Bændablaðið - 09.06.2016, Side 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Síðastliðið haust, þegar ég
heimsótti ábúendur á Ásgarði
við Kirkjubæjarklaustur, þau
Þórönnu Harðardóttur og Eyþór
Valdimarsson, spurði Eyþór mig
um BMW 1200 mótorhjólið sem
ég var á og hvort væri von á
umfjöllun um hjólið.
Ég gaf honum þá afsökun að hjól-
ið væri ekki nýtt, en einnig þá von
að ef mér myndi bjóðast nýtt 1200
BMW hjól skyldi ég glaður skrifa
um það. Fyrir skemmstu bauðst mér
næstum nýtt BMW 1200 GS mótor-
hjól í langan prufuakstur.
Hentar vel til ferðalaga á
íslenskum vegum og vegslóðum
Að sögn Eyþórs Örlygssonar,
framkvæmdastjóra Reykjavík Motor
Center, sem er umboðsaðili fyrir
BMW mótorhjól á Íslandi, er hjól-
ið grunnútgáfa af BMW 1200 GS
og er með tveggja strokka boxervél
sem skilar 125 hestöflum. BMW
1200 GS hefur verið eitt vinsælasta
og söluhæsta mótorhjól í heimin-
um í mörg ár af fólki sem ferðast
mikið á mótorhjólum á vegum og
vegleysum. Á síðasta ári keyrði ég
með tveimur breskum atvinnumót-
orhjólamönnum Nyrðra fjallabak
sem voru á 2015 árgerðinni af BMW
1200 GS og sannfærðist ég þá um
að þessi hjól henta vel fyrir íslenska
malarvegi.
Prufuaksturinn langur í öllum
tegundum veðurs
Prufuaksturinn var sjö dagar og 2120
km. Fyrsta daginn var frekar mikill
vindur og oftast á hlið, en hjólið
tekur vel á sig vind og fer vel með
mann. Í prófunum sem ég hef lesið
í erlendum mótorhjólablöðum fær
BMW hæstu fáanlega einkunn hjóla
þegar ekið er í miklum vindi og þar
er ég sammála.
Næsta dag var lítill vindur, en
töluverð rigning, en lögun hjóls-
ins hélt rigningunni að mestu frá
mér sem ökumanni. Í rigningunni
kólnaði svolítið og var þá gott að
hafa hita í handföngunum sem ég
kveikti á. Næst var það prófun á
möl, en malarvegurinn var heiðar-
vegurinn upp úr Berufirði, Öxi.
Eftir mikla þurrkatíð var vegurinn
frekar laus og holóttur, en á þeirri
leið gafst mér gott tækifæri til að
prófa fjöðrunina og spólvörn.
Þegar ég keyri mótorhjól ek ég
mikið standandi á fótstigunum,
sérstaklega þegar ekið er á malar-
vegum. Á BMW hjólum er almennt
gott að keyra standandi, en á þessu
hjóli eru fótstigin of mjó og mætti
breikka þau a.m.k. um helming.
Kraftmikið með góða fjöðrun
og spólvörn
Í mælaborðinu eru fjórar aðalstill-
ingar á vél, fjöðrun og spólvörn:
„Rain, Road, Dyna og Enduro“.
Á malarvegi er best að vera með
stillt á Enduro, en sú stilling gefur
afturdekkinu svigrúm á stuttu spóli
í lausri möl, en ef verið er að fara
upp brekku sem er mikið þvotta-
bretti er betra að taka spólvörnina
af því annars fúskar og fretar mót-
orinn í hvert sinn og afturdekkið
missir grip.
Í rigningu mæli ég með Rain-
stillingunni því ef maður missir
grip á blautum vegi er minni hætta
á að maður missi kraftmikið hjólið
í spól. Road-stillingin sparar mest
bensín, en þegar ég var með stillt á
þá stillingu var eyðslan rétt undir
fjórum lítrum á hundraðið á 90 km
hraða. Mesta eyðslan er á Dyna-
stillingunni, en þá er hjólið kraft-
mest og snarpast og sem dæmi þá
prófaði ég í Bakkaselsbrekkunni
hröðunina og kraftinn við að taka
fram úr flutningabíl með eftirvagn.
Ég botngaf hjólinu í 6. gír á 80 km
hraða og þegar ég sá allan bílinn
í baksýnisspeglunum til að skipta
um akrein sýndi hraðamælirinn
mér póstnúmerið á Seltjarnarnesi.
