Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 55
55Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Velkomin í
Skagafjörð
visitskagafjordur.is
Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð :: 455 6161 :: info@visitskagafjordur.is :: visitskagafjordur.is
Náttúrulaugar : Sundlaugar : Hestaferðir
Útivist : Gönguleiðir : Rafting : Golf
Siglingar : Fuglaskoðun
ný
pr
en
t e
hf
.
/
0
52
0
16
Varahlutir fyrir ámoksturstæki
Varahlutir í Trima og Alö Quicke ámoksturstæki. Einnig stjórnbarkar, suðufestingar ofl.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 23. júní
Lesendabás
Á Íslandi í 15 ár - 10 ára verksmiðjuábyrgð
Á Íslandi eru 2,6 ha gólfbita frá Andersbeton
Gólf - Einstök hönnun
léttari - sterkari -
hreinsa sig betur - hálkuvörn
Þolir 4000kg öxulþunga
www.andersbeton.com
G. Skaptason, Starengi 13, 800 Selfoss. Sími 481 1020
gsm 893 4334, netfang: gskapta@internet.is
Sala og ráðgjöf Norðurlandi: Benedikt Hjaltason,
Akureyri. Sími 894 6946, netfang: bigben@simnet.is
Hvað vilja Píratar uppá dekk?
− Svona vinna Píratar
Oft er spurt hvernig Píratar séu
öðruvísi en aðrir stjórnmálaflokk-
ar. „Er ekki sami rassinn undir
ykkur öllum?“ er þá algengt við-
kvæði sem speglar í raun mikið
vantraust til stjórnmálamanna.
Oft er bent á stefnu Pírata um
gegnsæi í stjórnsýslunni, auðveldað
aðgengi til upplýsinga, aukið lýðræði
og eindregna afstöðu Pírata gegn
hagsmunagæslu og spillingu.
Ein nærtækasta leiðin að mínu
mati, til að útskýra hvernig Píratar
vinna, er dæmisagan um umræðuna
á kaffistofunni í vinnunni þegar allir
eru að kvarta yfir hversu yfirgengi-
leg spillingin og græðgin er orðin,
ekkert lýðræði og ekkert hægt að
gera á meðan þjóðarauðnum er rænt
frá okkur. Við ættum að vera ríkari
en Norðmenn en erum langt á eftir
þeim. Svo höldum við áfram okkar
daglega amstri og ekkert gerist.
Segjum nú svo að við breytum
þessu. Einn tekur að sér að vera
fundarstjóri og aðeins skal rætt eitt
mál í hverjum kaffitíma. Ritari skrif-
ar fundargerð en markmiðið er að
komast að einfaldri niðurstöðu sem
allir geta verið sammála um. Það
má líka fá sérfræðing um málefnið
sem kæmi og kynnti sínar skoðanir.
Þannig er fundað þar til meirihluti
er fyrir stefnu um málið.
Það sem Píratar gera svo eftir sína
félagsfundi er að setja stefnuna loks
í kosningakerfi á netinu. Þar er málið
fyrst til umræðu og þá koma ýmsir
með ábendingar og athugasemdir,
hver eftir sinni þekkingu en síðan fer
málið loks í kosningu. Verði málið
fellt, fer það aftur til félagsfundarins
sem breytir þá stefnunni samkvæmt
athugasemdum og þegar málið er að
lokum samþykkt, þá verða þingmenn
flokksins að fylgja þessu eftir, því
þetta er þá orðin stefna flokksins.
Svona er stefnumótun Pírata sem
kemur ætíð frá fólkinu en ekki ein-
stökum hópum eða hagsmunaaðil-
um. ASÍ gæti ekki gert betur ef það
vildi valdefla launþegahreyfinguna.
Þetta er sama aðferð og stjórnlagaráð
vann eftir þegar það samdi tillögur
að nýrri stjórnarskrá. Þetta eru alls
ekki ný vinnubrögð en eru af mörg-
um talin ein lýðræðislegasta leiðin til
að koma sjónarmiðum sem flestra á
framfæri ásamt því að nýta þekkingu
og reynslu sérfræðinga í hverjum
málaflokki hverju sinni.
Hér er engin hægri eða vinstri
stefna, enginn kommúnismi, kapítal-
ismi eða annar „ismi“. Hér er fólkið
sjálft að koma fram með sín mál sem
því finnst mikilvægust hverju sinni
og hér erum við sjálf að hafa áhrif á
samfélagið okkar án afskipta stjórn-
málamanna eða hagsmunaaðila.
Svona vilja Píratar vinna og
þannig verða til fjölmargar stefn-
ur Pírata í ýmsum málaflokkum.
Sífellt er að bætast við þau atriði sem
Píratar ætla að vinna að (piratar.is).
Nú um stundir er nokkur umræða
um breytta skattastefnu til að jafna
kjörin, heilbrigðismál og afnám vísi-
tölu á húsnæðislán, allt stórmál.
Fyrst og fremst lýðræðisleg
vinnubrögð, annað kemur ekki til
greina.
Það sem helst einkennir þá sem
taka þátt í starfinu hjá Pírötum er
að þetta er venjulegt fólk. Það eru
engir atvinnupólitíkusar nema þá
þingmennirnir okkar.
Það er enginn farvegur fyrir
spillingu eða eiginhagsmunapot
hjá Pírötum og vonandi verður það
þannig áfram. Píratar eru einfald-
lega að nota það lýðræði sem við
höfum til að taka samfélagið aftur í
eigin hendur því það er engum betur
treystandi til þess en okkur sjálfum.
Gömlu stjórnmálin hafa því
miður verið misnotuð og brugðist
okkur hrapalega, þess vegna finnst
okkur mikilvægt að finna nýjar og
betri leiðir.
Ólafur Sigurðsson
matvælafræðingur.
Í stjórn Pírata í Hafnarfirði.
Ólafur Sigurðsson.