Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016 ... og kýrnar leika við hvurn sinn fingur − Útbeit nautgripa, velferð og hagnýt ráð − lög og reglur Nú eru bændur landsins sem óðast að leysa út nautgripi sína. Almenningur gleðst yfir að sjá kýrnar á beit og ferðamenn dást að litafjölbreytninni. Mikilvægust er samt útbeitin og útivistin fyrir heilbrigði og velferð gripanna. • Dagleg hreyfing eykur súrefn- isupptöku – meiri virkni vöðva eykur blóðflæðið. • Sogæðakerfið örvast – varnar- kerfi líkamans gegn smiti og sýkingum. • Minni líkur á súrdoða, föstum hildum og júgurbólgu. • Hreyfing hefur jákvæð áhrif á liði og eykur næringu liðbrjósks. • Fætur og klaufir kúa á útbeit eru heilbrigðari en þeirra sem inni standa, gróið land fer mun betur með lappirnar en harður flór og mykja í flórum. • Kýr sem hreyfa sig meira hika síður við að leggjast. • Tíðni spenastiga er umtalsvert lægri. • Mun færri kýr fá burðarlömun (þ.e. liggja lengi í doða/slíta lærvöðva) • Hegðunarfrávik sjást nánast ekki hjá nautgripum á beit. • Frumutala hækkar fyrstu dagana á beit hjá kúm með frumutölu >125 en lækkar síðan. • Beit hefur jákvæð áhrif á mjólk- urgæði og efnasamsetningu mjólkur. • Mjólkurkýr ættu að vera úti í u.þ.b. 6 tíma á dag í 8–16 vikur. • Kálfar yngri en fimm mánaða ættu ekki að vera úti nema með viðbótarfóðrun og tryggja verð- ur gott skjól. • Þroskaðar kvígur og geldneyti í góðum holdum geta gengið úti allt árið ef aðbúnaður og fóðrun er í lagi. Forðast verður sveiflur í fóðrun og tryggja aðgengi að hreinu drykkj- arvatni og steinefnum. Auðvelt er að lengja útbeitartímabilið hjá kvígum með viðbótargjöf. Hvenær líður gripum illa úti? Í mikilli rigningu/roki, í mikilli sólar- sterkju og þegar bitvargurinn flýgur líður gripunum illa og þeir verða að geta leitað skjóls. Góð skjólbelti hlífa gripum vel. Best er að mjólkurkýr hafi frjálsan aðgang að fjósinu. Hvað segja Danir? Skýrsla danska dýrasiðfræðiráðsins (Dyreetisk Råd) feb. 2006: Ráðið telur útbeit mjólkurkúa hafa jákvæð áhrif á heilbrigði og frjó- semi. Sömuleiðis minnki árásargirni, lægra settar kýr eigi auðveldara með að forðast þær hærra settu og kýrnar fái tækifæri til eðlilegrar félagslegrar hegðunar. Kýrnar hreyfa sig meira, eiga auðveldara með að leggjast og standa upp og hvíldaratferli er ótrufl- að. Hreyfingin eykur einnig þol og heilbrigði kúnna. Niðurstaða ráðsins er sú að útbeit sé eðlileg leið til að tryggja velferð mjólkurkúa og að almennt eigi allar kýr að fá möguleika til beitar. Undirmálskýr Danir skilgreina haltar, laskaðar og vesælar kýr sem „loser cows“ eða undirmálskýr. (Taberko - mal- keko der trives dårligt og derfor er nederst i hierarkiet) „Winner cow“/ hraust kýr mjólkar meira, þarf minni umönnun og lifir lengur. Misjafnt er eftir hjörðum hve undirmáls- kýrnar eru margar. Í hjörðum þar sem hraustu kýrnar eru hlutfalls- lega flestar er kálfadauði minni og frumutalan lægri. Velferð kúa í hjörðum með margar undirmálskýr er augljóslega ábótavant, mikilvægt er að greina ástæðurnar og leiðir til