Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 33
Búist við allt að 10 þúsund gestum á Landsmót hestamanna
– Öll stóru verkefnin að baki og mótssvæðið hið glæsilegasta
„Sú uppbygging sem hér hefur
orðið undanfarna mánuði nýtist
um ókomna tíð og verður mikil
lyftistöng fyrir hestatengt nám
við Háskólann á Hólum, hesta-
mennskuna í Skagafirði sem og á
landinu öllu. Þannig mun svæðið
efla hrossarækt og hestamennsku
landsmanna allra. Hér er ekki
verið að tjalda til einnar nætur,
mannvirki munu standa hér
áfram og ég er ekki í vafa um að
þau verði vel nýtt,“ segir Lárus
Ástmar Hannesson, formaður
Landssambands hestamanna, en
undirbúningur vegna Landsmóts,
sem haldið verður í lok mánað-
arins, er nú á lokastigi. Öll stóru
verk efnin eru að baki og móts-
svæðið að verða hið glæsilegasta.
Áskell Heiðar Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Landsmóts hesta-
manna, segir að mikil áhersla hafi
verið lögð á að gera svæðið sem best
úr garði. „Við leggjum ríka áherslu
á að aðbúnaður, bæði fyrir knapa og
hross, verði eins góður og mögulegt
er. Við höfum pláss fyrir um 200
hesta í húsi á mótssvæðinu sjálfu,
bjóðum upp á beitarhólf fyrir hesta-
mannafélögin, reiðhöll er á svæðinu
fyrir upphitun og svo má lengi telja,
en allt miðar að því að tryggja að
knöpum og hrossum líði vel,“ segir
hann.
Markmiðið að öllum líði vel
Áskell Heiðar segir að landsmóts-
10 þúsund gestir sæki mótið, forsala
hefur aldrei gengið jafnvel og nú sem
bendi til að áhugi sé mikill. „Okkar
markmið er að öllum okkar gestum
líði vel á mótinu og höfum við gert
allt sem í okkar valdi stendur til að
svo geti orðið. Hér er mikill fjöldi
tjaldstæða fyrir hendi og hafa margir
kosið að kaupa frátekna tjaldstæða-
reiti með rafmagni. Við erum enn
með nokkur slíkt stæði til sölu,“ segir
hann.
Fjölbreytt þjónusta
Fjölbreytt matsala verður á móts-
svæðinu, hún fer fram í stórri reiðhöll
sem fyrir er á Hólum og ættu allir
að geta fundið góðgæti af ýmsu tagi
til að seðja hungrið á milli atriða á
mótinu. „Við erum hér líka með aðra
reiðhöll á svæðinu og hún verður
lögð undir hið þekkta Hestatorg, en
að auki verða þar kaffihús og krá.
Eins munum við útbúa góða aðstöðu
fyrir gesti til að horfa á streymi frá
mótinu, til að tryggja að enginn missi
nú af neinu. Þar geta áhugasamir
einnig fylgst með útsendingum frá
EM í fótbolta.“
Margir lagt hönd á plóg
Áskell Heiðar segir að mikill fjöldi
undirbúning Landsmótsins á Hólum
eða annars staðar af landinu. „Það
er mikil fagþekking innan hópsins,
þetta er fólk sem kann til verka
þegar verið er að búa til viðburð
sem þennan, verkaskiptingin er klár
og allir staðráðnir í því að búa til
glæsilegt Landsmót,“ segir hann. Þá
verður mikið lagt upp úr öryggis-
málum á svæðinu og að allt verði
eins og best verður á kosið þegar að
lögð á að setja upp fjölda salerna og
sturtur eru einnig fyrir hendi fyrir
gestina. „Það er mikill metnaður í
þá átt að halda svæðinu fallegu og
hreinu.“
Tengjum Landsmótið við þá
fagmennsku sem fyrir er á svæðinu
tími og orka farið í að skipuleggja
algjörlega nýtt landsmótssvæði. Að
sé að byggja upp nýja aðstöðu og
hvernig hún muni nýtast til fram-
tíðar. „Það er að mínu mati alveg
hreint frábært að halda Landsmótið
á Hólum og tengja það við þá miklu
fagmennsku sem fyrir er á svæðinu
og býr m.a. í öllu því fólki sem er
innan veggja Háskólans á Hólum.
Hólaskóli er æðsta menntastofnun
Íslandshestamennskunnar í heim-
inum og fjöregg okkar hestamanna.
Það er því ánægjulegt að mann virki
sem eftir standa að loknu Landsmóti
muni nýtast svæðinu vel til framtíðar.
„Landsmótin eru uppskeruhátíð og
árshátíð unnenda íslenska hestsins
um allan heim og leggjum við mikla
áherslu á þann þátt sem snýr að hinum
hafa komið að verkinu af miklum
myndarskap og er ég mjög spenntur
fyrir mótinu. Úrtökur í gæðingakeppni
og kynbótasýningar eru nú í fullum
gangi um allt land og er það ljóst
að hestakosturinn verður algjörlega
frábær, segir Lárus að lokum.
/MÞÞ
-
-
Myndir / MÞÞ
Landsmót
hestamanna
á Hólum í Hjaltadal
27.06-03.07 2016
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D