Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 54

Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017 Honda Civic kom fyrst á markað 1972, þá þótti það nýjung að vera með framhjóladrifna bíla og var þessum litla Honda Civic líkt við Breska Austin Mini bílinn, en vélin var eitthvað kraftmeiri en í Mini. Nú 45 árum seinna er enn einn nýr Civic kominn og nú með 182 hestöfl. Ég tók skemmtilegan hring á bílnum fyrir stuttu. Framandi útlit og hönnun Að keyra bílinn frá Bernhard í Bústaðahverfið þar sem ég bý fannst mér eins og að ég sæti á götunni því svo lágt situr maður í bílnum. Eftir aðeins nokkur hundruð metra var mér farið að líða vel í bílnum, þægilegur í akstri og krafturinn var bara skemmtilegur, þessi prufuakstur lofaði góðu. Að horfa á bílinn í inn- keyrslunni hjá mér út um eldhús- gluggann og virða fyrir mér framandi útlit bílsins var það fyrsta sem mér datt í hug brot úr Batman-mynd þar sem skot myndavélarinnar var yfir bílaflota Batmans og í huganum fannst mér að bæði litur og útlit Honda Civic hefði fallið vel inn í þetta faratækjasafn Batmans. Prufuaksturinn miðaðist að mestu við malbik Út frá hönnun bílsins er greinilegt að þessi bíll er ekki sá besti til aksturs á holóttum malarvegum, en eins og alltaf prófaði ég bílinn á möl. Á tiltölulega góðum malarvegi með lausu yfirborði kom það mér á óvart að mjög lítið malarvegahljóð kom upp undir bílinn og fjöðrunin var góð, bíllinn liggur vel á lausu yfirborði, en hæð undir framendann á bílnum gerir það að verkum að ekki mega vera miklar holur á veginum svo að steinar, sem oft myndast á miðju malarvega, nái ekki upp undir lægsta punkt. Á malbiki er Honda Civic hreint draumur, liggur vel í öllum beygjum og hreint ótrúlegt hvað bíllinn er skemmtilegur inn og út úr beygjum. Þrátt fyrir að ég hafi nánast alfarið haldið mig á malbiki náði ég að rispa undir lægsta punkt á malbikuðum veginum heim að Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd þar sem kantarnir eru svo signir undan umferð að á miðju vegarins er hryggur. Kostir og gallar Séu kostirnir teknir fyrst þá er akreinalesarinn og blindhornsvarinn þeir hlutir sem ég var hrifnastur af. Þráðlaust hleðslukerfi fyrir farsíma er í bílnum (setti síma í hleðslu sem var með 75% hleðslu og um 30 mín. síðar var síminn kominn í 100%), einnig eru tenglar fyrir hleðslutæki með snúrum og hitari í aftursætum. Bakkmyndavélin sýnir vel aftur fyrir bílinn og á sama skjá er leiðsögukerfi og útvarpið og fyrir mig, tölvuheftan manninn, fannst mér þægilegt að nota þetta og breyta. Eyðslan er ekki mikil, en upp- gefin eyðsla á hverja 100 km í blönduðum akstri er á bilinu 5,8– 6,1 lítri. Mín eyðsla í blönduðum akstri var 7,7 lítrar, sem er að mínu mati mjög gott þar sem mér leiddist ekki að gefa bílnum vel inn út úr hverri einustu beygju. Ljósatakkinn er þannig að maður kveikir ljósin þegar maður kaupir bílinn og slekkur aldrei aftur (vegna laga um ljósaskyldu allan hringinn alltaf). Bíllinn slekkur öll ljós þegar honum er læst og því hægt að vera alltaf með ljósarofann stilltan á full ljós. Ókostir eru hvað lágt er undir bílinn að framan (12,9 cm) og í honum er ekkert varadekk. Verð ekki hátt miðað við gæði Bíllinn sem ég prófaði heitir Honda Civic Prestige og kostar 4.390.000, en ódýrasti Civic er frá 3.920.000, en sá dýrasti á 4.790.000. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um Honda-bíla á vefsíðunni www. honda.is. É ÁV LAB SINN Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Honda Civic Prestige. Myndir / HLJ Þyngd 1.334 kg Hæð 1.421 mm Breidd 1.800 mm Lengd 4.497 mm Helstu mál og upplýsingar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.