Bændablaðið - 09.06.2016, Page 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2016
Það hefur vakið athygli margra á
liðnum misserum að hér á landi
skuli þrífast starfsemi sem aug-
lýst er á Facebook undir heitinu
„Skutlarar“ og býður fólki skutl
með einkabílum gegn greiðslu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ökuskólanum í Mjódd er slík
starfsemi ótvírætt ólögleg.
Mörgum þykir þessi starfsemi
sniðug og saklaus, þar sem hún geti
tryggt fólki skutl á milli staða í höf-
uðborginni fyrir mun lægra gjald en
þekkist hjá leigubílastöðvunum. Þótt
mörgum þyki þetta saklaus iðja, er
ekki víst að allir geri sér grein fyrir
að svo er alls ekki.
Starfsemi af þessu tagi getur falið
í sér brot á mörgum lagagreinum.
Sem dæmi eru viðkomandi ekki að
borga nein leyfisgjöld, enga skatta
eða neitt annað af starfseminni og
fæstir hafa trúlega tilskilin öku-
réttindi til að aka með farþega gegn
gjaldi. Þá hlýtur einnig að orka tví-
mælis hvar ökumaður og farþegar
standa lagalega ef þeir lenda í slysi
ef það sannast að ferðamátinn hafi
verið með þessum hætti.
Þá vekur einnig athygli í þessu
samhengi að á þessari Skutlara-síðu
má sjá ýmis nöfn sem gert hafa sig
gildandi á vefsíðum í hneykslan yfir
því að ýmsir fjármálamenn hafi verið
að stunda það að lauma fjármunum
úr landi í svokölluð skattaskjól til að
komast hjá því að borga hér skatta
og gjöld til samfélagsins. Skilaboðin
þeirra eru þá væntanlega að það sé
allt í lagi að stela frá samfélaginu,
bara ef það hentar sumum.
Líka stunduð „sprúttsala“ í
skutlinu
Leigubílstjórar hafa ítrekað kvartað
undan þessari starfsemi sem oft er
talsvert áberandi um helgar. Telja
þeir mikla hagsmuni í húfi þar sem
verið sé að taka frá þeim atvinnu sem
þeir hafa lagt umtalsverða fjármuni
í að fá lögleg réttindi til að stunda.
Bændablaðið hefur heimildir fyrir
því að leigubílstjórar hafi komið
ábendingum um þessa starfsemi til
lögreglu, en þrátt fyrir það virðist
ekkert lát vera á tilboðum á Facebook
um slíka þjónustu. Það sem meira er
að þar er líka verið að bjóða áfengi
til sölu sem flokkast undir það sem
áður var gjarnan nefnt „sprúttsala“.
Dæmi um slíkt er algengt að sjá eins
og þetta:
• „Er á ferðinni er líka með bjór
pm.“
• „Er á ferðinni með ískaldan
bjór,“ og uppgefið er símanúmer
viðkomandi.
Svo er líka dæmi um útsölu á áfengi:
• „Er með Peachtree ferskju-
líkjör 20% á aðeins 5000 kr.
Líter flaska, ódýrara en í rík-
inu. Langar endilega að losna
við þetta, sendið tilboð í skila-
boðum.“
Einum ofbýður þó áfengisauglýs-
ingarnar á Skutlinu, en auglýsir
sjálfur að geta útvegað aðgengi að
því sem hann kallar „Vínbúðin“ og
á þar væntanlega ekki við ÁTVR
og skrifar:
• „Vinsamlegast reynið að halda
áfengissölunni í þar til gerðum
grouppum. Getið sent á mig pm
& friend request ef þið viljið
aðgang að Vínbúðinni.“
Þá eru greinilega sumir að lána far-
þegum fyrir gjaldinu og var einn
að kvarta yfir því að maður með
ákveðið símanúmer hafi lofað að
borga um mánaðamót. Nánari deili
eru gefin á viðkomandi, „... sem hafi
verið að heimsækja kærustuna , sem
býr innst í…“
Bannað er að selja áfengi án
leyfis ÁTVR
Vart þarf að taka fram að samkvæmt
lögum er öll sala á áfengi bönnuð
nema með tilskildum leyfum.
Samkvæmt lögum um verslun með
áfengi og tóbak frá 2011 segir í III
kafla 7. gr. að ÁTVR hafi einkaleyfi
til að selja og afhenda áfengi í smá-
sölu, sbr. 10. gr. áfengislaga. Um
endursölu áfengis hjá vínveitinga-
húsum fer eftir ákvæðum sérlaga.
Þá segir í áfengislögum frá 1998
að; „öðrum en þeim sem hafa til
þess leyfi skv. 3. gr. [laga þessara
og III. kafla laga um veitingastaði,
gististaði og skemmtanahald]1) er
óheimilt að veita, selja eða láta af
hendi áfengi til annarra gegn gjaldi
eða öðru verðmæti.