úrbóta. Í hjörðum þar sem kúnum er beitt eru líkurnar á að kýr verði undirmáls- kýr 2,5 sinnum minni, mjúkt legu- svæði (bás) og möguleikar á eðlilegu atferli minnka líkurnar enn meira. Mjaltaþjónar og útbeit Almenn er mælt með ca 6 tíma útbeit á dag. Ekki má vera of langt milli fjóss og beitar (250–500 m), sé langt í beitina þurfa kýrnar lengri tíma til að læra að koma heim. Sé beitin nálægt fjósinu eru kýrnar sjálf- stæðari, koma oftar inn til mjalta og dreifing mjalta verður jafnari. Þær eru líka lengur úti, koma oftar inn í stuttar heimsóknir og hafa rýmri tíma til að drekka. Þegar líður á sumarið verða kýrn- ar sjálfstæðari og koma oftar inn einar eða í litlum hópum. Stjórnið gróffóðurgjöfinni inni (minni gjöf meðan kýrnar eru úti). Sé fóðurlínan rétt fyrir innan dyrn- ar getur myndast biðröð í dyrunum. Hafið brynninguna aðeins inni í upp- hafi beitartímabilsins. Lokkið kýrnar inn, t.d. með þekktum hljóðum í fóðurvagni og kjarnfóðurbásum. Ef allar kýrnar eru reknar inn í einu verða þær að geta legið, drukkið og étið meðan þær bíða. Varist mikinn mun á birtu innandyra og úti, gott er að hafa bjart innan við fjósdyrnar því þá ganga gripirnir greiðar inn. Sækið kýrnar sem ekki koma sjálfar. Rétt staðsetning mjaltaþjóns í fjósi skiptir máli því mikilvægt er að umferðin um þjóninn og út á beit sé greið. Mjaltaþjónninn má ekki vera ásettur, leyfið t.d. lengri tíma milli mjalta. Munið að mjalta- þjónninn annar aðeins níu kúm á klukkutíma. Gelda má kýr í lítilli nyt. Fjósið þarf að vera rétt staðsett við beitarsvæðin, kýrnar ættu að sjá hagann og hjörðina frá fjósinu. Góð beit freistar kúnna, stjórnið beitinni (t.d. randbeit). Kúagötur verða að vera góðar Fjóshlað verður að vera vel úr garði gert svo hægt sé að halda því þrifa- legu. Gott er að láta kýrnar hreyfa sig aðeins áður en þær fara út úr fjósinu, þær leggja þá frá sér og minni skítur verður á götunni. Skipuleggið kúagötur þannig að auðvelt sé að halda þeim þurrum og hreinum. Takmarkið umferð þungra vinnuvéla um kúagöturnar. Gatan á að vera þétt og mjúk, burðarlagið stöðugt og leiða burt vatn. Kýr með skemmdar/ofvaxnar klaufir hægja á sér á hörðum vegi. Sé undirlagið mjög hart má ekki vera gróf möl ofan á, hætta er á mari og skemmdum á klaufum. Því lengra sem reka á kýrnar því breiðari verður gatan að vera, gatan á að vera eins bein og hægt er, forð- ist krappar beygur og blindgötur. Gætið vel að mynni götunnar við beitilandið svo ekki myndist þar for og bleyta, sömuleiðis gott rými svo lágt settar kýr hafi undanfæri. Girðið hæfilega nærri kúagötunni svo kýrnar leiti ekki út fyrir og traðki niður vegakantinn. Gott er að hafa nokkur hlið inn í beitarhólfin og dreifa þannig álaginu, þá verða minni skemmdir á gróðri við hliðin. Nautgripir í beitarhólfum sem liggja að kúagötunni trufla rekstur- inn. Ekki ættu að vera drykkjarkör við götuna, einhverjir gripir stansa til að drekka. Kýr vilja helst ganga í halarófu, þær hæstsettu fremst og þær lægst- settu aftast. Takmarkað rými er algengasta orsök árásargirni, sé of mikið rekið eftir kúnum verða þær stressaðar og stimpingar verða í hópnum. Þetta getur leitt til meiðsla, sömuleiðis gæta kýrnar ekki nægi- lega hvar þær stíga og geta meiðst á klaufum. Sé hópurinn tregur í rekstri á að reka eftir háttsettu kúnum sem eru fremstar, að reka eftir öftu- stu kúnum getur leitt til streitu og árekstra því þær lægst settu lenda í klemmu milli rekstrarmannsins og háttsettu kúnna. Beitin Skipuleggja verður beitina þannig að hún sé góð og lystug. Ágætar upplýsingar er að finna á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðar- ins, www.rml.is, ráðunautar RML veita sömuleiðis góð ráð og leið- beiningar. Hafa ber í huga að ormasmit getur magnast upp á beitarlandi og háð þá sérstaklega ungviðinu. Ormalyfjagjöf í samráði við dýra- lækna skilar oft miklum árangri. Lögin, reglugerðin og eftirlitið Í 14. grein laga nr 55/214 um velferð dýra kemur fram að umráðamönn- um dýra ber að tryggja grasbítum beit á grónu landi á sumrin. Í 17. gr. reglugerðar um velferð nautgripa er útbeitarkrafan svo útfærð nánar. Grein þessi er að hluta til unnin upp úr fyrirlestri sem höfundur hélt fyrir fagráð í naugriparækt 2013. Ítarefni og heimildir eru tiltækar áhugasömum. Katrín Andrésdóttir, f.v. héraðsdýralæknir. AKýr á beit ganga oft 4-8 km/dag meðan kýr í góðum lausagöngufjósum ganga 400- 800 metra. „Liggja, éta, mjólka ...“ Kýr bíta 4–9 klukkutíma á dag, mest í fjórum lotum; í dögun, um miðjan dag, seinnipart dags og þegar fer að skyggja. Kýrin sefur aðeins fjóra tíma á dag en liggur u.þ.b. 60% af sólarhringn- um, mest að næturlagi (ríflega 12 tíma). Þess vegna nýta þær beit mun verr að næturlagi. Beitin og mjólkin Rannsóknir sýna að mjólk úr kúm á beit inniheldur meira af CLA og Omega-3 fitusýrum. Auk þessa inniheldur mjólk- in meira E-vítamín sem styrkir fitukúlurnar – minna um fríar fitusýrur (FFS). Yfirdýralæknir upplýsir að Matvælastofnun muni fylgjast með að bændur virði ákvæði um útivist nautgripa. Brotum verður fylgt eftir með álagningu dagsekta eða stjórn- valdssekta. 1065/2014 Reglugerð um velferð nautgripa. 17. gr. Útivist. Allir nautgripir, að undanskild- um graðnautum, skulu komast á beit á grónu landi í átta vikur hið minnsta, á tímabilinu frá 15. maí til 15. október ár hvert. Aðgangur að útigerði uppfyllir ekki kröfu um útivist á grónu landi. Gripir sem eru úti skulu geta leitað skjóls fyrir veðrum. Að vetri skal skjól þetta vera gripa- hús eða legusvæði í skýli sem tekur mið af þörfum viðkomandi gripa. Þar sem nautgripir, aðrir en mjólkurkýr, eru haldnir úti skal vera aðstaða til að handsama gripi ef þeir þurfa meðhöndlun eða taka þarf úr þeim sýni. Átsvæði skal vera með þéttu og þrifalegu undirlagi. Þar sem gripir eru á útigangi allt árið skal vera aðstaða innanhúss til að hlúa að gripum sem þurfa sérstakrar umönnunar við. Hafa skal reglubundið eftirlit með gripum á útigangi og haga því eftir aðstæðum. Á tímabil- inu 15. október til 15. maí skal líta til með gripum á útigangi daglega.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.