Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Fyrri sýning lambhrútasýningar á
Snæfellsnesi 2017 fer fram föstu-
daginn 13. október á Haukatungu
Syðri 2 í Kolbeins staðarhreppi og
hefst kl. 20.30.
Áframhald fer fram laugardaginn
14. október í Tungu, Fróðárhreppi
Snæfellsbæ og hefst kl. 13.00. Á
þeirri sýningu verða veitingar í boði
gegn vægu gjaldi til að fá aðeins upp
í kostnað sýningarinnar. Það verður
sem sagt 500 kr. á mann ef menn
vilja gæða sér á kræsingum og kaffi
og að sjálfsögðu verður frítt fyrir
börn.
Það verður svo áfram lambahapp-
drættið sem vakti mikla stemningu
og skemmtun. Þeir sem hafa áhuga
á að krækja sér í miða þá mun mið-
inn kosta 1.000 kr. Vegleg verðlaun
í boði.
Enginn posi verður á staðnum.
Verðlaunaafhending verður svo að
lokinni sýningu í Tungu Fróðárhreppi
fyrir báðar sýningarnar.
Allir velkomnir og áhugafólk um
sauðfjárrækt auðvitað hvatt til að
mæta með sína gripi og sjá aðra.
Héraðssýning á
Snæfellsnesi
Íslyft verður á ferðinni með John
Deere dráttarvélar frá 8.10 til
13.10. Komið verður við á 12 stöð-
um þar sem mönnum gefst kostur
á að skoða og prófa vélarnar.
Íslyft tók við umboði fyrir John
Deere síðastliðið vor og hafa þegar
selt fjölda véla og eru að afhenda
fyrstu nýju vélarnar.
Einnig verður John Deere Gator
með í för, sem er upplagður sem
vinnutæki á bændabýlum.
Íslyft mun einnig sýna Pixy
liðléttinga og Merlo skotbómulyftara.
Sýningarferð Íslyft
og John Deere
Karvel L. Karvelsson kom þann
2. október aftur til starfa sem
framkvæmdastjóri RML.
Karvel hefur verið í ársleyfi og
Vignir Sigurðsson, sem gegndi fram-
kvæmdastjórastöðu RML síðasta
árið, er nú farinn í ársleyfi.
Starfsstöð Karvels er á Hvanneyri
og er hægt að ná í hann í síma 516
5000 og í gegnum netfangið klk@
rml.is.
Karvel kominn
aftur til RML
Karvel L. Karvelsson.
Starfsstöð Skógræktarinnar á Akureyri:
Tekur fyrsta „Græna skrefið“
Starfsfólk Akureyrarskrifstofu
Skógræktarinnar í Gömlu-
Gróðrarstöðinni tóku á dögun-
um við viðurkenningu frá
Umhverfis stofnun fyrir að
hafa náð fyrsta „Græna skref-
inu“ í ríkisrekstri. Markmiðið
er að allar starfsstöðvar
Skógræktarinnar taki þessi
skref.
Metnaðarfullar og framsýnar
stofnanir geta nú nýtt sér hvata-
kerfið Græn skref í ríkisrekstri til
að stuðla að aukinni sjálfbærni í
rekstri og bættri umhverfisvitund
meðal starfsmanna, að því er fram
kemur á vef Skógræktarinnar.
Skógræktin hefur undanfarin
misseri unnið að því að innleiða
þetta kerfi í rekstri sínum og nú fyrr
í vikunni fékk fyrsta starfsstöðin,
Akureyrarskrifstofan í Gömlu-
Gróðrarstöðinni, viðurkenningu
fyrir að hafa náð fyrsta skrefinu af
fimm. Hólmfríður Þorsteinsdóttir,
sérfræðingur á sjálfbærnisviði
Umhverfisstofnunar, afhenti
starfsfólkinu á Akureyri viður-
kenninguna að viðstöddum Þresti
Eysteinssyni skógræktarstjóra.
Í Gömlu-Gróðrarstöðinni hefur
verið komið upp söfnunarílátum
fyrir alla flokka sorps og lífrænn
úrgangur er jarðgerður í moltutunnu
að húsabaki, þrír starfsmenn í hús-
inu hafa gert samgöngusamning
við Skógræktina og koma gangandi
eða hjólandi til vinnu flesta daga,
hugað er að umhverfismerkingum
hreinsivara og pappírs og sett upp
innstunga fyrir rafbíla, svo eitthvað
sé nefnt. /MÞÞ
Fundir um hugmyndir að nýrri
byggða- og landbúnaðarstefnu
Við viljum að ný byggða- og
landbúnaðarstefna leggi grunn að
náttúruvernd og styðji við sögu og
menningu þjóðarinnar. Við teljum
nauðsynlegt að samþætta hagsmuni
þéttbýlis og dreifbýlis og stuðla að því
að höfuðborgin sinni skyldum sínum
við landsbyggðina og landsbyggðin við
höfuðborgina. Markmiðið er að skapa
tækifæri um allt land þannig að ungt fólk
hafi raunverulegt valfrelsi um búsetu.
Mánudagur 9. október
Blönduós Sal Búnaðarsambandsins kl. 13.00
Ásbyrgi Laugabakka kl. 20.00
Þriðjudagurinn 10. október
Búðardal Dalakoti kl. 13.30
Hvanneyri Árgarði kl. 20.00
Miðvikudagur 18. október
Þingeyjarsveit Ýdölum kl. 11:00
Þórshöfn Félagsheimilinu Þórsveri 15:30
Egilsstaðir Icelandair hóteli Héraði kl. 20.00
Aðrir fundir verða auglýstir síðar.
Ísland allt blómstri
Óli Björn Kárason
8. þm. Suðvesturkjördæmis.
Haraldur Benediktsson
1. þm. Norðvesturkjördæmis.