með auglýsingum í blöðum og á netinu. 12 manns. Verð 40.000 þús kr. nóttin virka daga og 45 þús kr. nóttin um helgar. Lágmark 2 nætur. Heitur pottur og sauna. Uppl. í síma 898 1598 & ktsumarhus@gmail.com Stórt sumarhús til leigu í Grímsnesi!Ólöglegir „Skutlarar“ auglýsa sprúttsölu á Facebook ENDURHEIMT VOTLENDIS Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki til endurheimtar votlendis. Allir eigendur eða umráðahafar lands geta sótt um styrk. Styrkupphæð getur numið heildarkostaði við framkvæmd verkefna, þ.m.t. vinnu, tækjavinnu og kaupum á aðföngum, samkvæmt kostnaðarmati Landgræðslu ríkisins. Við ákvörðum um styrkveitingu er einkum lögð áhersla á: Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra verkefna sem styrkt eru og hefur jafnframt eftirlit með framvindu þeirra og metur árangur. til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella eða á netfangið land@land.is Umsóknarfrestur er til 20. júní 2016. Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella Sími 488 3000, www.land.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.