Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Salerni fyrir ferðamenn hafa
verið tekin í notkun í Lágey í
Dyrhólaey.
Unnið er að frágangi í kringum
salernið þar sem gert er ráð fyrir
upplýsingaskiltum og áningasvæði.
Aðgangseyrir er 200 krónur og
bæði hægt að greiða með korti eða
hundrað króna peningum.
Ný bílastæði kláruð næsta vor
Einnig er unnið að framkvæmdum
við ný bílastæði við salernin sem
munu leysa af hólmi eldri bílastæði
á Lágey. Eldra bílastæði verður
fjarlægt og gerður göngustígur frá
nýja bílastæðinu að útsýnisstöðum.
Gert er ráð fyrir að göngustígurinn
verði fær hjólastólum. Klárað verður
að ganga frá nýja bílastæðinu næsta
vor. Það verður malbikað og rútu-
og fólksbílastæði merkt sérstaklega.
Heilsárs landvarsla
Þetta kemur fram á vef
Umhverfisstofnunar sem fagnar því
að nú stefni í heilsárs landvörslu í
Dyrhólaey með auknu fjármagni.
Landvörður þar mun einnig sinna
náttúruvættinu Skógafossi. „Skrefin
sem hafa verið stigin eru löngu tíma-
bær, þar sem straumur ferðamanna
á Suðurlandi er nokkuð jafn yfir allt
árið,“ segir í frétt á vef stofnunarinn-
ar. /MÞÞ
www.n1.is facebook.com/enneinn
Alltaf til staðar
K2 kuldagalli
Vnr. 9616 K2 2001
Vattfóðraður kuldagalli með cordura-efni
á álagsflötum. Rennilásar á skálmum.
Hægt að fjarlægja hettuna.
Litur: grár/svarur Stærðir: XS-5XL.
Buckler vetrarhanskar
Vnr. 7151 G005 K100
Hlýir, dýfðir nítrilhanskar fyrir veturinn.
Henta vel fyrir iðnaðarmenn, verktaka
og bændur. Stærðir: 9-11.
Dimex úlpa
Vnr. 9609 6691
Hlý, vattfóðruð úlpa úr polyester og bómull.
Létt og lipur með brjóstvösum, m.a. fyrir
farsíma. Litur: svartur. Stærðir: S-3XL.
Dimex Basic buxur
Vnr. 9609 620
Góðar vetrarbuxur með vatns- og blettavörn,
styrktum saumum og hnjápúðavösum.
Til í svörtum lit.
Mobil Delvac XHP ESP 10W-40, 4 l
Vnr. 3020 153122
Syntetísk olía fyrir flestar nýrri gerðir af
dráttarvélum. Má einnig nota á eldri gerðir.
Mobilfluid 426, 20 l
Vnr. 706 472120
Drif- og vökvakerfisolía fyrir traktora
og vinnuvélar.
Nú tekur að kólna í veðri
Verslanir N1 um land allt
Akureyri s. 440 1420 • Grindavík s. 426 8290 • Höfn s. 478 1940 • Ísafjörður s. 456 3574
Klettagarðar s. 440 1330 • Ólafsvík s. 436 1581 • Patreksfjörður s. 456 1245
Reyðarfjörður s. 474 1293 • Reykjanesbær s. 421 4980 • Vestmannaeyjar s. 481 1127
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
3
5
2
6
Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sæti og varahlutir í
- Lyftara
- Vinnuvélar
- Vörubíla
- Báta
Um árabil hefur Heyrnartækni veitt þjónustu víðs vegar
um landið. Við bjóðum upp á mikið úrval vandaðra
heyrnartækja í ólíkum verðflokkum. Kannaðu hvenær Árni
Hafstað heyrnarfræðingur verður næst í nágrenni við þig.
Fáðu heyrnartæki til prufu
Akranes | Akureyri | Borgarnes | Egilsstaðir | Reykjanesbær | Sauðárkrókur | Selfoss
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Vel var mætt á almennan
íbúafund um stöðu fráveitumála í
Mývatnssveit en hann var haldinn
í Reykjahlíðarskóla nýverið.
Þar var farið yfir umbótaáætlun
sveitarfélagsins og rekstraraðila,
hreinsistöð í Reykjahlíð, stöðuna
á viðræðum við ríkisvaldið
og fleira. Framsögumenn á
fundinum voru Reynir Sævarsson
frá verkfræðistofunni EFLU og
Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri.
Fundarstjóri var Helgi Héðinsson.
Fundurinn var hinn fróðlegasti
og í lok hans svöruðu Reynir,
Þorsteinn og Helgi fjölmörgum
spurningum sem brunnu á íbúum
vegna fráveitumálanna sem hafa
sannarlega verið í brennidepli
undanfarin misseri.
Biðstaða
Núna er staðan sú að samninga-
viðræður við ríkið um aðkomu
þess varðandi fjármögnun er
í biðstöðu í kjölfar þess að
ríkisstjórnin sprakk, raunar sama
kvöld og fráveitufundurinn fór
fram. Sveitarstjórn átti bókaðan
fund með umhverfisráðherra og
fjármálaráðherra í síðustu viku en
fundurinn var flautaður af. Engu að
síður vinnur sveitarstjórn eftir þeirri
umbótaáætlun sem lögð var fram í
sumar þrátt fyrir að heilbrigðisnefnd
Norðurlands eystra hafi hafnað henni
á þeim forsendum að hún hafi ekki
verið fjármögnuð. /MÞÞ
Skútustaðahreppur:
Biðstaða
Salerni í Dyrhólaey tekin í notkun