Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 53

Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017 ORKUSJÓÐURORKUSTOFNUN ORKUSJÓÐUR Orkusjóður auglýsir fjárfestingastyrki til eflingar innlendrar eldsneytisframleiðslu Eingöngu er um að ræða fjárfestingarstyrki. Styrkupphæðin getur hæst numið 50% af verði keypts búnaðar, þó að hámarki 5 m.kr. Við mat á umsóknum verður sérstaklega horft til: • Aukinna gæða eldsneytisins. • Aukinnar afkastagetu. • Reynslu umsækjenda • Almennra gæða umsóknar og þeirra áætlana sem henni fylgja. Umsóknarfrestur er til 27. október 2017 Skrifleg staðfesting á afgreiðslu umsókna mun berast umsækjendum eigi síðar en 20. desember 2017 Orkustofnun fylgir stefnu stjórnvalda um rafræna stjórnsýslu og skal senda Rafrænar umsóknir af vef Orkustofnunar www.os.is Nánari upplýsingar hjá Orkusjóði, Rangárvöllum við Hlíðarfjallsveg, 603 Akureyrií síma 569 6083 – Netgang Orkusjóðs er jbj@os.is - Orkusjóður á www.os.is Hlutverk Orkusjóðs er að stuðla að hagkvæmri nýtingu orkulinda landsins með styrkjum eða lánum, einkum til aðgerða er miða að því að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis Styrkirnir eru auglýstir á grundvelli 6. gr. reglugerðar nr. 185/2016 um Orkusjóð. Styrkir þessir eru einungis ætlaðir fyrirtækum, sem þegar framleiða innlent eldsneyti og vilja ráðast í kaup á tækjabúnaði í þeim tilgangi að auka gæði og/eða umfang framleiðslunnar. Almanak Háskóla Íslands 2018 komið í helstu bókaverslanir um land allt. Fæst einnig á: www.almanak.is H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003 Til sjóðfélaga í Lífeyrissjóði bænda LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA Stórhöfða 23 - 110 Reykjavík s. 563 1300 - lsb@lsb.is Sauðfjárrækt – Aðgerðir til eflingar Í nokkra mánuði hefur mikil tímabundin verðlækkun sauðfjárafurða legið fyrir. Ástæða lækkunarinnar er einkum vegna gengisþróunar og tímabundinnar lokunar á mörkuðum erlendis. Samtök bænda hafa átt í viðræðum við stjórnvöld um lausnir og í því sambandi lagt fram margvíslegar hugmyndir. Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar með landbúnaðarráðherra í fararbroddi hefur því miður dregið lappirnar og ítrekað kemur í ljós skilningsleysi gagnvart stöðu landsbyggðarinnar. Tillögurnar sem stjórnvöld kynntu virtust einungis snúast um að fækka bændum og koma til móts við þá sem ætla að bregða búi en lítill vilji virtist vera til að styrkja stöðu þeirra sem ætla að halda áfram. Þetta er röng hugsun og er til þess fallin að veikja landsbyggðina til lengri tíma litið. Það hefur komið vel fram hversu mikilvægt er að ráðherra landbúnaðarmála hafi skilning á byggðamálum. Hvernig stóð á því að Viðreisn fékk ráðuneyti landbúnaðarmála? Var það vegna mikils skilnings á byggðamálum eða var það vegna pólitísks samkomulags um að landbúnaðinum skyldi fórnað fyrir ráðherrastóla? Ef sú er raunin þá er það mikið ábyrgðarleysi gangvart bændum, fjölskyldum þeirra og einstökum byggðalögum sem byggja á sauðfjárrækt. Þeirri óvissu sem þessi ríkisstjórn hefur boðað er sem betur fer að ljúka og mikilvægt að við taki stöðugleiki og festa fyrir þau byggðalög sem byggja afkomu sína á landbúnaði. Framsókn leggur áherslu á að ráðist verði strax í aðgerðir fyrir sauðfjárbændur að afloknum kosningum. Þar verði lögð sérstök áhersla á að horfa til framtíðar í stað þess að brjóta niður greinina. Helstu áherslur eiga að vera eftirfarandi: • Framsókn vill hætta við að greiða bændum sérstaklega fyrir að bregða búi eða slátra fullorðnu fé. Það á ekki að vera meginmarkmið stjórnvalda að fækka bændum um 20%. • Framsókn vill að samþykkt verði aukafjárveiting til að vega upp tímabundna tekjuskerðingu bænda vegna sláturstíðar í haust. • Framsókn vill styðja með beinum hætti við áætlanir bænda um sameiginlega markaðssetningu dilkakjöts á erlendum mörkuðum undir merkinu „Icelandic lamb“. • Framsókn vill að unnið verði að lagabreytingum til að ná fram sveiflujöfnun birgða á innanlandsmarkaði. • Framsókn vill að Byggðastofnun verði falið að fara yfir lánamál sauðfjárbænda til að koma í veg fyrir brottfall vegna tímabundinna skuldavandræða. Atriðin sem talin eru hér að ofan eru ekki tæmandi en eru forgangsmál til að leysa stöðu sauðfjárbænda. Íslendingar vilja öfluga sauðfjárrækt og stuðningur við bændur er mikill í íslensku samfélagi eins og fram hefur komið síðustu mánuði. Nærri 30 sveitarfélög hafa sent frá sér ályktanir vegna stöðu sauðfjárbænda og margir aðrir hafa tjáð áhyggjur sínar af stöðunni. Sauðfjárræktin gegnir ekki einungis því hlutverki að framleiða matvæli heldur er hún víða undirstaða byggðar. Öflug sauðfjárrækt er því öflugasta byggðaaðgerðin á mörgum svæðum. Það er ljóst að sauðfjárrækt sem og önnur innlend matvælaframleiðsla á mikil sóknarfæri og það er mikilvægt að tímabundin vandræði komi ekki í veg fyrir að menn horfi til framtíðar. Framsóknarflokkurinn mun standa með landbúnaði og innlendri matvælaframleiðslu að afloknum næstu alþingiskosningum. Ásmundur Einar Daðason sækist eftir 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í N- kjör- dæmi Ásmundur Einar Daðason. Bændablaðið á bbl.is og líka á Facebook Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG VERSLUN EHF 544-4656 - MHG.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.