Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 62

Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 Síðastliðið haust, þegar ég heimsótti ábúendur á Ásgarði við Kirkjubæjarklaustur, þau Þórönnu Harðardóttur og Eyþór Valdimarsson, spurði Eyþór mig um BMW 1200 mótorhjólið sem ég var á og hvort væri von á umfjöllun um hjólið. Ég gaf honum þá afsökun að hjól- ið væri ekki nýtt, en einnig þá von að ef mér myndi bjóðast nýtt 1200 BMW hjól skyldi ég glaður skrifa um það. Fyrir skemmstu bauðst mér næstum nýtt BMW 1200 GS mótor- hjól í langan prufuakstur. Hentar vel til ferðalaga á íslenskum vegum og vegslóðum Að sögn Eyþórs Örlygssonar, framkvæmdastjóra Reykjavík Motor Center, sem er umboðsaðili fyrir BMW mótorhjól á Íslandi, er hjól- ið grunnútgáfa af BMW 1200 GS og er með tveggja strokka boxervél sem skilar 125 hestöflum. BMW 1200 GS hefur verið eitt vinsælasta og söluhæsta mótorhjól í heimin- um í mörg ár af fólki sem ferðast mikið á mótorhjólum á vegum og vegleysum. Á síðasta ári keyrði ég með tveimur breskum atvinnumót- orhjólamönnum Nyrðra fjallabak sem voru á 2015 árgerðinni af BMW 1200 GS og sannfærðist ég þá um að þessi hjól henta vel fyrir íslenska malarvegi. Prufuaksturinn langur í öllum tegundum veðurs Prufuaksturinn var sjö dagar og 2120 km. Fyrsta daginn var frekar mikill vindur og oftast á hlið, en hjólið tekur vel á sig vind og fer vel með mann. Í prófunum sem ég hef lesið í erlendum mótorhjólablöðum fær BMW hæstu fáanlega einkunn hjóla þegar ekið er í miklum vindi og þar er ég sammála. Næsta dag var lítill vindur, en töluverð rigning, en lögun hjóls- ins hélt rigningunni að mestu frá mér sem ökumanni. Í rigningunni kólnaði svolítið og var þá gott að hafa hita í handföngunum sem ég kveikti á. Næst var það prófun á möl, en malarvegurinn var heiðar- vegurinn upp úr Berufirði, Öxi. Eftir mikla þurrkatíð var vegurinn frekar laus og holóttur, en á þeirri leið gafst mér gott tækifæri til að prófa fjöðrunina og spólvörn. Þegar ég keyri mótorhjól ek ég mikið standandi á fótstigunum, sérstaklega þegar ekið er á malar- vegum. Á BMW hjólum er almennt gott að keyra standandi, en á þessu hjóli eru fótstigin of mjó og mætti breikka þau a.m.k. um helming. Kraftmikið með góða fjöðrun og spólvörn Í mælaborðinu eru fjórar aðalstill- ingar á vél, fjöðrun og spólvörn: „Rain, Road, Dyna og Enduro“. Á malarvegi er best að vera með stillt á Enduro, en sú stilling gefur afturdekkinu svigrúm á stuttu spóli í lausri möl, en ef verið er að fara upp brekku sem er mikið þvotta- bretti er betra að taka spólvörnina af því annars fúskar og fretar mót- orinn í hvert sinn og afturdekkið missir grip. Í rigningu mæli ég með Rain- stillingunni því ef maður missir grip á blautum vegi er minni hætta á að maður missi kraftmikið hjólið í spól. Road-stillingin sparar mest bensín, en þegar ég var með stillt á þá stillingu var eyðslan rétt undir fjórum lítrum á hundraðið á 90 km hraða. Mesta eyðslan er á Dyna- stillingunni, en þá er hjólið kraft- mest og snarpast og sem dæmi þá prófaði ég í Bakkaselsbrekkunni hröðunina og kraftinn við að taka fram úr flutningabíl með eftirvagn. Ég botngaf hjólinu í 6. gír á 80 km hraða og þegar ég sá allan bílinn í baksýnisspeglunum til að skipta um akrein sýndi hraðamælirinn mér póstnúmerið á Seltjarnarnesi. Mælaborðið býður upp á