Mælaborðið býður upp á miklar
upplýsingar
Í mælaborðinu má fá miklar upp-
lýsingar sem eru m.a. dagsetning,
klukka, hiti á vél, hiti, eyðsla, loft-
þrýstingur í fram- og afturdekkj-
um, hvað eru margir kílómetrar
eftir á eldsneytistanknum ásamt
varnarljósum s.s. olía, hiti, spól-
vörn, ABS og fl.
Grunnverð á BMW 1200 GS er
3.800.000, en með ferðatöskum og
„krassvörn“ (veltigrindum) er hjól-
ið komið rétt yfir fjórar milljónir.
Veltigrindurnar eru að mínu
mati bráðnauðsynlegar og kosta
aukalega ekki nema 80.000, en
þegar ekið er eftir beinum og
breiðum vegi er gott að rétta úr
fótunum og setja kálfana ofan
á veltigrindurnar og keyra í stíl
Dennis Hopper úr bíómyndinni
Easy Rider.
Lokaorð
Fínt ferðahjól sem fer vel með
ökumann og farþega, með mikið
tog í vél og þægilega ásetu, en eini
mínusinn sem ég gef hjólinu eru
mjó fótstig.
BMW 1200 GS. Myndir / HLJ
Svona þungt hjól getur ekkert í snjó.
Frekar aumingjalegt framljós sem
dagljós, en ég keyrði mest með háu-
ljósin kveikt svo að ég sæist betur
fyrir þá sem á móti mér komu.
Veltigrindurnar verja mótorinn vel
og hæfa hjólinu.
Væri hjólið mitt væri það fyrsta verk
mitt að fá mér breiðari fótstig.
Fyrir stuttu síðan átti ég erindi í
Arctic Trucks og hitti þar Björn
Ingvar, sölumann á Yamaha fjór-
hjólum og mótorhjólum.
Hann bauð mér að prófa Yamaha
Grizzly 700 fjórhjól sem hann er
með í búðinni. Sjaldan hef ég
dótinu neitað og var fljótur að
þiggja boðið. Með fjórhjólið á kerru
fór ég upp á Sandskeið og prófaði
fjórhjólið á misgóðum slóðum sem
eru við Sandskeið og Bolaöldur.
Skemmtilegt viðbragð
í 700cc vélinni
Eftir að hafa prófað hjólið í litlu
æfingabrautinni á Bolaöldum til að
finna hreyfingarnar í hjólinu var
farið í slóðaakstur. Hjólið er gletti-
lega stöðugt og þægilegt að keyra,
en mest fannst mér
um rafmagnsstýr-
ið sem tekur af öll
högg þegar ekið er
í ósléttu og á steina
miðað við fyrri fjór-
hjól sem ég hef keyrt.
Í lága drifinu með öll
hjól læst hefur mér
oft fundist fjórhjól
sem ég hef verið að
keyra vera óstöðug á
hraða, en Grizzly 700
lullaði yfir steinana og
hindranirnar sem fyrir
hjól var lagt eins og
ekkert væri. Næst var
það að prófa hröðun og
snerpu, en á augnabliki
var ég kominn upp í 90
km hraða svo ekki vantar
aflið í þetta hjól.
Hjólið sem ég
prófaði var með
spili frá WARN
og í hjólinu eru mörg hólf og þar
af eitt sem er vatnshelt. 18 lítra
bensíntankurinn er nú kominn
undir ökumannssætið sem gerir
hjólið stöðugra í akstri. Að keyra
hjólið á venjulegum malarvegi er
margsinnis betra en að taka fjór-
hjóladrifið af og vera bara í aftur-
hjóladrifinu.
Bögglaberarnir að framan og
aftan bera mikið, en uppgefin
þyngd að framan er 50 kg að fram-
an og 90 kg að aftan.
Mikið er af varúðarmiðum á
hjólinu eins og á öðrum fjórhjólum,
þessa miða á að virða og fara eftir
því að bæði hér á landi og erlendis
hefur slysatíðni á fjórhjólum frekar
verið að aukast þegar fækkun er
almennt í öðrum slysum.
Verðið á Yamaha Grizzly er
frá 2.200.000, en fjórhjólið sem
ég prófaði kostar 2.420.000. Allar
nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðunni www.yamaha.is.
Yamaha Grizzly 700 SE.
Yamaha Grizzly 700 SE – Sterklegur vinnuþjarkur frá Arctic Trucks
Alla svona varn
armiða ber
að virða og fara e
ftir, þeir eru
þarna af ástæðu.
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson