Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017 Reimar Sigurjónsson og Dagrún Þórisdóttir búa á bænum Felli í Finnafirði en Reimar hefur verið bóndi þar síðan 1992. Hann segir að útlitið hafi oft verið svart en aldrei þó eins og nú. Þau hjónin eru samhent og kraftmikil, byrj- uðu með rekstur ferðaþjónustu fyrir tveimur árum, sem gæti nú orðið stærri þáttur í þeirra afkomu. Þau eru búin að senda 370 lömb á sláturhús og meðalfallþunginn er 15,8, sem er aðeins slakara en með- alár. Í heildina eru þau að slátra um 600 lömbum en þau eru með um 420 kindur á vetrarfóðrum. Þau hjónin lóga á Vopnafirði og lækkun þar á meðaltalsverði var 33,5%. Veruleg kjaraskerðing Í fyrra var lækkun um 10% og ef dæmið er sett upp í krónur er millj- ónin árið 2015 orðin að 900 þúsund haustið 2016. Núna í haust er þessi upphæð orðin 598 þúsund og því ljóst að um verulega kjaraskerðingu er að ræða á stuttum tíma. Þau taka ekki mikið af kjöti heim þótt það gefi meira að selja beint. Dagrún segir að það sé drjúg vinna í kringum það að selja slíkt og akkúrat á þeim tíma þar sem nógu öðru er að sinna. Hún segir að það sé líka kannski óhagkvæmt núna þegar umræðan er þessi og fólk vill líklega fá kjöt- ið á lægra verði, en þau segjast ekki hafa trú á að þessar lækkanir til bænda skili sér til neytenda í lægra verði. Ekki ginnkeyptur til að fjölga Í Bakkafirði eru bara tvö sauð fjárbú eftir og þola heiðarlöndin meira af fé. Reimar segist þó ekki vera ginn- keyptur fyrir því að fjölga og fram- leiða eitthvað sem ekkert fáist fyrir. Það sé nóg að sitja uppi með stöð- una eins og hún er í dag. Hann segir að það sé ekki auðvelt þegar það sé búið að fjárfesta fyrir fleiri milljónir í hey að sjokkið komi allt of seint. Það hefði í raun þurft að koma fyrir 14 mánuðum, áður en áburður var keyptur fyrir þetta ár. Þau segjast ekki ætla að fjárfesta í áburði núna fyrr en staðan skýrist. Þó svo að áburður hafi verið boð- inn á hagstæðara verði ef pantað er snemma þá er ekkert endilega til peningur fyrir áburði. Skoða stöðuna nánar á vordögum Reimar segist ætla að gefa sín hey í vetur í þessar 400 kindur og sjá svo til á vordögum. Þau segjast vera ágætlega stödd með að vera búin að byggja upp ferðaþjónustu án þess að steypa sér í skuldir og geta snúið sér að öðru ef ekki verður framhald á sauðfjárbúskap. Það sé þó ekki það sama hjá mörgum yngri bændum og þau hafa áhyggjur af þeim sem eru búin að vera að fjárfesta, til dæmis ungum bændum sem eru nýbúnir að kaupa jörð og fjárfesta í tækjum. Er verið að búa til kjötfjall? Þau hjónin segjast hafa nógu að sinna í sveitinni þó alltaf sé möguleiki á að vinna með búinu þar sem næg vinna sé í nágrenninu. Reimar hefur verið eitthvað í meindýravörnum og tekið upp- grip í löndunum hjá Ísfélagi Vestmannaeyja á Þórshöfn. Ekki í kortunum að hætta Sauðfjárbúskapur er þó það sem á hug þeirra og áður en þessar afurðalækkanir komu til var ekk- ert í kortunum að hætta. Þau segja þó ljóst að aðgerða sé þörf og það strax, ein leiðin sé að setja skýrari reglur um fram- leiðslu þeirra sem ekki eru með kvóta og í fullri vinnu með smá búskap. Þannig að þeir sem séu að reyna að lifa af sauðfjárbúskap geti gert það. Umræðan um kjötfjallið var mikil í sumar en síðan reyndist fjallið ekki vera til. Reimar veltir upp þeirri spurningu hvort þessar lækk- anir séu ekki bein leið til að búa til kjötfjall, þar sem margir hætti og þá komi mikið inn til slátrunar. Hann segir að upplausn í stjórn- málum bætist við í ofanálag og bændur séu bara í frjálsu fjalli. Í vetur ætli þau að láta þetta danka, þau lifi af einn vetur en kannski ekki annan. Það verði að koma til skýrar og árangursríkar aðgerðir ef halda á áfram með sauðfjárbúskap í Finnafirði. – Framhald bls. 34 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Hitablásarar