Bændablaðið - 05.10.2017, Blaðsíða 2
2 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. október 2017
Sauðfjárbændur telja tillögur ráðherra ekki til þess fallnar að leysa þeirra vanda:
Ríkur vilji til að halda áfram búskap en
mikil óánægja með afurðastöðvarnar
Nýleg könnun sem Landssamtök
sauðfjárbænda gerði meðal félags-
manna sinna um afstöðu þeirra til
ýmissa hagsmunamála þykir um
margt athyglisverð. Þar kom m.a.
fram megn óánægja bænda með
hugmyndir fráfarandi landbún-
aðarráðherra um lausn á þeirra
vanda.
Alls töldu 83% aðspurðra að
tillögur ráðherra væru ekki til þess
fallnar að leysa þann bráðavanda
sem steðjaði að sauðfjárræktinni.
Mikil óvissa ríkir þó greinilega
einnig meðal bænda um hvernig
skuli bregðast við vandanum.
Ríkur vilji bænda til að halda
áfram búskap
Spurt var hvort sauðfjárbændur
teldu líklegt að þeir myndu nýta
sér þann möguleika í framkomnum
tillögum ráðherra að hætta sauðfjár-
rækt haustið 2017 og halda 90% af
greiðslum samkvæmt sauðfjársamn-
ingi í 5 ár ef það byðist. Svarið var
mjög afgerandi og ótvírætt. Kom þar
fram greinilegur og ríkur vilji sauð-
fjárbænda til að halda áfram búskap
þótt á móti blási. Þannig sögðust
80,7% bænda ekki, eða líklega ekki,
vilja nýta sér slíkan möguleika ef
hann stæði til boða. Jafnframt kom
þar fram að 8,2% bænda svöruðu
þessari spurningu játandi og um
5% töldu það mjög líklegt. Talið er
að í þeim hópi sé talsvert af yngstu
bændunum sem eru oft einnig mjög
skuldsettir.
Afstaða bændanna breyttist lítið
þótt spurningin væri orðuð aðeins
öðruvísi og miðað við að þeir hættu
2018 og væri boðið 70% af greiðsl-
um til þriggja ára samkvæmt sauð-
fjársamningi. Að vísu voru enn færri
tilbúnir að stökkva á þann vagn.
Mikil óánægja með
afurðastöðvarnar
Þegar spurt var um afstöðu bænda
til afurðastöðvanna er yfirgnæfandi
meirihluti þeirra óánægður með
hvernig afurðastöðvarnar standa
að slátrun, úrvinnslu, sölu og
markaðssetningu kindakjöts.
Nær 86% aðspurðra sögðust
vera mjög eða frekar óánægðir
með framgang afurðarstöðvanna.
Virðist þar einkum endurspeglast
megn óánægja bænda með mjög
mikla lækkun á afurðaverði til
bænda. Vekur þetta ekki síst
athygli þar sem bændur eiga bæði
hluti í flestum afurðastöðvunum
og einnig aðild að stjórnum þeirra.
Virðist sem þessi afstaða bænda sé
jafnvel ekki að skila sér inn í þeirra
eigin fyrirtæki.
Mikil umræða hefur verið
um markaðssetningu kindakjöts
að undanförnu og m.a. hart
deilt á afurðastöðvarnar og
verslanafyrirtækin um að sinna ekki
kröfum neytenda, m.a. um annan
skurð á kjöti og pökkun afurða.
Hefur þar t.d. flogið hátt í fjölmiðlum
gagnrýni á að ekki hafi verið hægt
að fá íslenskt kindahakk í verslunum
fyrr en erlenda verslunin Costco fór
að bjóða slíkt í sinni verslun.
Bændur jafn mikið með og á móti
frekari sameiningu afurðastöðva
Í könnun LS var einnig spurt um
hvort sauðfjárbændur teldu skyn-
samlegt að sameina afurðastöðvar
ef lagaleg forsenda væri fyrir hendi.
Þar voru bændur nokkurn veginn
jafn mikið með frekari sameiningu
og á móti. Þess má geta að á liðnum
árum og áratugum hefur orðið mikil
samþjöppun í þessum geira með
mikilli fækkun sláturhúsa. Hefur því
líka komið fram töluverð gagnrýni á
að heilu landsfjórðungarnir séu nú
án sláturhúsa og fyrir suma bændur
því mjög langt að fara með fé til
slátrunar. /HKr.
FRÉTTIR
Spurt var: Telur þú líklegt að tillögur ráðherra séu til þess fallnar að leysa
þann bráðavanda sem steðjar að sauðfjárræktinni?
Spurt var: Telur þú líklegt að þú munir nýta þér þann möguleika að
hætta sauðfjárrækt haustið 2017 og halda 90% af greiðslum samkvæmt
sauðfjársamningi í 5 ár ef það býðst?
Spurt var: Ert þú ánægð/ur með hvernig afurðarstöðvar standa að slátrun,
úrvinnslu, sölu og markaðssetningu kindakjöts?
Spurt var: Að því gefnu að lög heimili eða lagaheimild fáist, telur þú
skynsamlegt að sameina afurðastöðvar?
Íslenskir sauðfjárbændur vilja efla sölu lambakjöts til ferðamanna:
Mikil ánægja með markaðsátak Icelandic
lamb og Markaðsráðs kindakjöts
Unnið hefur verið að sérstöku
átaki á vegum Icelandic lamb
ehf. sem er í eigu LS og
Markaðsráðs kinda-
kjöts um að auka
sölu á lambakjöti
á innan lands-
mark aði. Virðast
sauðfjár bændur
almennt vera mjög
ánægðir með það
framtak ef marka má könnun
Lands samtaka sauðfjárbænda.
Icelandic lamb hefur tekist að
fá um 100 veitingastaði um allt
land til liðs við sig á undanförnum
mánuðum til að auka kynningu
og sýnileika íslensks lambakjöts
fyrir gesti veitingastaðanna. Er
mælanleg verulega söluaukning á
kindakjöti vegna þessa. Er það sem
nemur um 25% að meðaltali á hvert
veitingahús sem þátt hefur tekið í
átakinu.
Í könnun LS var spurt hvort
bændur teldu skynsamlegt að
halda áfram að leitast við að selja
lambakjöt til erlendra ferðamanna
á Íslandi. Var svarið við þeirri
spurningu mjög afdráttarlaust.
Þannig töldu um 97,6% það mjög
eða frekar skynsamlegt. Einungis
tæplega 1% töldu það mjög eða
frekar óskynsamlegt.
Í könnuninni var einnig spurt um
hvort skynsamlegt væri að halda
áfram útflutningi á kindakjöti.
Þar kom fram að um 79%
sauðfjárbænda telja slíkt mjög eða
frekar skynsamlegt. Einungis 2,6%
telja það mjög óskynsamlegt og
6,5% telja það frekar óskynsamlegt.
Greinilegt er af niðurstöðum
úr þessum tveim spurningum að
sauðfjárbændur eru mjög ánægðir
með framgöngu Icelandic lamb í
markaðsmálum á sauðfjárafurðum.
/HKr.
Spurt var: Telur þú skynsamlegt að halda áfram að leitast við að selja
lambakjöt til erlendra ferðamanna á Íslandi?
Þær höfðu greinilega ekki miklar áhyggjur af stöðu mála þessar kindur sem
Mynd / HKr.