Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Getum einnig útvegað rafstöðvar frá 6 til 1000 KVA.
Verktakar,
Iðnaðarmenn,
Húsbílaeigendur
ljosboginn@ljosboginn.isljosboginn.is
Startarar og alternatorar
Fyrir flestar gerðir fólksbíla, jeppa, vörubíla og vinnuvélar.
Höfum einnig varahluti í alternatora og startara
ALLT FYRIR MATVÆLAIÐNAÐINN
- Vacumpokar
- Umbúðir
- Kjötnet og garnir
- Vélar og tæki
- Krydd og hjálparefni
- Hnífar og stál
- Hlífðarfatnaður
NOKK EHF.
volundarhus.is · Sími 864-2400
GARÐHÚS 14,5 m²
www.volundarhus.is
TILBOÐ
10% afsláttur af öllum
GARÐHÚSUM
www.volundarhus.is
GARÐHÚS 4,7m²
GARÐHÚS 4,4m²
GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
GARÐHÚS 9,7m²
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
Nánari upplýsingar á
heimasíðu okkar
volundarhus.is
og í síma 864-2400.
Gnúpverjahreppi árið 1972, þegar
almennur sveitarfundur mótmælti
áformum um Norðlingaölduveitu
harðlega og hefur staðið með hléum
síðan. Það er til ítarleg fundargerð
frá þeim fundi. Síðasta baráttulotan
hófst síðan 2001 en nú hillir undir að
friðlandið verði stækkað. Þetta er því
orðin þriggja kynslóða barátta. Mér
finnst að viðhorf manna til verndunar
Þjórsárvera hafi breyst og æ fleiri átti
sig á hvers konar dýrmæti þau eru.“
Ungt fólk í sveitinni
sem vill búa þar
Eins og gefur að skilja vegna baráttu
Sigþrúðar og fleira fólks um verndun
Þjórsárvera, þá kemur ekki til greina
að virkja Þjórsá og skapa þannig störf,
uppistöðulón og rafmagn?
„Hvaða störf? Er verið að virkja til
að búa til störf í sveitinni? Nei, það
fer enginn í milljarða framkvæmd til
þess. Virkjunin mun ekki skapa nema
örfá framtíðarstörf. Það yrðu mjög
dýr störf sem að auki kostuðu fórnir
á náttúru og landslagi sem gleymist
að virða. Framkvæmdatíminn yrði
einhvers konar æði og það er ekki
huggulegt að hugsa til alls þess bram-
bolts og umferðar sem yrði þá. Það
er ekki árennilegt að búa í nágrenni
við svona stórframkvæmdir,“ segir
Sigþrúður.
„Við verðum líka að hugsa um
hvaða störf yrðu ekki til ef virkjun
verður reist. Ég vil treysta á frum-
kvæði manna til að skapa sér vinnu
og minni á að ungt fólk í sveitinni sem
vill búa þar hefur komið fram með
margar atvinnu- og uppbyggingarhug-
myndir sem lofa góðu og eru í sátt við
náttúru og menn. Þetta er umdeilt og
hefur haft slæm áhrif á samfélagið.
Uppistöðulón eru í sjálfu sér úrelt
fyrirbæri og hafa oftast tortímt gróðri,
jarðvegi og vistkerfum. Því verður að
linna. Við höfum ekki efni á að eyða
meira af þeirri dýru og óafturkræfu
auðlind sem jarðvegur er. Hann er
undirstaða lífs okkar og nær öll fæða
manna kemur úr jarðvegi. Þjórsá er
líka iðandi af lífi og ein mesta lax-
veiðiá landsins. Því er stefnt í hættu.
Það er fáviska að horfa einungis á ár
renna sem megavött, en ekki lífæð og
lifandi vistkerfi.“
Það er allra hagur
að fara vel með landið
Blaðamanni lék forvitni á að vita hjá
Sigþrúði hvaða skoðun hún hefði
á íslensku sauðkindinni og land-
græðslu.
„Þetta er samspil margra þátta.
Í þessu gildir að fara með gát og
ofgera ekki gróðurauðlindinni, því
sé það gert hnignar henni og hún
gefur minna af sér og það getur leitt
til jarðvegseyðingar. Minni uppskera
og stundum verri beitarplöntur hafa
áhrif á þrif búfjárins. Það er allra
hagur að fara vel með landið. Við
stöndum hins vegar í þeim sporum
að hafa tapað um helming af grónu
landi frá landnámi svo við þurfum að
byggja upp jarðveg, gróður og virk
vistkerfi. Það er mikið verkefni en
nauðsynlegt. Annars er hægt að lesa
meira um beitarfræði í bæklingi eftir
mig sem Landgræðslan gaf út 2010
og nefnist Sauðfjárhagar.“
Lúpína á ekki erindi í gróin
lönd
Þegar talið berst að lúpínunni hafði
Sigþrúður þetta að segja. „Lúpínan
er framandi ágeng tegund sem ber
að fara varlega með en hún er mjög
öflug niturbindandi jurt. Hún er að
dreifast mjög hratt og er komin víða
inn í gróin lönd þar sem hún á ekk-
ert erindi. Það væri farsælt ef menn
gætu lyft sér upp úr skotgröfunum
vegna þessarar plöntu og horfst í augu
við kosti hennar og galla án þess að
missa sig.“
Dýrmætt að eiga góða vini
Nú berst talið að áhugamálum
Sigþrúðar og fjölskyldu hennar, þar
ber margt á góma.
„Já, okkur finnst gaman að fara í
gönguferðir saman, stuttar og langar.
Við förum flest sumur í gönguferð-
ir um Þjórsárver og stundum víðar.
Einnig hef ég verið önnur þeirra sem
í 15 ár hef leitt gönguhópa að fossun-
um miklu í Þjórsá á Gnúpverjaafrétti,
beinlínis til að koma þeim á kortið,
það er alltaf gaman. Ég hef óbilandi
áhuga á landbótum og sameina því
göngur og landbótastörf með ýmsum
hætti heima í Geldingaholti. Hef
gaman af að sjá góð leikrit og hef
tekið þátt í leiklistarstarfi í sveitinni.
Við Axel eigum mikið af bókum,
margar eru fræðilegs eðlis um náttúr-
una, landið, gróður, jarðfræði, heilsu
og heilbrigðara líf, sögu, andleg mál-
efni, samfélagsmál og manninn í til-
verunni. Sjálf er ég heilluð af sauðfé
og hef stúderað atferli þeirra lengi.
Svo er dýrmætt að eiga góða vini og
njóta samfunda með þeim.“
Áformin deyja smátt og smátt
Að lokum er Sigþrúður spurð um
Þjórsárver og framtíð þeirra, hvað
muni gerast. Það stendur ekki á svar-
inu.
„Nú verður friðlandið stækkað og
síðar verður það stækkað enn meira
niður með Þjórsá. Smátt og smátt
deyja áform um að setja upp lón á
svæðinu og menn átta sig á að það
verður ekki liðið. Þjórsárver eiga svo
gríðarlega stóran og öflugan stuðn-
ingshóp úti um allt.“
/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Sigþrúður og Axel þegar Sigþrúður tók á móti Náttúruverndarviðurkenningu
Sigríðar í Brattholti á Degi íslenskrar náttúru 16. september sl. Viðurkenn-
inguna fékk Sigþrúður fyrir áralanga baráttu sína fyrir verndun Þjórsárvera.
Mynd / Úr einkasafni.