Það varðar mann refsingu sam-
kvæmt lögum þessum láti hann við-
gangast ólöglegan tilbúning áfengis,
ólöglega sölu eða geymslu þess í
húsum sínum eða á landi sínu. Sama
gildir ef skip hans, bátur eða annað
flutningstæki er með vitund og vilja
hans notað til geymslu, flutnings eða
sölu ólöglegs áfengis. Með sama
hætti skal refsa þeim sem hefur
áfengi í vörslu sinni sem látið hefur
verið af hendi andstætt ákvæðum laga
þessara.
Réttinda og leyfis krafist til að aka
farþegum gegn gjaldi
Til að stunda leigubílaakstur á Íslandi
eða annan akstur með farþega gegn
gjaldi, þarf að hafa tilskilin réttindi
skráð í ökuskírteini. Sömuleiðis þarf
heimild Samgöngustofu sem gefur
út leyfi til slíkrar starfsemi. Þá þurfa
allar tryggingar að vera í lagi gagn-
vart þeim sem ekið er með.
Til að öðlast réttindi til aksturs far-
þega gegn gjaldi þarf að undirgangast
námskeið og próf í ökuskóla og þarf
viðkomandi að vera orðinn 20 ára.
Öðruvísi er ekki hægt að fá heimild
Samgöngustofu fyrir slíka starfsemi.
Námskeið og réttindaöflun kosta
hundruð þúsunda króna
Í fyrsta lagi er um að ræða námskeið
sem veitir réttindi til aksturs 1–8 far-
þega gegn gjaldi. Hjá Ökuskólanum í
Mjódd kostar slíkt námskeið 140.000
kr. Ef maður með fyrrnefnd réttindi
vill síðan stunda afleysingaakstur
fyrir annan handhafa leyfis þá kostar
það 39.500 krónur til viðbótar. Til
að frá leyfi fyrir akstur á litlum
rútum, 9–16 farþega, þarf svo annað
námskeið sem kostar 208.000 kr. og
próf á stórar rútur kostar 325.000 kr.
Hægt er að fá réttindi á allar stærðir
bifreiða, þar með taldar stórar rútur
og vörubifreiðar með aftanívagna,
og kostar slíkur pakki með afslætti
527.000 kr.
Það er því deginum ljósara að lög-
gjafarvaldið gerir skýrar kröfur um
að fólk sem hyggst aka með farþega
og taka fyrir það gjald, þarf að hafa
tilskilin leyfi og réttindi. /HKr.
- með þér alla leið -
569 7000 Lágmúla 4 www.miklaborg.is
Nánari upplýsingar veitir
Jón Rafn Valdimarsson
löggiltur fasteignasali
sími: 695 5520
jon@miklaborg.is
Sala jarða og fasteigna
Skoða og verðmet jarðir og aðrar eignir um allt land
• Fagleg þjónusta löggilts fasteignasala
• Góð kynning á eignum í vefmiðlum og dagblöðum
• Vönduð ljósmyndataka af eignum, m.a. loftmyndir
Einkunnarorð Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi, en mikil
áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning
allra hlutaðeigandi í viðskiptunum.
Hjá okkur geta eigendur fasteigna verið öryggir um að eign þeirra fái
hámarkskynningu og einstaka þjónustu. Við leggjum mikla áherslu á
að vera áberandi í störfum okkar með auglýsingum í blöðum og á netinu.
12 manns. Verð 40.000 þús
kr. nóttin virka daga og
45 þús kr. nóttin um helgar.
Lágmark 2 nætur.
Heitur pottur og sauna.
Uppl. í síma 898 1598
& ktsumarhus@gmail.com
Stórt sumarhús til leigu í Grímsnesi!Ólöglegir „Skutlarar“ auglýsa
sprúttsölu á Facebook
ENDURHEIMT VOTLENDIS
Landgræðsla ríkisins auglýsir eftir umsóknum um
styrki til endurheimtar votlendis. Allir eigendur eða
umráðahafar lands geta sótt um styrk.
Styrkupphæð getur numið heildarkostaði við
framkvæmd verkefna, þ.m.t. vinnu, tækjavinnu og kaupum
á aðföngum, samkvæmt kostnaðarmati Landgræðslu
ríkisins.
Við ákvörðum um styrkveitingu er einkum lögð áhersla á:
Landgræðslan veitir ráðgjöf við framkvæmd þeirra
verkefna sem styrkt eru og hefur jafnframt eftirlit með
framvindu þeirra og metur árangur.
til Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella eða á
netfangið land@land.is
Umsóknarfrestur er til 20. júní 2016.
Landgræðsla ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hella
Sími 488 3000, www.land.is