Rafmagnshitablásari 2Kw 1 fasa 6.890 Rafmagnshita- blásari 5Kw 3 fasa 12.830 Rafmagnshita- blásari 2Kw 1.990 Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Rafmagnshitablásari 3Kw 1 fasa 8.890 15 metra rafmagnssnúra 2.390 INDUSTRIAL GRADE Fjöltengibox IP44 H07RN F3G1,5 1,5 m snúra 1.990 Kapalkefli 10m H05vv-F3G1,5mm 2.690 Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi Sími 580 5800 • www.landvelar.is Gæði og styrkur HMF bílkranar – Hagkvæmir og endingargóðir Þjónusta HMF er traust og hvergi er slakað á kröfum um öryggi, virkni og nákvæmni. HMF kranar fara í gegnum nákvæmt gæðaeftirlit og eru framleiddir samkvæmt viðurkenndum gæðastöðlum og með vottun frá Lloyd‘s Register Quality Assurance (LRQA). Power to lift „Við erum í frjálsu falli“ Anita Reimarsdóttir, Dagrún Þórisdóttir með Sigurjón, son Anitu, í fanginu, Helga Björg Reimarsdóttir og Reimar Sigurjónsson. Bændur í Langanesbygg ð, Dagrún Þórisdóttir á F elli, Sigríður Ósk Indriðadóttir í Miðfja rðarnesi og Margrét Eyrú n Níelsdóttir í Tunguseli. Samfélagsleg áhrif geta orðið alvarleg Elías Pétursson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, segir að sveitar- félagið líti stöðuma mjög alvarleg- um augum. Það sé augljóst að tuga prósenta lækkun á afurðaverði hafi mikil og jafnvel óafturkræf áhrif á byggð á svæðinu sem og í öðrum héruðum hvar fjárbú- skapur er ráðandi. Hann segir að samfélagsleg áhrif geti orðið mjög alvarleg svo ekki sé fastar að orði kveðið. „Ég tel mjög bagalegt að ekki hafi tekist samkomulag um aðgerðir til hjálpar fjárbændum áður en ríkisstjórnin sprakk. Af sjálfu leiðir að ég tel ákaflega mikilvægt að nýtt þing grípi þegar til aðgerða þá það kemur saman að afloknum kosningum. Þær aðgerðir verða að vera samsettar af bráðaaðgerðum vegna lækkunar afurðaverðs í haust sem og áætlun um aðgerðir til lengri tíma. Ekki getur gengið að bændur séu á hverju hausti settir í þá stöðu að afurðastöðvar geti kippt stoðum undan rekstri fjárbúa með litlum sem engum fyrirvara,“ segir Elías. Hann segir það sína skoðun að í landinu sé í raun ekki rekin byggða- stefna þó að Byggðastofnun sé að standa sig eins og hægt er ásamt öðrum þeim stofnunum sem um véla. „Vandinn fellst að mínu mati í stefnuleysi og lausatökum Alþingis sem og stjórnmálafólks, skorti á langtímastefnu og langtíma markmiðum settum af því fólki sem við kjósum til að fara með stefnumótun og löggjafarvald. Stefnumótun sú sem ég tel nauðsynlega þarf að ná yfir skemmri og lengri tíma.“ Elías segir að stefnumótun þurfi að vera hafin yfir flokkapólitík, kjör- tímabil þingmanna og daglegt þvarg. Ef ekki tekst að mynda langtímasýn til handa íbúum landsbyggðar þá mun landsbyggðin smátt og smátt missa afl og á endanum mun byggð leggjast af. Eitthvað sem er með öllu óásættanlegt. Hér býr ungt og kraftmikið fólk „Í sveitunum hér í kring býr margt ákaflega ungt kraftmikið, vel mennt- að fólk sem valið hefur sér það starf að reka fjárbú. Þetta kraftmikla fólk hefur fjárfest í löndum, húsum og vélbúnaði ásamt og að hafa fjárfest í ræktunarstarfi. Það væri þyngra en tárum taki ef samfélagið á Íslandi heykist á því að standa með þessu fólki nú þegar afurðastöðvar ein- hliða kippa undan fólkinu fótunum,“ segir Elías og augljóst að hann hefur áhyggjur af stöðu mála. „Í mínum huga þarf einnig að horfa til afurðastöðva og reksturs þeirra, þar tel ég mikið rúm til úrbóta og mörg tækifæri til þess að gera betur í verkun og framsetningu afurða. Á landsbyggðinni eru fjölmörg tækifæri og miklar auðlindir bæði í fólkinu sem þar býr og landinu sem það yrkir. Okkur Íslendingum ber að standa vörð um það fólk sem nú upplifir þrengingar vegna ástæðna sem erfitt er að kenna þeim um.“ /GBJ Elías Pétursson, sveitarstjóri Langanes byggðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.