Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 Skeiða- og Gnúpverjahreppur: ART-vottaður leikskóli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi − Gjaldfrjáls leikskóli þar sem börn óskast Nýlega fékk leikskólinn Leikholt í Brautarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi ART-vottun. „ART er fastmótað hegðunarmód- el sem þjálfar börn, unglinga og full- orðna í mannlegum samskiptum og gefur þeim einnig verkfæri í hendurn- ar til þess að vinna með reiðitilfinn- inguna og ná betri sjálfstjórn. Einnig hjálpar ART-þjálfunin einstaklingnum til að vinna úr vanda- málum, hugsa út í hvað sé siðferð- islega rétt og hvað sé siðferðislega rangt þegar taka þarf ákvörðun um eitthvað. Þá þjálfast einstaklingurinn einnig í því að færa rök fyrir sinni ákvörðun og svara af hverju hann/hún tók þessa ákvörðun,“ segir Kolbrún Sigþórsdóttir, sem starfar hjá ART- teyminu á Suðurlandi þegar hún var spurð hvað ART væri. Kolbrún segir að tilgangurinn með ARTI sé að einstaklingurinn nái að þekkja sjálfan sig og tilfinningar sínar það vel að hann geti átt góð sam- skipti við aðra, viti hvaða aðstæður eru honum erfiðar og hvernig hann eigi að bregðast við í ýmsum atvikum sem upp koma í lífinu. „Markmiðið með ART-þjálfun er að þjálfa einstaklinginn í félagsfærni svo að hann geti verið öruggur í sam- skiptum sínum við aðra, að hann geti sýnt sjálfstjórn með því að stoppa og hugsa: „Hvað gerist ef ég bregst svona við?“ „Hverjar verða afleiðingarn- ar ef ég segi þetta/geri þetta?“ bætir Kolbrún við. ART-þjálfunin fer að miklu leyti fram í gegnum hlutverkaleiki og endurgjöf frá hópnum. Markmiðið er að einstaklingurinn verði öruggari í að takast á við erfiðar aðstæður og honum gangi betur að taka ákvarðanir og færa rök fyrir þeim. Þannig eflist sjálfsmyndin og sjálfsöryggið eykst og þannig byggist upp einstaklingur sem er betur búinn til að takast á við lífið. Gæðastimpill fyrir Leikholt Það að leikskólinn Leikholt er kom- inn með ART-vottun gefur leikskól- anum ákveðinn gæðastimpil. Þrír grunnskólar á Suðurlandi hafa fengið ART-vottun, það eru Laugalandsskóli í Holtum, Þjórsárskóli og Víkurskóli í Vík í Mýrdal. Eini leikskólinn sem hefur haft ART-vottunina þar til nú er Leikskólinn á Laugalandi, Leikholt hefur nú bæst í hóp þessara flottu skóla. Grunnskólinn á Þórshöfn er eini skólinn utan Suðurlands sem fengið hefur ART-vottun en hún gildir til þriggja ára í senn. Þá þarf að endurmeta og fara yfir stöðu ART- sins og sýnileik innan skólastarfs- ins, það er til að mynda komið að því í Víkurskóla, Laugalandsskóla í Holtum og Grunnskólanum í Þórshöfn. „Vonandi sjáum við fleiri skóla taka skrefið á næstu misserum og taka nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fá vottunina, bæði Hvolsskóli og leikskólinn Örk á Hvolsvelli hafa t.d. sýnt því áhuga og vantar ekki mikið upp á,“ segir Kolbrún. Pláss fyrir fleiri börn í Leikholti „Í leikskólanum Leikholti eru 24 börn og húsrúm leyfir mun fleiri og óskum við því eftir fleiri börn- um í þetta yndislega húsnæði og umhverfi sem býður upp á svo mikla möguleika. Í leikskólanum eru 9 starfsmenn, 5 leikskólakennarar, 3 leiðbeinendur og einn starfsmaður í eldhúsi/ræstingu. Í Leikholti ríkir mjög góður starfsandi, starfsfólkið hér er mjög metnaðarfullt og áhugasamt um starfið sitt og einkunnarorð okkar eru gleði, vinsemd og virðing. Við leggjum áherslu á leikinn, ART, umhverfismennt (erum Græn fána-leikskóli), og mál og læsi,“ segir Elín Anna Lárusdóttir leikskólastjóri. Hún segist tvímælalaust mæla með ART-inu fyrir aðra leikskóla, enda sé alltaf gott að hafa ákveðna stefnu í lífsleikni og agastjórnun í skólum. „Við í leikskólanum Leikholti erum mjög stolt af því að hafa fengið vottun sem ART-skóli því við lögðum okkur mikið fram í vetur að tileinka okkur verkfærin sem ART-ið býður upp á og gera það sem hluta af okkar menningu í okkar skóla. Mig langar að lokum að segja að ART-teymið á Selfossi stendur sig mjög vel að halda uppi þessum námskeiðum og ég vona virkilega að starf þeirra fái að njóta sín áfram, ART er smart,“ segir leikskólastjórinn að lokum. /MHHUtanborðsmótorarnir frá Yamaha eru þekktir fyrir einstök gæði og endingu. Þeir koma í mörgum útfærslum, tvígengis og fjórgengis, allt frá 2,5 upp í 350 hestöfl. Allir eru þeir hlaðnir bestu fáanlegu Yamaha tækni. Yamaha á örugglega rétta mótorinn fyrir þig. Kletthálsi 3 |110 Reykjavík | sími 540 4900 www.yamaha.is EXPLORE WITHOUT LIMITS ® EXPLORE WITHOUT LIMITS ® Grizzly 700 EPS Vinnujálkurinn frá Yamaha! Þeir sem prófa, vilja ekkert annað. Ný uppfærsla með dráttarspili, LED ljósum, 26“ dekkjum. Aukin burðargeta og lækkaður þyngdarpunktur gerir gott hjól enn betra. Verð frá kr. 2.320.000,- BJÓÐUM ALLA ALMENNA VERKSTÆÐISÞJÓNUSTU! Tímapantanir í síma 540 4900 Elín Anna tekur hér við ART-vottuninni úr hendi Sigríðar Þorsteinsdóttur, verkefnisstjóra og ART-þjálfara á Suðurlandi. Með þeim á myndinni eru Gunnar Þór Gunnarssonog Kolbrún Sigþórsdóttir ART-þjálfarar. Myndir / /Magnús Hlynur Hreiðarsson. Sex börn útskrifuðust úr Leikholti í vor en ART-vottunin var afhent formlega við útskriftina. Leikskólinn er gjaldfrjáls. Bændablaðið á bbl.is og líka á Facebook Dreift frítt í 32 þúsund eintökum um land allt Smáauglýsingar 56-30-300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.