Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Landbúnaður í Ísrael er óvenju
fjölbreyttur þegar horft er bæði til
legu landsins og landgæða, sem og
í samanburði við nágrannalöndin.
Skýringin felst m.a. í brýnni þörf
landsins til að vera óháð öðrum
löndum með matvæli. Hér er síðari
hluti umfjöllunar um landbúnað í
Ísrael en fyrri hlutinn birtist í síðasta
Bændablaði.
Afar þróaður landbúnaður
Það er einkennandi fyrir landbúnað
í Ísrael að hann er afar þróaður og
byggist mikið á tæknilegum lausn-
um. Ísrael er næsta óháð innflutn-
ingi matvæla enda hefur ríkisstjórnin
lagt á það áherslu að geta brauðfætt
þjóðina með heimaframleiðslunni
ef til þess kæmi að ekki væri hægt
að flytja vörur til landsins, svo sem
vegna ófriðar.
Þessi mikli og góði stuðningur
hins opinbera við landbúnaðinn
hefur svo aftur leitt til þess að
bændur og fyrirtæki í landbúnaði
hafa þurft að leysa margvísleg
framleiðsluvandamál sem fylgja því
að stunda fjölbreyttan landbúnað í
landi sem býr við mikinn hita
samhliða úrkomuleysi. Ekki beint
kjörskilyrði til landbúnaðar. Þetta
hefur þó leitt af sér mikla þróun og
eiga margar uppfinningar sem við
þekkjum í dag rætur sínar að rekja
til landbúnaðar í Ísrael. Má t.d. nefna
vökvunarslöngur með dropakerfi
sem dæmi um það, en þessar slöngur
voru fundnar upp til þess að spara
vatn við vökvun. Í stað þess að úða
yfir plönturnar vatni er því veitt að
rótum plantnanna og nýtir það vatnið
betur. Þetta vökvunarkerfi er í dag
notað víða um heim, sérstaklega þar
sem spara þarf vatnið.
Döðlur, bananar og sítrusávextir
Þó svo að hátækni sé einkennandi
fyrir landbúnaðinn í Ísrael þá er
einnig hefðbundinn landbúnaður
stundaður og fer m.a. víða fram
hefðbundin akuryrkja þar sem bæði
hveiti, maís, hvítlaukur og sólblóm
eru uppistaða framleiðslunnar.
Langstærsti hluti ræktunarinn-
ar fer fram á veturna, þegar heldur
kaldara er, og er þá uppskorið í apríl
og maí. Þá fer öll hefðbundin græn-
metisframleiðsla fram í landinu og
auk þess eru víða stórir akrar með
bæði sítrusávöxtum, bananaplöntum
og pálmatrjám. Banaframleiðslan er
eingöngu fyrir heimamarkað enda
eru ísraelskir bananar mun minni en
þeir sem almennt fást í verslunum
og hafa því ekki náð útbreiðslu fyrir
utan Ísrael.
Aðra sögu er að segja um döð-
luframleiðsluna en þar er landið
framarlega á heimsvísu. Pálmar
eru einstaklega harðgerðir og henta
einstaklega vel fyrir bændur sem
búa bæði við úrkomuleysi og mik-
inn hita eins og tilfellið er í Ísrael.
Það má því víða sjá hektara eftir
hektara með pálmatrjám sem plant-
að er í raðir með litlum götum á milli
þeirra svo hægt sé að keyra um með
dráttarvél sem er með sérstökum
palli til þess að tína döðlurnar af
pálmunum.
Samyrkjubúin
Eitt helsta kennileiti ísraelska
landbúnaðarins er reksturinn á
samyrkjubúunum, en bú þessi eiga
rætur sínar að rekja allt aftur til tíma
Jesú frá Nasaret en þá voru einmitt
samyrkjusamfélög í Gyðingalandi.
Samyrkjubú eru ekki algeng í dag
utan Ísraels og þá oftar en ekki starf-
rækt af kristnu sértrúarfólki.
Í Ísrael eru samyrkjubúin hins
vegar hornsteinn landbúnaðarins
og mörg hver stórfyrirtæki sem
veita þúsundum vinnu. Oftar en
ekki byggja þau á hugsjóninni um
að allir séu jafnir og eigi að fá jafnt
fyrir vinnu sína en gildir það reyndar
aðeins um þá sem eru í eigendahópi
búsins en ekki ráðna starfsmenn.
Þannig fá allir í eigendahópnum
á samyrkjubúinu sömu laun óháð
stöðu þeirra og vinnuframlagi og fá
nóg til þessa að eiga í sig og á.
Reyndar er staðan þannig í dag
að framangreint form við rekstur á
samyrkjubúunum er mikið til horf-
ið og mörg búanna rekin í dag sem
hefðbundin fyrirtæki. Skýringin felst
meðal annars í því að búunum hefur
reynst erfitt að halda í unga fólkið og
að viðhalda skilningi á því að allir
eigi að fá jafnt óháð vinnuframlagi. Í
dag eru um 250 samyrkjubú í landinu
og eru þau öll í mjög blönduðum
rekstri og flest með einhvers konar
iðnað samhliða landbúnaðarfram-
leiðslunni. Nokkur þeirra standa
á bak við heimsþekkt vörumerki
eins og Afimilk-mjaltabúnað, sem
er fullkomnasti tölvubúnaður fyrir
mjaltatæki sem til er í heiminum
í dag, en búnaður þessi kemur frá
samyrkjubúinu Afikim.
Samyrkjubúið Sde Eliyahu stend-
ur einnig á bak við heimsþekkta
vörumerkið Biobee en Sde Eliyahu
sem er lífrænt bú sem hefur sjálft
þróað ótal lausnir fyrir lífræna land-
búnaðarframleiðslu eins og náttúru-
lega lausn gegn músum í ökrum með
því að nota uglur á nóttunni og fálka
á daginn! Ein þróunin hefur svo leitt
af sér stóriðnað en það er framleiðsla
á skordýrum til þess að nota í garð-
Landbúnaður í Ísrael – einstök nýting vatns
Utan úr heimi
Myndir / Snorri Sigurðsson