Bændablaðið - 09.06.2016, Side 33

Bændablaðið - 09.06.2016, Side 33
Búist við allt að 10 þúsund gestum á Landsmót hestamanna – Öll stóru verkefnin að baki og mótssvæðið hið glæsilegasta „Sú uppbygging sem hér hefur orðið undanfarna mánuði nýtist um ókomna tíð og verður mikil lyftistöng fyrir hestatengt nám við Háskólann á Hólum, hesta- mennskuna í Skagafirði sem og á landinu öllu. Þannig mun svæðið efla hrossarækt og hestamennsku landsmanna allra. Hér er ekki verið að tjalda til einnar nætur, mannvirki munu standa hér áfram og ég er ekki í vafa um að þau verði vel nýtt,“ segir Lárus Ástmar Hannesson, formaður Landssambands hestamanna, en undirbúningur vegna Landsmóts, sem haldið verður í lok mánað- arins, er nú á lokastigi. Öll stóru verk efnin eru að baki og móts- svæðið að verða hið glæsilegasta. Áskell Heiðar Ásgeirsson, fram- kvæmdastjóri Landsmóts hesta- manna, segir að mikil áhersla hafi verið lögð á að gera svæðið sem best úr garði. „Við leggjum ríka áherslu á að aðbúnaður, bæði fyrir knapa og hross, verði eins góður og mögulegt er. Við höfum pláss fyrir um 200 hesta í húsi á mótssvæðinu sjálfu, bjóðum upp á beitarhólf fyrir hesta- mannafélögin, reiðhöll er á svæðinu fyrir upphitun og svo má lengi telja, en allt miðar að því að tryggja að knöpum og hrossum líði vel,“ segir hann. Markmiðið að öllum líði vel Áskell Heiðar segir að landsmóts- 10 þúsund gestir sæki mótið, forsala hefur aldrei gengið jafnvel og nú sem bendi til að áhugi sé mikill. „Okkar markmið er að öllum okkar gestum líði vel á mótinu og höfum við gert allt sem í okkar valdi stendur til að svo geti orðið. Hér er mikill fjöldi tjaldstæða fyrir hendi og hafa margir kosið að kaupa frátekna tjaldstæða- reiti með rafmagni. Við erum enn með nokkur slíkt stæði til sölu,“ segir hann. Fjölbreytt þjónusta Fjölbreytt matsala verður á móts- svæðinu, hún fer fram í stórri reiðhöll sem fyrir er á Hólum og ættu allir að geta fundið góðgæti af ýmsu tagi til að seðja hungrið á milli atriða á mótinu. „Við erum hér líka með aðra reiðhöll á svæðinu og hún verður lögð undir hið þekkta Hestatorg, en að auki verða þar kaffihús og krá. Eins munum við útbúa góða aðstöðu fyrir gesti til að horfa á streymi frá mótinu, til að tryggja að enginn missi nú af neinu. Þar geta áhugasamir einnig fylgst með útsendingum frá EM í fótbolta.“ Margir lagt hönd á plóg Áskell Heiðar segir að mikill fjöldi undirbúning Landsmótsins á Hólum eða annars staðar af landinu. „Það er mikil fagþekking innan hópsins, þetta er fólk sem kann til verka þegar verið er að búa til viðburð sem þennan, verkaskiptingin er klár og allir staðráðnir í því að búa til glæsilegt Landsmót,“ segir hann. Þá verður mikið lagt upp úr öryggis- málum á svæðinu og að allt verði eins og best verður á kosið þegar að lögð á að setja upp fjölda salerna og sturtur eru einnig fyrir hendi fyrir gestina. „Það er mikill metnaður í þá átt að halda svæðinu fallegu og hreinu.“ Tengjum Landsmótið við þá fagmennsku sem fyrir er á svæðinu tími og orka farið í að skipuleggja algjörlega nýtt landsmótssvæði. Að sé að byggja upp nýja aðstöðu og hvernig hún muni nýtast til fram- tíðar. „Það er að mínu mati alveg hreint frábært að halda Landsmótið á Hólum og tengja það við þá miklu fagmennsku sem fyrir er á svæðinu og býr m.a. í öllu því fólki sem er innan veggja Háskólans á Hólum. Hólaskóli er æðsta menntastofnun Íslandshestamennskunnar í heim- inum og fjöregg okkar hestamanna. Það er því ánægjulegt að mann virki sem eftir standa að loknu Landsmóti muni nýtast svæðinu vel til framtíðar. „Landsmótin eru uppskeruhátíð og árshátíð unnenda íslenska hestsins um allan heim og leggjum við mikla áherslu á þann þátt sem snýr að hinum hafa komið að verkinu af miklum myndarskap og er ég mjög spenntur fyrir mótinu. Úrtökur í gæðingakeppni og kynbótasýningar eru nú í fullum gangi um allt land og er það ljóst að hestakosturinn verður algjörlega frábær, segir Lárus að lokum. /MÞÞ - - Myndir / MÞÞ Landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal 27.06-03.07 2016 L A N D SM ÓT HESTAM AN N A N A T IO N AL HORSE SHOW O F IC E L A N D

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.