miklar upplýsingar Í mælaborðinu má fá miklar upp- lýsingar sem eru m.a. dagsetning, klukka, hiti á vél, hiti, eyðsla, loft- þrýstingur í fram- og afturdekkj- um, hvað eru margir kílómetrar eftir á eldsneytistanknum ásamt varnarljósum s.s. olía, hiti, spól- vörn, ABS og fl. Grunnverð á BMW 1200 GS er 3.800.000, en með ferðatöskum og „krassvörn“ (veltigrindum) er hjól- ið komið rétt yfir fjórar milljónir. Veltigrindurnar eru að mínu mati bráðnauðsynlegar og kosta aukalega ekki nema 80.000, en þegar ekið er eftir beinum og breiðum vegi er gott að rétta úr fótunum og setja kálfana ofan á veltigrindurnar og keyra í stíl Dennis Hopper úr bíómyndinni Easy Rider. Lokaorð Fínt ferðahjól sem fer vel með ökumann og farþega, með mikið tog í vél og þægilega ásetu, en eini mínusinn sem ég gef hjólinu eru mjó fótstig. BMW 1200 GS. Myndir / HLJ Svona þungt hjól getur ekkert í snjó. Frekar aumingjalegt framljós sem dagljós, en ég keyrði mest með háu- ljósin kveikt svo að ég sæist betur fyrir þá sem á móti mér komu. Veltigrindurnar verja mótorinn vel og hæfa hjólinu. Væri hjólið mitt væri það fyrsta verk mitt að fá mér breiðari fótstig. Fyrir stuttu síðan átti ég erindi í Arctic Trucks og hitti þar Björn Ingvar, sölumann á Yamaha fjór- hjólum og mótorhjólum. Hann bauð mér að prófa Yamaha Grizzly 700 fjórhjól sem hann er með í búðinni. Sjaldan hef ég dótinu neitað og var fljótur að þiggja boðið. Með fjórhjólið á kerru fór ég upp á Sandskeið og prófaði fjórhjólið á misgóðum slóðum sem eru við Sandskeið og Bolaöldur. Skemmtilegt viðbragð í 700cc vélinni Eftir að hafa prófað hjólið í litlu æfingabrautinni á Bolaöldum til að finna hreyfingarnar í hjólinu var farið í slóðaakstur. Hjólið er gletti- lega stöðugt og þægilegt að keyra, en mest fannst mér um rafmagnsstýr- ið sem tekur af öll högg þegar ekið er í ósléttu og á steina miðað við fyrri fjór- hjól sem ég hef keyrt. Í lága drifinu með öll hjól læst hefur mér oft fundist fjórhjól sem ég hef verið að keyra vera óstöðug á hraða, en Grizzly 700 lullaði yfir steinana og hindranirnar sem fyrir hjól var lagt eins og ekkert væri. Næst var það að prófa hröðun og snerpu, en á augnabliki var ég kominn upp í 90 km hraða svo ekki vantar aflið í þetta hjól. Hjólið sem ég prófaði var með spili frá WARN og í hjólinu eru mörg hólf og þar af eitt sem er vatnshelt. 18 lítra bensíntankurinn er nú kominn undir ökumannssætið sem gerir hjólið stöðugra í akstri. Að keyra hjólið á venjulegum malarvegi er margsinnis betra en að taka fjór- hjóladrifið af og vera bara í aftur- hjóladrifinu. Bögglaberarnir að framan og aftan bera mikið, en uppgefin þyngd að framan er 50 kg að fram- an og 90 kg að aftan. Mikið er af varúðarmiðum á hjólinu eins og á öðrum fjórhjólum, þessa miða á að virða og fara eftir því að bæði hér á landi og erlendis hefur slysatíðni á fjórhjólum frekar verið að aukast þegar fækkun er almennt í öðrum slysum. Verðið á Yamaha Grizzly er frá 2.200.000, en fjórhjólið sem ég prófaði kostar 2.420.000. Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni www.yamaha.is. Yamaha Grizzly 700 SE. Yamaha Grizzly 700 SE – Sterklegur vinnuþjarkur frá Arctic Trucks Alla svona varn armiða ber að virða og fara e ftir, þeir eru þarna af ástæðu. Vélabásinn liklegur@internet.is Hjörtur L. Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.