Bændablaðið - 05.10.2017, Page 32

Bændablaðið - 05.10.2017, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017 Í Svalbarðshreppi og Langa- nesbyggð hefur mikil nýliðun verið í sauðfjárrækt og er þar nú yngsta bændasamfélag á landinu. Margir hafa sótt sér menntun í búvísindum og iðngreinum, og snúið aftur á æskuslóðir, en grunnurinn að þessu bændasamfélagi er önnur kynslóð bænda sem hafa tekið við búum af foreldrum. Í byggðarlaginu, sem telur í heildina um 600 manns, eru tvö þorp, Bakkafjörður og Þórshöfn. Bakkafjörður hefur átt undir högg að sækja með fólksfækkun og minnkandi sjávarútvegi en þar eru nú aðeins tvö sauðfjárbú eftir. Á Þórshöfn er atvinnuástandið gott þar sem Ísfélag Vestmannaeyja rekur öfluga fiskvinnslu. Í janúar er loðnuvertíð og síðsumars og fram á haust má ná góðu uppgripi með makríl- og síldarvöktum, en þar hafa bændur verið liðtækir í að skipa löndunarteymi þegar á þarf að halda. Núna stendur enn yfir síldarvertíð þar sem unnið er á 12 tíma vöktum allan sólarhringinn. Þessir atvinnu- vegir styrkja því hvor annan. Það er alveg ljóst að það skiptir miklu máli fyrir bændur að eiga kost á að sækja vinnu utan bús, hvort sem það er á ársgrundvelli eða uppgrip á vertíðum. Tilvist samfélagsins ógnað Að öðru leyti er byggðarlagið hefðbundið sveitasamfélag. Þar er gripið í spil á vetrarkvöldum þegar boðað er til félagsvistar. Kvenfélagið er virkt og síungt, þá er björgunarsveit, leikfélag, kirkjukór, blaklið og ýmislegt hægt að finna sér til gagns og gamans. Aldrei skortir verkefni fyrir þá sem vilja taka þátt í samfélaginu. Núna er tilvist þessa samfélags ógnað með óvissu í sauðfjárrækt og úrræðaleysi stjórnvalda til að grípa til aðgerða. Mikil lækkun afurðaverðs er þungt högg Mikil lækkun afurðaverðs nú í haust er þungt högg og þá sérstaklega fyrir ungar fjölskyldur sem margar hverjar hafa nýlega fjárfest í sauðfjárbúum. Þetta unga kraftmikla fólk lætur nú í sér heyra, kallar eftir markvissri byggðastefnu frá stjórnvöldum og aðgerðum sem styrkja byggðir í landinu. /GBJ Myndir / Gréta Bergrún Jóhannesdóttir - Raddir af Norðausturlandi um stöðuna í sauðfjárræktinni

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.